Fréttablaðið - 19.12.2007, Page 56

Fréttablaðið - 19.12.2007, Page 56
36 19. desember 2007 MIÐVIKUDAGUR Í flóðinu hefur ekki farið mikið fyrir bók Hrafns Jökulssonar, Þar sem vegurinn endar, utan hrós- yrða í auglýsingum þar sem texta hans er líkt við blávatn, hann sé svo tær. Bókin sjálf er ekki mikil að vöxt- um, snoturlega brotin á 144 síðum í litlu broti, gott rúm gefið í lok kafla og upphaf. Hún fellur undir það sem kalla má æviminningar, þótt minningabrotin séu í raun afar fá, en samt um margt býsna athyglisverð. Þess á milli reikar höfundurinn um bókasafnið og umskrifar texta sem varða ramma verksins, upphafsár hans í sveit á Ströndum þar sem hann er niðurkominn við bókarlok: líkingin um sveit- ina þar sem vegurinn endar og þar sem vegurinn hefst er falleg og það má Hrafn eiga að bókina alla einkennir fallegur tónn þótt efnið sé ekki alltaf þess eðlis að fegurðin komi fyrst í hugann. Þetta er sérkenni- leg blanda af játn- ingum um örfáa staði í lífshlaupi söguhetjunnar: afvötnun í Winni- peg, tuttugasti og eitthvað dagur á túr, Bosnía, dánartil- kynning á Drafnarstíg, voðaverk í Þórskaffi, falleg minning um bernskuvinkonu og sorgleg enda- lok hennar. Þar sem Hrafn gengur næst sjálfum sér og stöðu sinni í tilvist þessa heims tekst honum best upp og þó hugsar lesandinn: því var ekki meira af slíku, sam- felldari og fleiri myndum úr lífi hans? Víst er greinargerð hans um sumardvöl á Ströndum um margt skemmtileg, sposk í aðdáun hans og fjarlægð á bernsku í sveit við ysta haf, en dugar samt ekki sem lím í söguna þótt vel sé hún víða stíluð og henni niðurskipað af smekkvísi manns sem kann vel að stýra frásögn. Hinn partinn af lýsingu sinni á lífi til forna á Ströndum sækir hann í forn rit, Finnbogasögu ramma, þá skemmtilegu drengjabók, Sturlungu og yngri annála. Allt er það prýðilega umskrifað, en breytir ekki því að allt ritið, fortíð forn og ný, tíminn sem okkur er næstur, gerir fátt annað en vekja hjá lesanda löng- un eftir meiru. Bókin er sundur- laus, en skemmtileg, reykur af rétti sem Hrafni Jökulssyni öðlast vonandi einhvern tíma að koma á hlóðir þegar hann gerir upp sitt registur í okkar táradal. Páll Baldvin Baldvinsson. Hrafnssaga Þau leiðinlegu mistök urðu í Fréttablaðinu í gær að gefin var upp röng dagsetning á tónleik- um Dómkórsins. Það er nefni- lega eftir lokun verslana í kvöld, en ekki annað kvöld, sem fólki býðst tækifæri til að koma í Dómkirkjuna og hlýða á kyrrláta og ljúfa jólatónlist við kertaljós. Hlutaðeigandi aðilar eru beðnir velvirðingar á mistökunum. Á efnisskrá Dómkórsins í kvöld eru mótettur eftir Praetorius, Eccard og Brahms og jólasálmar í fallegum útsetningum. Tónleikarnir hefjast kl. 22 og er aðgangur ókeypis. Stjórnandi Dómkórsins er Marteinn H. Friðriksson. - vþ Rétt dagsetning Dómkórsins Í kvöld fer fram þriðji og síðasti upplesturinn á Boston við Laugaveg 28b. Þar koma fram rithöfundar og listamenn og kynna áhugaverðar bækur sem koma út nú fyrir jólin. Halldóra Thoroddsen kynnir bók sína sem kallast Aukaverkanir. Í henni kemur fram og segir sögur gamaldags og tilgerðarlegur skrásetjari sem segir sögur sínar knúinn áfram af sannleiksþrá í anda upplýsingarinnar. Kynnt verður bókin Óraplágan eftir slóvenska heimspekinginn Slavoj Žižek. Hann er í hópi þekktustu samfélagsrýna samtímans og vakti eðlilega óskipta athygli flestra þegar hann sótti Ísland heim í mars síðastliðnum. Óraplágunni mætti lýsa sem vitsmuna- legri rússíbanareið þar sem vísunum í alþekktar kvikmyndir og hversdagsleg menningarfyrirbæri er blandað saman við kenningar merkustu heimspekinga. Lesið verður úr bókinni Söngvar steinasafnarans eftir Sjón. Sjón þarf vart að kynna þar sem hann er einn af okkar framsæknustu rithöfundum og hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir skrif sín. Gaman er að geta þess að Söngvar steinasafnarans eru einmitt tilnefndir til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í ár. Síðast en ekki síst kynna þeir Bragi Ólafsson og Einar Örn Benediktsson bókina Mátunarklefinn og aðrar myndir. Bókin sú er langt frá því að vera fyrsta samstarfsverkefni þeirra félaga, þar sem þeir hafa unnið saman að listsköpun og skólaverkefnum frá árinu 1981. Í kvöld heldur samstarf þeirra áfram þar sem Einar Örn mun fremja teiknigjörning undir lestri félaga síns Braga. Upplesturinn hefst stundvíslega kl. 20. Boðið verður upp á jólaglögg og piparkökur. - vþ Síðasti upplestur á Boston BRAGI ÓLAFSSON Les upp á Boston við Laugaveg í kvöld. BÓKMENNTIR Þar sem vegurinn endar Hrafn Jökulsson ★★★ Snotur en brotakennd sjálfsmynd Salurinn 7. og 8. des uppselt 30. des Gefum góðar stundir Gjafakort í Þjóðleikhúsið er frábær jólagjöf fyrir alla fjölskylduna! ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sími 551 1200 www.leikhusid.is Gjafakort fyrir tvo á Skilaboðaskjóðuna og geisladiskur á kr. 5.500 Jólatilboð 1. prentun á þrotum GJAFABRÉF – TILVALIN JÓLAGJÖF MÁLMUR STEINN TRÉ ÍHLUTIR SILFUR KVEIKING NÁMSKEIÐ SÖGUN BORUN SLÍPUN ÚTSKURÐUR VÉLAR RENNIBEKKIR SKRÚFUR KLUKKUR FESTINGAR Opið lau - sun 10 –16 • opið 17. – 23 desember 10 – 21 Handverkshúsið Bolholt 4, 105 Rvk. Sími: 555 1212 Vefverslun: handverkshusid.is Námskeið - vélar - verkfæri - bækur Jó la ti lb oð á ha nd ve rk sh ús ið .is (áður Hjá Gylfa, Hafnarfirði) Hringdu og við sendum Silfurleirssett 4.950 kr. 20% afsl Steinatromla 8.500 kr. 15% afsl Útskurðarsett 11.750 kr. 15% afsl Smáfræsari 6.950 kr. 20% afsl

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.