Fréttablaðið - 19.12.2007, Side 40

Fréttablaðið - 19.12.2007, Side 40
 19. DESEMBER 2007 MIÐVIKUDAGUR14 ● fréttablaðið ● blessuð jólin „Jólasveinarnir hafa verið að þvælast hérna í Mý- vatnssveitinni frá örófi alda. Ég sá þá fyrst þegar ég var lítill gutti og núna er ég búinn að vera að vinna með þeim í sex ár,“ segir Yngvi Ragnar Kristjánsson, umboðsmaður jólasveinanna í Dimmuborgum í Mý- vatnssveit. Sveinarnir í Dimmuborgum eru þrettán talsins og nú eru þegar nokkrir komnir til byggða. „Stekkjar- staur var eins og fólk veit fyrstur. Hann var bæði þreyttur og spenntur en á þessari fyrstu nóttu var stjörnubjart úti og norðurljósin dönsuðu hérna í Mý- vatnssveit svo það gekk gríðarlega vel að komast til byggða. Síðan hafa þeir komið einn af öðrum til að fara með gjöf í skóinn til krakkanna. Síðan eru þeir líka í óða önn að taka á móti börnum á öllum aldri í Dimmuborgum alla daga frá klukkan 13 til 15,“ segir Yngvi Ragnar og heldur áfram: „Börnin geta spjallað við sveinana og jafnvel sest í sætið þeirra sem er úr hrauni inni á svokallaðri Hallarflöt. Einnig taka jóla- sveinarnir lagið ef vel liggur á þeim og gefa börnun- um epli. Síðan geta börnin fengið mynd af sér með sveinunum á jólakort.“ Flestir gestir koma frá dölunum í kringum Mý- vatnssveit, frá Akureyri, Húsavík og Egilsstöðum, en nú eru að bætast í hópinn gestir frá Reykjavík og að utan að sögn Yngva Ragnars. Sveinarnir eru einnig á flandri um sveitina og hafa sveitungar tekið þeim mjög vel. „Flestir héldu að ég væri eitthvað skrítinn þegar ég ákvað að fara í samstarf við jólasveinana. Sex árum síðar eru hins vegar ferðamenn um þúsund í desem- ber, þar sem áður var ekki neinn, svo það er talsverð- ur munur á stuttum tíma,“ segir Yngvi Ragnar, sem stundar annars alhliða ferðaþjónustu í Mývatnssveit. „Ég starfa bara með jólasveinunum frá því þeir koma til byggða og þangað til þeir hverfa til síns heima á þrettándanum. Samt hef ég heyrt af því að sést hafi til þeirra utan þess tíma, en þeir hafa ekki leyfi til að fara út fyrir Dimmuborgir nema um jólin,“ segir Yngvi Ragnar, sem hefur tekið á móti 700 gestum það sem af er ári og býst við enn fleirum fram að jólum. Allar nánari upplýsingar um sveinana er að finna á: http://santaworld.is/is/Jolasveinninn/ - rh Heimboð til sveinanna í Mývatnssveit ● Jólasveinarnir í Dimmuborgum hafa leikið lausum hala í mörg hundruð ár að sögn Yngva Ragnars Kristjánssonar sem lék við þá sjálfur sem lítill strákur. Finnskur útivistarfatnaður frá North Ice Vatnshelt og vindþétt. Innifalið: Jakki og buxur, fl íspeysa, fl ís millilag, bolur, húfa og sokkar. Kr 17.500,- Icefi n • Nóatúni 17 • s: 5343177 www.icefi n.is Fjörið í Dimmuborgum er mikið þessa dagana enda aðeins nokkrir dagar til jóla. Jólasveinarnir í Dimmuborgum taka á móti gestum alla daga fram að jólum. Krakkarnir geta sest í sæti jólasveinanna og látið fara vel um sig í vetrarríki Mývatnssveitar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.