Fréttablaðið - 13.03.2008, Qupperneq 8
13. mars 2008 FIMMTUDAGUR
FLEX
hágæða
rafmagnsverkfæri
í miklu úrvali
Aseta ehf
Tunguháls 19
110 Reykjavík
sími: 533 1600
aseta@aseta.is
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
-
9
0
8
0
2
5
3
DÓMSMÁL „Tek heils hugar undir
þetta. Óþolandi glannaskapur,
svona á að afhenda yfir borð eða í
mesta falli boðsent til JH [Jóns
Halldórssonar],“ sagði Einar Bene-
diktsson, forstjóri Olís, eftir að
Kristján B. Ólafsson, fyrrverandi
fjármálastjóri Olís, hafði sent
honum skilaboðin: „Fékk inn á borð
fax frá Shell vegna Ísals-útboðs.
Skil ekki að Shell sendi fax út af
verðum í þessu útboði, það er allt
of varasamt.“
Þetta kemur fram í skýrslu sam-
keppnisyfirvalda vegna samráðs
olíufélaganna en fyrrnefnd sam-
skipti áttu sér stað 12. september
1997.
Þá undirbjuggu starfsmenn olíu-
félaganna Skeljungs, Olís og Olíu-
félagsins, nú Kers, samráð fyrir
útboð vegna viðskipta við ÍSAL.
Mál ÍSAL gegn olíufélögunum,
sem meðal annars byggir á sam-
ráði félaganna fyrir útboðið 1997,
var tekið fyrir í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Aðalkrafa ÍSAL
nemur tæplega 187 milljónum
króna. Til vara krefst ÍSAL 126
milljóna, 79 milljóna eða bóta að
álitum, allt eftir því hvaða forsend-
um héraðsdómur gefur sér.
Fram að árinu 1993 þegar ný
samkeppnislög tóku gildi sem
ætlað var að efla samkeppni á
markaði hafði verið í gildi sam-
komulag olíufélaganna um við-
skipti við ÍSAL frá því 8. mars
1967. Samkvæmt því skiptu olíu-
félögin greiðslum ÍSAL
vegna olíuvið-
skipta á milli
sín.
Í skýrslu
Samkeppnis-
eftirlitsins
segir meðal
annars:
„Gögn
máls-
ins
sýna með skýrum hætti að olíu-
félögin hafa skipt með sér sölu
Skeljungs til ÍSAL frá 1969 til 2001.
Í þessu fólst einnig að olíufélögin
höfðu samráð um verð á því elds-
neyti sem selt var ÍSAL.
Í umfjöllun um þessi mál í skýrsl-
unni er meðal annars vitnað til
tölvupóstsamskipta starfsmanna
Skeljungs og Olís árið 1996. Þar
segir: „Á morgun föstudag, verða
viðræður við ÍSAL um endurnýjun
viðskiptasamnings, út árið 1996. Í
núverandi viðskiptasamningi er
afsláttur á svartolíu kr. 60 pr. tonn,
frá gamalli tíð, sem ekkert hefur
breyst undanfarin ár. Við þurfum
að endurskoða þennan afslátt og
líklega bæta eitthvað við grunninn
til þess að þeim finnist þeir ein-
hvers njóta með hliðsjón af magni
(þeir vita að sjálfsögðu ekki um
skiptisölu).“ Með skiptisölu er átt
við skiptingu á framlegð af við-
skiptunum.
Guðrún Johnsen, lektor í hag-
fræði við Háskólann í Reykjavík,
vinnur að matsgerð fyrir hönd
ÍSAL í málinu og var því frestað til
8. maí þar sem vinnu við matsgerð-
ina er ekki lokið.
Lögmenn olíufélaganna voru
ekki viðstaddir þegar málið var
tekið fyrir í gær.
magnush@frettabladid.is
Fjörutíu ára samráð
á olíuverði til ÍSAL
Mál ÍSAL, Alcan á Íslandi, gegn olíufélögunum var tekið fyrir í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Aðalkrafa ÍSAL nemur tæplega 187 milljónum króna.
Stærsta skaðabótamál fyrirtækisins vegna samráðs olíufélaganna til þessa.
ÍSAL Olíufélögin Skeljungur, Olís og Olíu-
félagið, áður Ker, höfðu með sér samráð
um viðskipti við ÍSAL á árunum 1993 til og
með meirihluta árs 2001.