Fréttablaðið - 23.02.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Er ekki kominn tími á vorhreingerningu?
Skráðu smáauglýsinguna á visir.is eða
hringdu í síma 512 5000 og seldu gamla
dótið með lítilli fyrirhöfn.
Allt sem þú þarft – alla daga
18.– 29. febrúar. Verð frá 990 kr.
Kompudagar í
smáauglýsingunum
Sími: 512 500023. febrúar 2008 — 53. tölublað — 8. árgangur
● hús&heimili
Koníakið hans Eiríks er aðallega til skrauts. Taurullan og skinnskórnir
taka sig líka vel út.
Vel hlaðin varða, smekkleg stétt með útilýsingu og stytta
af vinalegu pari á bekk vekja athygli utan við hús Þóru og
Eiríks. Húsið hafa þau átt í bráðum ellefu ár, það er annar
endi þriggja íbúða raðhúss. Ásamt nágrönnum sínum hafa
þau prýtt í kringum sig utan dyra og uppskorið viðurkenn-
ingu bæjarins fyrir fallega aðkomu, frágang og samvinnu.
Umhverfið gefur tóninn fyrir það sem við tekur innan
dyra.
Heimilið er á tveimur hæðum og hlýlegt með afbrigðum
enda öllu smekklega fyrir komið. Erfðagripir eiga þar
sinn sess innan um vandaða muni úr eigin búskap þeirra
hjóna. „Við höfum gaman af fallegum hlutum,“ viðurkenn-
ir Þóra. „Erum með ýmislegt í kringum okkur frá foreldr-
um, ömmum, öfum og mínum ömmusystrum. Það er eitt-
hvað sem við höfum ekki tímt að láta frá okkur enda finnst
okkur skemmtilegt að blanda saman gömlu og nýju.“ - gun
Gamalt og nýtt í góðri blöndu
● Á heimili Þóru Erlendsdóttur og Eiríks Þorleifssonar við Vörðuberg í Hafnarfirði er hver hlutur á sínum stað, hvort sem hann er forn eða nýr.
Í rokkókóhorninu eru útsaumuð húsgögn og aðrir munir frá móður-
fólki Þóru.
Svefnherb
Bogadreginn veggur er milli eldhússins og stofunnar.
23. FEBRÚAR 2008 LAUGARDAGUR
4
H
Ú
S&
H
EI
M
IL
I
AÐ BJARGA EINU BARNI
Njörður P. Njarðvík og eigin-
kona hans Bera Þórisdóttir
hafa unnið mikið mannúð-
arstarf í Tógó þar sem þau
settu á fót samtökin SPES.
Styrkir úr Tónlistarsjóði
Íslenskt tónlistarlíf nýtur góðs af
innspýtingu fjármagns til útrásar
og annarra verkefna.
MENNING 46
HELGAREFNI 28&30
LAUGARDAGUR
VEÐRIÐ Í DAG
FÉKK HLÁTURSKAST ÞEGAR VIÐ UNNUM
Óskar Páll Sveinsson er eini Íslending-
urinn sem hefur unnið Eurovision. 36
Nýjar 1 lítra umbúðir
ÚRKOMULOFT Í dag verður austan
og síðar norðaustan átt, yfirleitt
8-15 m/s, hvassast syðra. Rigning
eða slydda allra syðst en snjókoma
til landsins. Úrkomulítið norðan til í
fyrstu en snjókoma eða él síðdegis.
VEÐUR 4
0
-3 -4
-1
3
SKIPULAGSMÁL World Trade Center
rís á hafnarbakkanum í Reykja-
vík. Reyndar ekki tveir risastórir
turnar eins og þeir sem hrundu í
New York, heldur World Trade
Center Reykjavík, 16.000 fer-
metra viðskiptamiðstöð. Bygging-
ar World Trade Center er að finna
í þrjú hundruð borgum í nálægt
eitt hundrað löndum. Húsið
verður kennt við World Trade
Center en stærstur hluti þess
verður leigður út til ýmissa aðila.
Viðskiptamiðstöðin er hönnuð
af sömu aðilum og hönnuðu Nýja
tónlistar- og ráðstefnuhúsið og
hótelið. World Trade Center
Reykjavík verður tekið í notkun
árið 2010 eða 2011. -glh/ sjá síðu 58
Uppbygging á hafnarbakka:
World Trade
Center á Íslandi
VIÐSKIPTI „Danske bank er meira en velkominn í hóp
okkar hluthafa,“ segir Júlíus Þorfinnsson, fram-
kvæmdastjóri samskiptasviðs FL Group.
Danske bank er skráður fyrir 1,1 prósents hlut í
félaginu. Einnig er ríflega tveggja prósenta hlutur í
Exista í nafni bankans. Það gerir Danske bank að
tíunda stærsta hluthafanum í Exista. Þá er Danske
bank einnig tíundi stærsti hluthafinn í SPRON, með
tveggja prósenta hlut.
