Fréttablaðið - 13.03.2008, Qupperneq 2
2 13. mars 2008 FIMMTUDAGUR
noatun.is
LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ
Létt og ljúffengt
30% afsláttur
489 kr.kg.
Móa kjúklingaleggir
LÖGREGLUMÁL Íslendingurinn sem
setið hefur í gæsluvarðhaldi í
Færeyjum frá 20. september
vegna meintrar aðildar að Pól-
stjörnumálinu er enn í einangrun.
Hann var síðast úrskurðaður í
áframhaldandi gæsluvarðhald og
einangrun 7. mars. Hann áfrýjaði
til æðra dómsstigs, sem staðfesti
úrskurðinn á mánudag. Maðurinn
sem er 25 ára hefur setið í ein-
angrun í rétta tæpa fimm mánuði,
eða megnið af tímanum frá því að
hann var handtekinn.
Frá þessu greinir Linda Marg-
arete Hasselberg, saksóknari í
málinu, í samtali við Fréttablaðið.
Hún segir enn fremur að gæslu-
varðhald yfir manninum renni
næst út 4. apríl. Þá verði krafist
áframhaldandi gæsluvarðhalds-
vistar og einangrunar þar til vitna-
leiðslur hafi farið fram í dómssal,
en þar verður málið tekið fyrir 7.
apríl.
Íslendingurinn er ekki einungis
ákærður fyrir vörslu á 1,8 kílóum
af e-töfludufti og amfetamíni.
Hann er einnig ákærður fyrir að
hafa tekið á móti og haft í vörslu
sinni tæplega fjörutíu kíló af amf-
etamíni, e-töflum og e-töfludufti
meðan Pólstjörnumennirnir höfðu
viðdvöl með skútu sína í Færeyj-
um. Henni sigldu þeir síðan hing-
að til lands með fjörutíu kílóin
innan borðs eins og kunnugt er og
voru teknir af lögreglu við kom-
una til Fáskrúðsfjarðar. Sakborn-
ingarnir í því máli hafa hlotið
þunga dóma. Tæp tvö kíló af efn-
unum fundust eftir heimsókn Pól-
stjörnumannanna í skotti bifreið-
ar Íslendingsins í Færeyjum.
„Ákvörðunin þann 7. mars um
áframhaldandi gæsluvarðhald og
einangrun var tekin á þeim grunni
að koma í veg fyrir að maðurinn
geti haft áhrif á yfirstandandi rann-
sókn lögreglu, til að mynda á vitni,“
segir saksóknari. „Þegar það
rennur út þann 4. apríl verður kraf-
ist framlengingar yfir honum til 11.
apríl, eða þar til aðalmeðferð máls-
ins lýkur. Þess verður krafist að
hann sæti bæði gæsluvarðhaldi og
einangrun til loka hennar. Eftir það
getur hann ekki haft áhrif á fram-
burð vitna. Loks fer það eftir þyngd
dómsins hvort sett verður fram
krafa um að maðurinn hefji afplán-
un strax og hann liggur fyrir.“
Saksóknari segir að samtals ell-
efu vitni verði leidd fyrir dóminn.
Þau séu frá Færeyjum, Íslandi og
Danmörku. Það verður síðan í
höndum kviðdóms að ákvarða sekt
eða sýknu Íslendingsins.
jss@frettabladid.is
Í einangrun í fimm
mánuði í Færeyjum
Íslendingur sem handtekinn var í Færeyjum í september vegna vörslu fíkniefna
og aðildar að Pólstjörnumálinu er enn í einangrun. Þess verður krafist að hann
verði í einangrun til 11. apríl eða þar til aðalmeðferð málsins lýkur.
FÆREYJAR Samtals ellefu vitni verða leidd fram í dómssal í Færeyjum þegar aðalmeðferð í máli Íslendingsins fer fram. Þess
verður krafist að hann sitji í gæsluvarðhaldi og einangrun þar til vitnaleiðslum er lokið.
KÝPUR, AP Tilkynnt var í gær að
leiðtogar Kýpur-Grikkja og Kýpur-
Tyrkja myndu eiga fund hinn 21.
mars til að hefja nýja viðræðulotu
um endursameiningu eyjarinnar
eftir 35 ára klofning.
