Fréttablaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 58
38 19. desember 2007 MIÐVIKUDAGUR
folk@frettabladid.is
„Aska kom út hér á landi um
miðjan nóvember og hefur
fengið rífandi viðtökur. Hún
fer með himinskautum á met-
sölulistum landsins og dómar
hafa verið afar jákvæðir,“
segir Pétur Már Ólafsson
útgefandi hjá Veröld. Og
kann sér ekki læti.
Ekkert lát er á fregnum
af landvinningum glæpa-
sagnadrottningarinnar
Yrsu Sigurðardóttur og hér
kemur enn ein í það safn.
Veröld hefur sem sagt
gengið frá samningum við
Damm í Noregi um útgáfu
á Ösku eftir Yrsu. Áður
hefur verið samið um
útgáfu á bókinni í Þýska-
landi, Svíþjóð, Póllandi,
Grikklandi og um allan hinn
spænskumælandi heim. Yrsa
hefur átt velgengni að fagna
á Norðurlöndunum en Damm
hefur áður gefið út Þriðja
táknið eftir Yrsu og Sér gref-
ur gröf er væntanleg á
norsku í ágúst á næsta ári.
„Fréttablaðið gefur Ösku
fimm stjörnur af fimm mögu-
legum, Morgunblaðið segir
að Yrsa fari á kostum í per-
sónusköpuninni og að lesend-
ur fyrri bóka hennar muni
taka Ösku fagnandi,“ segir
Pétur og er rétt að byrja á að
þylja upp dæmi um lofsam-
lega dóma og góðar viðtökur
sem bækur Yrsu njóta. - jbg
> VISSIR ÞÚ?
Leikkonan America Ferrera,
sem leikur í Ljótu Betty, var
talin á að taka hlutverkið í þátt-
unum að sér þegar hún hitti
Sölmu Hayek við tökur á þætti
Opruh Winfrey. Ferrera hefur
látið hafa eftir sér að Bette
Midler sé eina ástæða
fyrir því að hún
lagði leiklistina
fyrir sig.
Aska Yrsu kemur út í Noregi
YRSA SIGURÐARDÓTTIR Samið hefur verið um útgáfu nýjustu bókar
hennar í Noregi við Damm forlag.
TÍSKUGÚRÚAR Sarah Jessica Parker og stöllur hennar í Sex and the City þykja svo
miklir tískugúrúar að hönnuðir slást um að fá að vera með í myndinni. Hér eru þær í
heimsókn hjá Opruh Winfrey.
Sex and the City kvik-
myndin er væntanleg í
kvikmyndahúsin á næsta
ári, eins og aðdáendur hafa
fæstir látið fram hjá sér
fara. Tískuhönnuðir slást
um að föt frá sér verði not-
uð í myndinni.
Sjónvarpsþættirnir Beðmál í borg-
inni, Sex and the City, nutu gríðar-
legra vinsælda, og var það ekki síst
vegna fatnaðarins sem aðalleik-
konurnar klæddust. Stílistinn
Patricia Field skaust upp á stjörnu-
himininn í kjölfar þáttanna, og vin-
sældir skónna frá Manolo Blahnik
ruku upp úr öllu valdi. Þegar Sarah
Jessica Parker, sem leikur Carrie,
sást í skóm frá Dior á tökustað
kvikmyndarinnar seldust þeir upp
á örfáum dögum.
Tískuhönnuðir vita hversu mikil
lyftistöng það gæti orðið ef Carrie,
Miranda, Charlotte eða Samantha
klæddust fötum frá þeim í kvik-
myndinni og hafa því nánast slegist
um tækifæri til að vera með, að
sögn breska blaðsins Daily Mail.
„Trúið mér, ef Patricia Field [sér
um búninga í myndinni] hringir og
biður um eitthvað þá hoppar fólk af
gleði, það er eins og að vinna í
lottóinu,“ segir heimildarmaður
blaðsins úr tískuiðnaðinum.
Vivienne Westwood er meðal
þeirra hönnuða sem geta hrósað
happi, en Carrie mun klæðast brúð-
arkjól frá henni. Samantha sést í
Zac Posen og Charlotte og Miranda
klæðast Chanel og verða í Loubout-
in-skóm. Samkvæmt Daily Mail
varð þessi ofgnótt rándýrra hátísku-
klæða til þess að framleiðendur
kvikmyndarinnar þurftu að ráða
sérstaka verði til þess að passa upp
á fötin. Þau voru þar að auki tryggð
fyrir meira en 20 milljónir dollara.
Tískuhönnuðirnir eru ekki þeir
einu sem vilja eiga aðild að kvik-
myndinni. Carrie og vinkonur henn-
ar þykja þvílíkar tískufyrirmyndir
að allt frá náttfötunum þeirra til
hársápunnar sem þær nota gæti
haft áhrif á markaðinn. Það á einn-
ig við um áfengi, en framleiðand-
inn Michael Patrick King segist
hafa verið mjög nærri því að gera
samning við framleiðendur Camp-
ari. „Það hefði þýtt að Carrie hefði
pantað það í staðinn fyrir Cosmo-
politan á barnum. Eftir að hafa
hugsað aðeins um þetta sá ég að
það gekk ekki upp, Carrie hefði
aldrei pantað það,“ segir King.
Barist grimmt um
Beð mál í borginni
Bandarísku spjallþáttastjórnend-
urnir Jay Leno og Conan O´Brien
ætla að taka upp þætti sína á nýjan
leik í janúar, þrátt fyrir að verkfall
handritshöfunda standi enn yfir.
Leno segist hafa skyldum að
gegna gagnvart þeim eitt hundrað
starfsmönnum þáttar síns sem
starfa við annað en skriftir og
O´Brien vonar það besta. „Auðvitað
verður þátturinn minn ekki eins
góður og áður. Hann gæti meira að
segja stundum orðið hræðilegur,“ sagði O´Brian. Hann ætlar að gera
eins góða útgáfu af þætti sínum og hægt er miðað við aðstæður á sama
tíma og hann mun virða verkfallið.
Báðir þættirnir hafa verið endursýndir síðan verkfallið hófst fyrir
sjö vikum. Engar viðræður eru fyrirhugaðar á næstunni til að leysa
hnútinn.
Stutt er síðan David Letterman og Craig Ferguson, keppinautar
Leno og O´Briens, gerðu samning við samtök handritshöfunda um að
þættir þeirra færu aftur í loftið þrátt fyrir verkfallið.
Leno aftur í loftið
JAY LENO Bandaríski spjallþátta-
stjórnandinn Jay Leno tekur viðtal
við Arnold Schwarzenegger.