Fréttablaðið - 13.03.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
FIMMTUDAGUR
13. mars 2008 — 72. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Fegurðardrottningin Jóhanna Vala Jónsdóttir
fékk einstakan jakka að gjöf frá kærastanum.Jóhanna Vala Jónsdóttir, Ungfú Ísland 2007, fékk
jakka sem hún heldur mikið upp á að gjöf frá
kærasta sínum þegar hann kom að heimsækja hana í
Miss World-keppnina í Kína á síðasta ári Kepp i
fór fram í nóvember og fda til
er þó mikið fyrir svartar og dökkbláar gallabuxur,
stígvél og flottar peysur. Ég er ekki mjög hrifin af
retro-stíl og fell frekar fyrir klassískum fötum.“
Jóhanna Vala er líka gefin fyrir kjóla af ýmsu tagi
„Ég á frekar mikið af kjólum eftir knýtt þá vel í Kí
Jakkinn keyptur í Kína
Jóhanna Vala er að fara að flytja til Flórída en kemur þó heim til að krýna arftaka sinn í vor og til að starfa sem flugfreyja hjá Icelandair í sumar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
KLASSÍSK TÍSKAParísartízkan hefur verið starfrækt í 45 ár og er því ein elsta tískuverslun landsins.
TÍSKA 2
ALLT Í BLÓMAMademoiselle er litríkur stóll úr plasti og plexigleri eftir hönnuðinn Philippe Starck.
HEIMILI 5
Erum í Dugguvogi 2 Sí i
ALLTAF BESTA VERÐIÐ
VEÐRIÐ Í DAG
Víkingarnir
eru komnir
til borgar-
innar
Einherjar, fyrsta
víkingafélagið
í Reykjavík,
stofnað.
TÍMAMÓT 36
JÓHANNA VALA JÓNSDÓTTIR
Fellur frekar fyrir
klassískum fötum
tíska heilsa heimili bílar
Í MIÐJU BLAÐSINS
VelduektaMyllu
Heimilisbrauð
- brauðið sem allir
á heimilinu velja
da
gar
til paska
i
101
FERMINGAR
Fjármál, veisluföng
og gjafir
SÉRBLAÐ UM FERMINGAR
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
fermingarFIMMTUDAGUR 13. MARS 2008 Fermingargjafirfyrir tæknifrík
BLS. 6
BBC vill Helgu
Brögu
Íslenska leikkonan
á fund með for-
svarsmönnum
breska ríkis-
sjónvarpsins.
FÓLK 58
Dómarar í fréttum
Sigurður Líndal telur að á dómara
sé hallað í fjölmiðlum og hvetur
fréttamenn til að fara eftir eigin
siðareglum.
UMRÆÐAN 26
Vann alla leikina
sína
Kvennalandsliðið í
fótbolta tryggði sér
7. sætið á Algarve Cup í
gær.
ÍÞRÓTTIR 52
BJART SYÐRA Í dag verður norðan
strekkingur norðvestan og vestan til,
annars hægari. Rigning eða slydda
norðan og austan til, skúrir eða él
á Vestfjörðum en bjart með köflum
syðra. Hiti 0-7 stig, mildast SA-til.
VEÐUR 4
0
2
3
3
2
EFNAHAGSMÁL Ríflega 200 millj-
arðar króna hafa bæst við skuldir
almennings, undanfarin fjögur
ár, vegna verðbóta sem bætast
við höfuðstól verðtryggðra lána.
Verðtryggð lán heimilanna
námu tæplega 1.300 milljörðum
króna um áramótin. Verðbætur
sem bæst höfðu við höfuðstól
lánanna á seinasta fjórðungi síð-
asta árs námu þá ríflega 31,5
milljörðum króna.
Frá miðju ári 2004, þegar
bankarnir komu inn á húsnæðis-
markaðinn, hafa verðbæturnar
alls numið 214 milljörðum króna
á núverandi verðlagi.
Þetta jafngildir því að tæplega
1,7 milljónir króna hafi bæst við
skuldir hvers heimilis í landinu.
Þetta er yfir hálf milljón króna á
hvert mannsbarn.
Tólf mánaða verðbólga nam
1,8 prósentum í mars 2004, en
hefur síðan verið hærri og
nemur nú 6,8 prósentum. Á tíma-
bilinu mældist verðbólga hæst í
hitteðfyrra, þegar hún var milli
sjö og átta prósent meirihluta
ársins.
