Fréttablaðið - 19.12.2007, Síða 26

Fréttablaðið - 19.12.2007, Síða 26
26 19. desember 2007 MIÐVIKUDAGUR UMRÆÐAN Jónas og jólin Mikið var um dýrðir á tvíöld Jónasar Hallgrímssonar og skáldskapur hans fyllti hvern krók og kima þjóðlífsins. Ekki man ég eftir betra afmæli og það lýsir vel sígildi þessara kvæða að þau skuli enn þola slíkan þaulflutning. Jónasarunnandinn varð þvert á móti enn æstari í aðdáun sinni og ók næstum ölvaður af línum hans til og frá vinnu dag eftir dag, svo stundum lá við slysi. (Spurning hvort lögreglan útvegi sér ekki tæki til að mæla þann eilífðar anda.) Á hverjum degi þöktu hugann nýjar „gleymdar“ hendingar. „...maðkinn tíni þrátt um byggð...“ Ýmislegt bar til tíðinda í kringum afmælið. Aðspurður í Víðsjá um eftirlæti sitt eftir JH valdi Guðmundur Andri „Enginn grætur Íslending“. Og í einu vetfangi komst kvæði það, sem kallast svo hversdaglega „Stökur“ í Ljóðmælum skáldsins, á stall með „Ég bið að heilsa“, „Dalvísu“ og „Ferða- lokum“. Þannig er menningararfurinn í sífelldri mótun og jafnvel hin klassískustu skáld enn síkvik og „virk“. Það sem kom einna mest á óvart við 200 ár Jónasar var hversu sterkur hann mætti til leiks. Hversu djúpur og lifandi hann er. Satt að segja grunaði mann, einhverstaðar lengst inni við beinið, að ef til vill væri fullausið úr brunni hans. En nei, þessi brunnur er eins og ástin hjá Shake- speare; hann dýpkar aðeins við hverja fötu sem úr honum er tekin. Það er víst sama hversu oft menn segja Jónas bestan skálda, hann hlær að öllum okkar klisjum og verður alltaf betri en okkar bestu orð. Því vakti talsverða undrun á afmælismorgni að leiðari Morgunblaðsins fengi það ekki af sér að minnast höfuðsnillings þjóðarinnar án þess að flagga sínu „núlifandi þjóðskáldi“ og var hlegið að þessu víða. Menningarstjórnun blaðsins er sannarlega á enda komin þegar ekki einu sinni Jónas Hallgrímsson má skyggja á Matta Jó. Einn af hápunktum hátíðahaldanna var útgáfa geisladisksins „Íslands minni“ þar sem Fífil- brekkuhópurinn flytur lög Atla Heimis við ljóð Jónasar. Hér og þar hafði maður heyrt sum þessara laga en að hlusta á þau í einum sveig er sterk upplifun. Lagasmíðarnar eru hver annarri betri og fara ljóðunum ákaflega vel, gæða mörg þeirra glænýju lífi. Atli Heimir tekst óhræddur á við kvæði sem þegar eiga sér þjóðþekkt lög, líkt og „Álfa- reiðin“ og „Ég bið að heilsa“, en kemst ætíð vel frá verki, þótt reyndar verði seint samið betur fyrir „Smávini fagra“ en Jón Nordal gerði á sínum tíma. Það er eitthvað rammíslenskt við þennan ljóðasveig sem spannar allt frá léttu sumarlyndi til dauðalegs skammdegisdrunga. En um leið er hér ákaflega heimsborgaralega að verki staðið. Ef Jónas er okkar Heine er Atli Heimir okkar Schumann og hér hefur þjóðin eignast sinn Liederkreis. Ekki lítil gjöf það. Lögin við „Söknuð“, „Gráttittling“ og „Dalvísu“ eru unaðslega fögur og það má heita mikið afrek hjá tónskáldinu að hafa fundið með sér lag sem hæfir„Ferðalokum“. Að aka niður Öxnadal í snjóbjörtu desembermyrkri með þessar perlur í græjunum er líkt og að aka inn í sjálfa nítjándu öldina á gúmjárnuðum nútíðarjálki með útvarpið stillt á Útvarp Fjölni. Og allt er þetta frábærlega flutt af Fífilbrekkuhópnum. Hljóðfæraskipanin píanó, fiðla, klarinett og bassi er auðvitað ákaflega Jónasarleg; klarinettið flögrar um fífilbrekkurnar á meðan bassinn fetar sig „að þeim dimmu dyrum“. Þá fara söngvararnir vel með lag og brag. Einkum vekur athygli hinn ungi og heiðskýri tenór Eyjólfur Eyjólfsson, sem marg- ir hlýða hér á í fyrsta sinn. Þessi diskur