Fréttablaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 38
19. DESEMBER 2007 MIÐVIKUDAGUR12 ● fréttablaðið ● blessuð jólin
„Þetta er einföld og góð uppskrift
og æðislegt jólasælgæti. Þetta
getur hentað fólki með fæðuó-
þol, sem og þeim sem vilja stilla
sykurneyslu í hóf,“ segir Sigga
Ásta.
Ein klassísk smákökusort fær
þó að halda sér. „Við bökum alltaf
piparkökur og skreytum þær. Ég
get reyndar ekki bakað þær sjálf
út af óþolinu en ég reyni að finna
piparkökudeig sem er mjólkur-
laust fyrir stelpurnar mínar. Svo
skreytum við kökurnar þar til þær
verða gjörsamlega óætar,“ segir
Sigga Ásta stríðin.
Á aðventunni er töluvert föndrað
hjá Siggu Ástu og útbúa hún og
börnin þá meðal annars skrautlega
merkimiða á jólapakkana. Tón-
listin skipar líka stóran sess. „Ég
æfi með kórnum mínum, Mótettu-
kór Hallgrímskirkju, fyrir jólatón-
leika sem eru í byrjun aðventunn-
ar og á milli jóla og nýárs hittist öll
stórfjölskyldan í föðurætt og spil-
ar jólalög saman en þar leika allir
á hljóðfæri og sumir fleiri en eitt.
Svo borðum við eitthvað gott,“ út-
skýrir Sigga Ásta og segist ávallt
hlakka til þessa fagnaðar en þar fá
þau börn sem ekki kunna á hljóð-
færi líka að láta ljós sitt skína með
því að slá á þríhorn.
Sigga Ásta segist ekki skreyta
mikið en þó freistast hún til að
setja jólaljósin upp snemma. „Ef
ég finn eitthvert jólaskraut sem
mér finnst brjálæðislega flott
endar það bara uppi allt árið. Ég
á til dæmis indverskar pappírs-
stjörnur með ljósi sem fara upp 1.
desember og ekki niður fyrr en í
apríl,“ segir Sigga Ásta, sem nýtur
þess að lýsa upp skammdegið með
fallegum jólaljósum. - hs
UPPSKRIFT
1.200 g möndlur með hýði, pekan-
hnetur og kasjúhnetur (álíka mikið af
öllum tegundum) – helst lífrænt
1 dl ekta lífrænt hlynsíróp
2 msk. þurrkað rósmarín
1 og 1/2 tsk. Maldon-salt (síðan er
hægt að salta að vild ofan í boxið)
Hitið ofninn í 150 gráður og setjið bökun-
arpappír í ofnskúffu. Setjið hnetur í skál
og hrærið hlynsírópi og kryddi saman við.
Setjið blönduna í ofnskúffuna og látið
vera í ofninum í 15-20 mínútur. Taka þarf
blönduna út og hræra í á fimm mínútna
fresti og fylgjast vel með því það er auðvelt
að brenna hnetur.
Heilsusamlegt og einfalt jólasælgæti
● Sigríður Ásta Árnadóttir hönnuður hefur þurft að gæta vel að mataræði sínu síðastliðin ár þar sem hún er með glútenóþol og mjólkuróþol. Dætur hennar
hafa auk þess erft mjólkuróþolið og þess vegna hefur hún fundið nýjar leiðir og uppskriftir til að nota um jólin.
Sykurlaust hnetu- og möndlusælgæti.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Sigga Ásta og dætur hennar gæða sér á jólanamminu úr kökuboxi sem langamma Siggu Ástu átti. Þótt Sigga Ásta borði lítið af
smákökum safnar hún kökuboxum.
● HÁTÍÐ FER AÐ
HÖNDUM EIN
Hátíð fer að höndum ein,
hana vér allir prýðum.
Lýðurinn tendri ljósin hrein,
líður að tíðum,
líður að helgum tíðum.
Gerast mun nú brautin bein,
bjart í geiminum víðum.
Ljómandi kert’ á lágri grein.
Líður að tíðum,
líður að helgum tíðum.
Sæl mun dilla, silkirein,
syninum, undurfríðum.
Leið ei verður þá lundin nein.
Líður að tíðum,
líður að helgum tíðum.
Texti: Jóhannes úr Kötlum
jólalag
Teg 2106 Teg 2064Teg 2083
©
Fj
ar
ða
rp
ós
tu
rin
n/
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
–
05
12
Nýjar húsgagnasendingar
Mary