Á sama tíma hafa laun fólks
einnig hækkað. Þegar bornar
eru saman verðlagshækkanir og
launahækkanir á sama tímabili
sést að að jafnaði hafa launin
hækkað umfram verðlag. Með
öðrum orðum hefur kaupmáttur
aukist að jafnaði.
Ólafur Darri Andrason, hag-
fræðingur Alþýðusambandsins,
benti á það í blaðinu í gær að líta
mætti á verðtryggingu sem leið
til að lifa við óstöðugleika, hún
væri heppilegri fyrir fólk til
skemmri tíma, út frá greiðslu-
byrði. „Neytendur geta í raun
frestað því að greiða niður verð-
bólguskot, ef lánið er til langs
tíma. Til lengri tíma litið er þessi
leið hins vegar mjög dýr.“
- ikh
Skuldir almennings hafa
aukist um 200 milljarða
Hátt í tvær milljónir króna hafa bæst við lán hvers heimilis í landinu undanfarin fjögur ár, vegna verð-
bólgu. Í heild nemur hækkunin 200 milljörðum króna. Á sama tíma hafa laun hækkað umfram verðlag.
UTANRÍKISMÁL Mikill áhugi er fyrir
samvinnu Íslands og Mexíkó,
meðal annars í virkjun jarðhita,
fiskiðnaði og háskólarannsóknum.
Þetta er meðal þess sem Ólafur
Ragnar Grímsson forseti ræddi
við Felipe Calderón, forseta
Mexíkó, í opinberri heimsókn
sinni til landsins sem hófst í fyrra-
dag. Hann er fyrsti forseti Íslands
sem fer í opinbera heimsókn til
Mexíkó.
Ólafur Ragnar ávarpaði gesti í
móttökuathöfn og sagði komu sína
marka tímamót í samstarfi þjóð-
anna beggja. Ísland hefði sýnt
hvernig ein þjóð gæti á stuttum
tíma skapað hagkerfi sem byggði
á hreinni orku. Nú væri komið að
Íslendingum að bjóða Mexíkóum
þá tækni og reynslu sem við hefð-
um aflað okkur.
„Löndin okkar geta unnið
saman á fleiri vegu, til dæmis
með því að ýta undir skapandi
menningu, koma á fót tækni- og
vísindatengdum samvinnuverk-
efnum og styrkja tengsl háskóla
okkar,“ sagði forsetinn í hádegis-
verðarboði síðar um daginn.
Í dag fer forsetinn til borgar-
innar Xalapa í ríkinu Veracruz,
þar sem hann heimsækir háskóla,
heldur fyrirlestur í umhverfis-
stofnun og ræðir við forráðamenn
ríkisins. - sþs
Ólafur Ragnar er fyrsti forseti Íslands sem fer í opinbera heimsókn til Mexíkó:
Tímamót í samstarfi þjóðanna
GOTT SAMSTARF Ólafur Ragnar Grímsson forseti ávarpar gesti við móttökuathöfn í Mexíkóborg. Við hlið hans er Dorrit
Moussaieff forsetafrú. Felipe Calderón, forseti Mexíkó, og eiginkona hans, Margarita Zavala, fylgjast með. NORDICPHOTOS/AFP
NEYTENDAMÁL Þó að verð hjá
framleiðendum páskaeggja hafi
hækkað hefur verð á páskaeggj-
unum í nokkrum matvöruversl-
unum lækkað frá því í fyrra.
Fréttablaðið gerir árlega
verðkönnun á páskaeggjum frá
Nóa-Síríusi, Góu og Freyju.
Könnuð var ein tegund frá
hverjum framleiðanda og eru öll
páskaeggin ódýrari í ár í Fjarðar-
kaupum en þau voru í fyrra. „Það
er bara samkeppnin við lágvöru-
verslanirnar sem fær okkur til að
lækka verðið,“ segir Gísli
Sigurbergsson, verðlagsstjóri
Fjarðarkaupa. Einnig hafði verð
lækkað frá því í fyrra á þeim
páskaeggjum sem könnuð voru í
Bónus.
Ódýrasta páskaeggið sem var
skoðað var Góupáskaegg keypt í
Fjarðarkaupum en það er þó
aðeins dýrara en Bónuspáska-
eggið af sömu stærð. - jse / sjá síðu 23
Verð á páskaeggjum:
Ódýrari páska-
egg en í fyrra
MARS 2004 DESEMBER 2007
300
250
200
SAMANBURÐUR Á HÆKK-
UN LAUNA OG VERÐLAGS
Laun hafa að jafnaði
hækkað umfram
verðlag undanfarin ár.
■ Launavísitala
■ Vísitala neysluverðs