er mikil þjóðargjöf. Megi þjóðin fá hann og gefa í jólagjöf. Höfundur er rithöfundur. Jólagjöfin í ár Það er eitthvað rammíslenskt við þennan ljóðasveig sem spannar allt frá léttu sumar- lyndi til dauðalegs skammdegisdrunga. En um leið er hér ákaflega heimsborgaralega að verki staðið. HALLGRÍMUR HELGASON UMRÆÐAN Hagur aldraðra Sú ákvörðun ríkis-stjórnarinnar að leggja fram frumvarp næsta vor um að draga úr skerðing- um tryggingabóta aldr- aðra vegna tekna þeirra og vegna tekna maka felur í sér verulegar end- urbætur á málefnum aldr- aðra. Það hefði vissulega verið æskilegt að þessar umbætur hefðu tekið gildi strax um áramót en ei að síður ber að fagna þessum umbótum sem mikikvægum áfanga. En eldri borgarar sakna þess,að ekki skuli að finna í tillögum ríkis- stjórnarinnar ákvörðun um að hækka lífeyri aldraðra frá almanna- tryggingum. Afnám tekjutenginga er mikilvægt skref en það njóta ekki allir eldri borgarar hagræðis af þeirri breytingu. Einhleypingar meðal eldri borgara, sem ekki eru á vinnumarkaði, njóta ekki afnáms tekjutenginga vegna atvinnutekna. Þeir njóta þess heldur ekki að skerðingar vegna tekna maka séu afnumdar. Brýnt er að bæta kjör þessa hóps eldri borgara og raunar allra eldri borgara þar eð lífeyrir þeirra frá almannatryggingum er allt of lágur og dugar hvergi nærri fyrir framfærslukostnaði sam- kvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Samfylkingin lýsti því yfir fyrir síðustu alþingiskosningar, að hún vildi leiðrétta kjör eldri borgara með hækkun lífeyris. Samfylkigin benti á, að lífeyrir aldraðra hefði ekki um langt skeið tekið eðilegum vísitöluhækkunum heldur dregist verulega aftur úr í launaþróuninni. Samfylkingin sagði: Við ætlum að leiðrétta þetta. Tillögur um þessa leiðréttingu hafa ekki komið fram enn. Ef til vill stendur á Sjálf- stæðisflokknum en á sama hátt og Sjálfstæðisflokkurinn hefur fallist á að draga úr tekjutengingum hlýtur hann að fallast á að leið- rétta lífeyri aldraðra veru- lega. Það þarf að stór- hækka lífeyrinn svo eldri borgarar geti lifað sóma- samlegu lífi. Það sem ríkisstjórnin hefur nú ákveðið að gera er eftirfarandi: Skerðing tryggingabóta vegna tekna maka fellur niður 1. apríl. Þessi breyting hefði átt að vera komin fyrir mörgum árum, þar eð Hæstiréttur úrskurð- aði í hinum fræga öryrkjadómi, að það væri brot á stjórnarskránni að skerða lífeyri öryrkja vegna tekna maka. Hið sama á að sjálfsögðu við um ellilífeyrisþega. Frítekjumark vegna atvinnutekna á að hækka í 100 þúsund krónur á mánuði 1. júlí nk. Áður hafði verið ákveðið að það væri 25 þúsund kr. á mánuði. Hér er um stefnumál Samfylkingarinnar frá síðustu kosningum að ræða. En Samfylkingin vildi að frítekjumark- ið næði einnig til lífeyrissjóðstekna og það er ef til vill enn mikilvægara þar eð flestir eru í lífeyrissjóði en tiltölulega fáir eldri borgarar eru á vinnumarkaði. Hér fer ríkisstjórnin þá leið sem ódýrust er fyrir ríkis- sjóð en ekki þá leið sem gagnast eldri borgurum best. Þessar ráð- stafanir ríkisstjórnarinnar til þess að draga úr tekjutengingum draga úr því að lífeyrisþegum sé refsað fyrir að vinna en þær fela ekki í sér hækkun á grunnlífeyri frá Trygg- ingastofnun. Þessar ráðstafanir geta einnig sparað ríkinu stórfé á móti útgjöldum, þar eð ríkið fær skatta af öllum atvinnutekjum. Háskólinn á Bifröst hefur reiknað út að ef allar tekjutengingar væru afnumdar mundi ríkið fá fjóra millj- arða á ári í auknum skatttekjum. Höfundur situr í stjórn 60+. Hækkun lífeyris vantar BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.