Fréttablaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 63
MIÐVIKUDAGUR 19. desember 2007
Biogen, Frank Murder, Star Kidz
og Stereo Hypnosis koma fram á
raftónlistarkvöldi á Barnum í
kvöld. Þessi kvöld hafa verið
haldin einu sinni í mánuði og er
þetta hið þriðja í röðinni.
Þar sem jólin nálgast ber þetta
kvöld titilinn Rafmessa. Aðgangs-
eyrir er enginn og byrja tónleik-
arnir klukkan 21 á efri hæðinni. Á
neðri hæðinni spilar Gauti dub og
fleira.
Rafmessa í
tilefni jóla
FRANK MURDER Frank Murder kemur
fram á raftónlistarkvöldi á Barnum í kvöld.
Rokksveitin Dikta hefur gefið út sína útgáfu af
jólasálminum vinsæla Nóttin var sú ágæt ein eftir
Einar Sigurðsson við lag Sigvalda Kaldalóns. „Við
höfum verið að taka þetta í tvö til þrjú ár í kringum
hátíðarnar og verið með aukahljóðfæraleikara með
okkur,“ segir Haukur Heiðar Hauksson, söngvari
Diktu. „Við höfum fengið rosalega góð viðbrögð og
fólk var alltaf að spyrja hvort við ætluðum ekki að
taka það upp. Við ákváðum að kýla á það þótt
desember væri byrjaður. Við ætlum að gera plötu á
næsta ári og munum fylgja henni eftir þannig að
það var núna eða aldrei að taka þetta upp.“
Haukur segir þá félaga lengi hafa haft miklar
mætur á laginu. „Þetta er ótrúlega fallegt lag og
það er skrítið að maður hefur heyrt mjög lítið af
því í nútíma útsetningum.“ Dikta ætlar vitaskuld
að spila lagið á jólatónleikum á Organ á laugardag
ásamt bæði eldri lögum og nýjum. „Við erum á
fullu að semja og útsetja þessi lög sem við erum
með. Við erum komnir með þrjátíu til fjörutíu
hugmyndir að lögum sem við erum að vinna
betur.“
Auk Diktu koma fram á tónleikunum Ölvis, For a
minor reflection og Rass. Með Ölvis á sviðinu verða
Georg og Orri úr Sigur Rós, Baddi úr Jeff Who? og
Sindri Már Finnbogason. Miðaverð er 500 krónur.
Lag Diktu, Nóttin var sú ágæt ein, er til sölu á
smekkleysa.net auk þess sem hægt er að hlusta á
það á myspace.com/dikta.
- fb
Dikta gefur út vinsælt jólalag
DIKTA Hljómsveitin Dikta hefur gefið út sína útgáfu af jólalaginu Nóttin var sú ágæt ein. MYND/AUÐUR SIGBERGSDÓTTIR
Rokksveitin Benny Crespo´s
Gang heldur útgáfutónleika í
Tjarnarbíói í kvöld í tilefni af
sinni fyrstu plötu sem kom út
fyrir skömmu. Búast má við góðri
stemningu enda er Benny
Crespo´s Gang rómað tónleika-
band sem skilar orku sinni vel inn
á plötuna. Miðaverð á tónleikana
er 1200 krónur og opnar húsið
laust fyrir níu.
Hljómsveitin Múm spilar
einnig á skemmtikvöldi á Organ í
kvöld þar sem frítt er inn. Auk
múm koma fram Mr. Silla &
Mongoose og fleiri óvæntir gestir.
Múm, sem er að fylgja eftir
plötunni Go Go Smear the Poison
Ivy, er nýkomin heim eftir vel
heppnaða tónleikaferð um
Evrópu.
Fagna sinni
fyrstu plötu
BENNY CRESPO´S GANG Rokksveitin
heldur útgáfutónleika sína í Tjarnarbíói
í kvöld.
verður í Fella- og Hólakirkju
fimmtudaginn 20. desember kl. 14:00.
Allir nemendur dag- og kvöldskóla, er lokið
hafa eftirtöldum prófum, eiga að koma og
taka á móti prófskírteinum:
Handíðabraut
Sjúkraliðanámi
Snyrtifræðinganámi
Burtfararprófi af húsasmíðabraut
Burtfararprófi af rafvirkjabraut
Stúdentsprófi
Skólameistari
Austurbergi 5 111 Reykjavík Sími 570 5600
Símbréf 567 0389 Tölvupóstur: fb@fb.is
www.fb.is
Útskrift