Viðskiptin fóru fram í vikunni en upplýsingar um
þau komu fram í gær.
Júlíus Þorfinnsson segir að ekki liggi fyrir hvort
Danske bank eigi hlutinn í FL Group sjálfur, eða hvort
hann sé keyptur fyrir viðskiptavini bankans. „Þetta er
ekki það stór hlutur að við sjáum ástæðu til að rann-
saka það sérstaklega.“
Ekki hafa fengist upplýsingar um hvort bankinn
sjálfur standi á bak við eignina í hinum félögunum.
Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst eru eignar-
hlutir í nafni Danske bank þó ekki komnir til vegna til-
færslna; það er að raunverulegir eigendur bréfanna
hafi einfaldlega skipt um banka.
Greiningardeild Danske bank hefur oft lýst efa-
semdum um íslenskt fjármálalíf og -fyrirtæki. - ikh
Óljóst hvort Danir eru á bak við stóra eignarhluti í FL Group, Exista og Spron:
Danske bank stór hluthafi
BÍLAR Rekstrarkostnaður jeppa sem
keyptur er nýr getur farið yfir
tvær milljónir króna árlega
samkvæmt nýjum útreikningi
Félags íslenskra bifreiðaeigenda.
Eldsneytiseyðsla, viðhald, skattar,
tryggingar, verðmætatap og vextir
eru grunnur þessara kostnaðar-
reikninga en við útreikninga er
stuðst við bíl sem kostar 5.800.000
krónur.
Þyngst vegur kostnaður vegna
notkunar og verðrýrnunar en
bifreiðar falla hlutfallslega meira í
verði fyrsta árið en næstu tvö til
þrjú árin þar á eftir, verðfall á milli
ára eykst oft aftur þegar bifreið er
orðin meira en fjögra ára.
sjá Allt í miðju blaðsins
Dýrt að reka jeppa:
Verðrýrnun
mest fyrsta árið
FRAMTÍÐIN Teikningar af innviðum
World Trade Center sem rísa mun í
Reykjavík.
Í BOLTABAÐI Krakkarnir í Öskjuhlíðarskóla kunna vel að meta nýja skynörvunaraðstöðu skólans. Um er að ræða sérstakt boltabað
sem komið var upp fyrir gjafafé sem skólanum barst frá Spítalasjóði Hringsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÆGIR SKER EKKI Á TRYGGÐABÖNDIN
Ulf M. Berthelsen hættir sem skip-
stjóri á Vædderen 38
BREIÐAVÍK „Við viljum að allir
sem voru vistaðir í Breiðavík
fái greiddar skaðabætur. Það er
klárt að séu menn látnir á upp-
hæðin að renna til afkomenda
þeirra,“ segir Georg Viðar Björns-
son, formaður Breiðavíkursam-
takanna, en af þeim 158 drengj-
um sem vistaðir voru á heimilinu
eru 33 látnir.
„Breiðavíkurstrákarnir ætla að
standa vörð um réttindi þeirra
sem látnir eru og barna þeirra,“
segir Óli Svend Styff, sem einnig
dvaldi í Breiðavík á barnsaldri.
Páll Rúnar Elísson, einn Breiða-
víkurdrengjanna, segir skýrsluna
hafa gríðarlega mikla þýðingu
fyrir sig þar sem í henni felist
viðurkenning á þeim brotum sem
hann varð fyrir sem barn. Hann
segir þá niðurstöðu nefndarinnar
að Breiðavíkurdrengir eigi rétt á
bótum einnig mikla viðurkenn-
ingu. „Ég sakna þess hins vegar
að sjá ekki sérstaklega fjallað um
þann missi sem við urðum fyrir í
tengslum við menntun á heimil-
inu,“ segir Páll. Hann segir flesta
drengjanna aðeins hafa átt kost á
láglaunastörfum vegna þess hve
takmarkaða menntun þeir höfðu
eftir veruna á Breiðavík.
Gylfi Thorlacius hæstaréttar-
lögmaður, sem mikið hefur starf-
að á sviði skaðabótaréttar, segir
ólíklegt að erfingjar þeirra sem
voru á Breiðavík en eru nú látnir
geti fengið bætur sé miðað við
almenn skaðabótalög. „Þetta er
samt mjög sérstakt mál og um
það verður sett sérstök löggjöf.
Mér þykir þó mjög langsótt að
erfingi geti gert tilkall til
bótanna.“ - kdk/ sjá síðu 6
Ættingjar fái bætur
látinna vistmanna
Breiðavíkursamtökin vilja að ættingjar þeirra 33 Breiðavíkurdrengja sem
látnir eru fái sömu bætur og verða dæmdar þeim sem eru á lífi.