Fréttablaðið - 19.12.2007, Blaðsíða 52
32 19. desember 2007 MIÐVIKUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Elskan! Þú
gleymdir inn-
kaupalistanum!
Þessi bjór getur orðið
þinn ef þú svarar
næstu spurningu rétt...
Af hverju
líkar næstum
engum við
lúðrasveitar-
tónlist?
Eeh... af
því að hún
hljómar svo
skelfilega!
Rétt!
Alright!
Skaustu á
þetta?
Neiii, ég var
alveg með
þetta!
Engum nema
pabba gæti
tekist að láta
akstur líta
hallærislega út.
Ég fer að
efast um
að ég
muni taka
bílprófið.
Litli bleiki sokkur.
Saknaðirðu mín?
Það er þvottadagur í dag.
Hvar er
mamma?
Hún er að gefa
Lóu brjóst Aftur??
Já, hún þarf að
borða á tveggja
tíma fresti allan
sólarhringinn.
Úff... Það
hlýtur að
vera erfitt.
Hmmm,
tja...
Hún sleppur að minnsta
kosti við kvartanir yfir
matseðlinum.
Makkarónur
aftur?? Ég
hélt við
ætluðum að
hafa spagettí!
Þið hélduð þó ekki að
ég myndi skrifa um
eitthvað annað en
jól? O, nei. Engin
ástæða til þess,
enda er ég jólabarn
af bestu gerð. Það
tilkynnist hér með að
með einni örlítilli und-
antekningu er ég búin að kaupa
allar jólagjafir ársins. Þeir versl-
unarleiðangrar þykja mér þeir
allra, allra skemmtilegustu. Ekki í
ár.
Ef ekki hefði verið fyrir skrepp
yfir hafið, þar sem ég komst í færi
við þurrar gangstéttar í fyrsta
skiptið í margar vikur, hefðu jóla-
leiðangrar mínir í ár verið frekar
ömurlegir. Ég tilheyri nefnilega
þeim hópi fólks sem finnst lítil
stemning fólgin í því að skjótast á
milli búða í upplýstum verslunar-
miðstöðvum þar sem jafn vel fer
um mann og fíl í flugvél. Eða bara
manneskju yfir 40 kílóum í flugvél,
en það er önnur saga. Í desember
er mér nefnilega bara vel við
myrkrið, og vil komast út í það á
milli þess sem ég sting nefinu inn í
búðir. Svo á myrkrið náttúrulega
að bíta vel í kinnar og fingur, svo
maður komi hálfloppinn inn í hlýj-
una og hafi afsökun fyrir því að
setjast niður yfir kaffi- eða kakó-
bolla, eftir því hversu miklu
nostalgíuflippi maður er á.
En, nei. Ég gerði hetjulega tilraun
til að útrétta á Laugaveginum um
síðustu helgi. Þeir sem ekki voru í
yfirliði af skammdegisþunglyndi
muna kannski að vatnsmagnið sem
þá helltist af himnum ofan jaðraði
við nýtt syndaflóð. Sem var mikil
synd. Ég króknaði hvorki á kinnum
né fingrum, og hafði mun meiri
áhuga á að komast í tæri við ofn og
þurra sokka en kakóbolla.
Ég kann hreinlega ekki við þetta.
Ég hef hingað til kyngt því að ekki
sé hægt að panta hvít jól á hverju
ári, en þetta er náttúrulega bara
einhver vitleysa. Ég hef alltaf sagt
að ég vilji hvergi annars staðar en
á Íslandi vera á jólunum og fussað
yfir þeim sem fljúga til Kanarí á
Þorláksmessu. Það fer að breytast.
Nema að ég tek flugið í hina áttina.
Ætli þeir séu með góðan miðbæ á
Svalbarða?
STUÐ MILLI STRÍÐA Miðbæjarblús í desember
SUNNA DÍS MÁSDÓTTIR HYGGST FLYTJAST TIL SVALBARÐA