Jose Diaz, talsmaður skrifstofu
Sameinuðu þjóðanna á Kýpur,
greindi frá því að Dimitris
Christofias Kýpurforseti og
Mehmet Ali Talat, leiðtogi Kýpur-
Tyrkja, myndu koma saman þennan
dag, eftir að aðstoðarmenn þeirra
komu sér saman um dag skrá, stað
og dagsetningu fundarins. Meðal
brýnustu mála á fundinum verður
að opna á ný landamærastöðvar á
milli eyjarhlutanna. - aa
Endursameining Kýpur:
Fyrsti fundur
21. mars
ALÞINGI Enn er óljóst hvort
allsherjarnefnd mun afgreiða
frumvarp Valgerðar Bjarnadótt-
ur Samfylking-
unni um
breytingar á
eftirlaunarétti
þingmanna,
ráðherra og
hæstaréttar-
dómara.
Á nefndar-
fundi í gær var
rætt um hvaða
þingmannamál
yrðu tekin til
meðferðar, án
þess að niðurstaða fengist.
Jafnframt á nefndin eftir að
grennslast fyrir um ætlan
ríkisstjórnarinnar í málinu en í
stjórnarsáttmálanum er kveðið á
um endurskoðun eftirlaunakjara
þingmanna og ráðherra.
Fyrir allsherjarnefnd liggja
ellefu þingmannafrumvörp og
sjö þingsályktunartillögur. - bþs
Störf allsherjarnefndar:
Óvíst um afnám
eftirlaunalaga
BIRGIR
ÁRMANNSSON
ALÞINGI Einhleypar konur fá að
gangast undir tæknifrjóvgun,
samkvæmt orðum Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar heilbrigðisráðherra á
Alþingi í gær.
Í svari við fyrirspurn Kolbrúnar
Halldórsdóttur VG sagði Guðlaug-
ur nefnd sem vinnur að endurskoð-
un laga um tæknifrjóvganir skila
af sér tillögum í kringum páska.
Hann gaf sterklega til kynna að í
því væri gert ráð fyrir að einhleyp-
ar konur mættu gangast undir
tæknifrjóvgun en kvaðst ekki geta
úttalað sig um það enda hefði
nefndin ekki lokið störfum. - bþs
Guðlaugur Þór Þórðarson:
Einhleypar fái
tæknifrjóvgun
UMHVERFISMÁL „Hún er greinilega
ekki hrifin af þessu og ég sakna
þess að hún hafi aldrei haft jákvæð
orð um þetta verkefni,“ segir Árni
Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanes-
bæjar.
Hann bregst hér við orðum
Þórunnar Sveinbjarnardóttur
umhverfis ráðherra, sem sagði það
vafasama stjórnvaldsákvörðun að
veita Norðuráli framkvæmdaleyfi
til álvers í Helguvík.
Sveitarstjórnir í Garði og í
Reykjanesbæ samþykktu þetta í
gær með miklum meirihluta
atkvæða; allra sveitarstjórnar-
manna Reykjanesbæjar og allra
utan eins í Garði.
Ráðherra lýsti í gær yfir undrun
sinni með ákvörðun sveitarstjórn-
anna, þar sem kæra Landverndar
vegna umhverfismats væri enn til
skoðunar í ráðuneytinu. Auk þess
væri óvíst með virkjanakosti, flutn-
ingsleiðir raforku og losunarheim-
ildir.
„En það liggja fyrir samningar
um orkuöflun fyrir fyrsta áfanga,
150.000 tonna álveri,“ segir Árni.
„Svo segir hún einnig að við förum
af stað áður en afstaða ráðuneytis-
ins til kæru Landverndar liggur
fyrir. En kæran snýr ekki að því að
breyta afstöðu Skipulagsstofnunar,
heldur að því hvort fram skuli fara
heildstætt mat á umhverfis-
áhrifum.“ Þetta snúist um hvað
komi úr hvaða borholu og leiðslu og
sé erfitt að meta, segir Árni. - kóþ
Álver í Helguvík samþykkt með rússneskri kosningu á Suðurnesjum í gær:
Árni saknar stuðnings ráðherra
ÁRNI SIGFÚSSON Bæjarstóri Reykja-
nesbæjar segir liggja fyrir samninga um
orkuöflun fyrir fyrsta áfanga álvers.
BANDARÍKIN, AP Ríkisstjóri New
York, Eliot Spitzer, sagði í gær
stöðu sinni lausri eftir að upp
komst um kaup hans á vændi. Við
starfi hans tekur David Paterson,
sem verður fyrsti þeldökki
ríkisstjóri New York.
Upp komst um hneykslið á
mánudag, en Spitzer er sagður
hafa greitt vændiskonum
þúsundir dollara fyrir kynlífs-
greiða. Í starfi sínu hafði hann
lagt mikla áherslu á baráttu gegn
spillingu og glæpum, meðal
annars vændi. Þetta var hans
fyrsta kjörtímabil.
Spitzer, sem er demókrati, er
giftur og á þrjár dætur. - sgj
Vændishneyksli ríkisstjóra:
Ríkisstjóri New
York segir af sér
NÁTTÚRA Framhald verður á aðgerðum sem gripið
var til síðastliðið vor til að bæta afkomu anda á
Reykjavíkurtjörn, segir Gísli Marteinn Baldursson,
formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur-
borgar. Hann vonast til þess að mælanlegur árangur
sjáist á næstu árum.
Í nýrri skýrslu um ástand fuglalífsins á tjörninni
kemur fram að ástandið sé afar slæmt. Síðasta
sumar komu aðeins grágæsir upp ungum á tjörninni
eða í friðlandi fugla í Vatnsmýri.
„Ég er mjög eindregið þeirrar skoðunar að tjörnin
sé eitthvert mesta friðland fólksins í borginni. Það
er ótrúlegt hvað hún er mikil vin í asa borgarinnar,“
segir Gísli Marteinn.
Skýrsluhöfundar benda á að meðal þess sem
borgin ætti að gera til að bregðast við ástandinu sé
að ráða sérstakan umsjónarmann með fuglalífi
tjarnarinnar, svokallaðan „andapabba“.
„Við munum skoða það vel. Við höfum hingað til
litið svo á að garðyrkjustjóri og hans góða fólk geti
sinnt þessu líka. En ef það þarf andapabba til mun
ekki standa á okkur,“ segir Gísli.
Meðal þeirra aðgerða sem framhald verður á eru
úrbætur á hólmunum í tjörninni, segir Gísli Mart-
einn. Þá sé mikilvægt að gróður fái að slúta fram í
tjörnina til að skýla andarungum, og auka aðgengi
milli tjarnar og friðlandsins í Vatnsmýrinni. - bj
Formaður umhverfisráðs borgarinnar segir Reykjavíkurtjörn vin í asa borgarinnar:
Andapabbi ekki útilokaður
FUGLALÍF Engir andarungar komust á legg á Reykjavíkurtjörn
síðasta sumar. Aðeins grágæsavarpið gekk vel.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÖGREGLUMÁL „Ég vona að þetta
mál leysist, ef óvissunni verður
ekki eytt fljótlega fer þetta að
hafa neikvæð áhrif á starfsem-
ina hjá okkur,“ segir Guðbjörn
Guðbjörnsson, formaður
Tollvarðafélags Íslands, um
fyrirhugaðan niðurskurð hjá
lögregluembættinu á Suðurnesj-
um. „Ég treysti Birni [Bjarna-
syni dómsmálaráðherra]
fullkomlega fyrir að leysa þetta,
en auðvitað hafa menn áhyggjur
af niðurskurðinum.“
Lögreglumenn og tollverðir
funda um málið í Duus-húsum í
Reykjanesbæ klukkan átta í
kvöld. Þingmenn og ráðherrar
eru velkomnir. - sþs
Niðurskurður hjá lögreglu:
Vonar að málið
leysist sem fyrst
Sveinn, er fólk hætt að stóla á
dómstólana?
„Þegar það gerist rennur upp dóms-
dagur.“
Traust í garð dómstóla landsins mælist
lágt í könnunum og uppi eru hugmyndir
um að þeir ráði sér fjölmiðlafulltrúa.
Sveinn Andri Sveinsson er lögmaður.
Köttur, brúsi og bakaraofn
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafði
í nógu að snúast í gærkvöldi. Köttur
sat fastur uppi í tré í Garðabæ, kveikt
hafði verið í bensínbrúsa í austurbæ
Reykjavíkur og bakaraofn ofhitnaði í
Kópavogi. Lyktir málanna urðu þær
að kötturinn stökk niður, stigið var á
bensínbrúsann og slökkt á ofninum.
LÖGREGLUFRÉTT
SPURNING DAGSINS