Fréttablaðið - 13.03.2008, Qupperneq 25
FIMMTUDAGUR 13. mars 2008 25
Líkur eru á að hætt verði við sölu á
Irish Nationwide Building Society,
stærsta sparisjóði Írlands. Lands-
bankinn og Kaupþing hafa báðir
verið orðaðir við kaup á bankan-
um.
Gangi þetta eftir hafa báðir
bankarnir hætt við fyrirtækja-
kaup á árinu. Kaupþing hætti við
kaup á hollenska bankanum NIBC
í enda janúar auk þes sem Lands-
bankinn var langt kominn með
kaup á hluta af fjármálafyrirtæk-
inu Close Brothers þegar hætt var
við söluna í sama mánuði. Sölu-
ferli hafði í báðum tilvikum staðið
yfir frá síðasta hausti.
Hvorugur bankanna hefur vilj-
að tjá sig um fyrirtækjakaupin á
þeim forsendum að um orðróm
hafi verið að ræða.
Málið verður tekið fyrir á aðal-
fundi sparisjóðsins í enda næsta
mánaðar, að sögn vefútgáfu breska
blaðsins Sunday Business Post.
Þar kemur fram að stjórnendur
sparisjóðsins og væntanlegir
kaupendur hafi ekki náð saman
um verð og því ákveðið að setja
söluna í salt. Aðstæður á mörkuð-
um eiga stærstan þátt í þróun
mála. Sé markaðsvirðið langt
undir væntingum og vilji til að
bíða hríðina á fjármálamörkuðum
af sér fram á næsta ár, að sögn
blaðsins.
Írski sparisjóðurinn var metinn
á 1,5 milljarða evra, jafnvirði 160
milljarða króna, fyrir ári. Verð-
mætið hefur hins vegar fallið um
helming síðan þá og nemur nú um
700 milljónum evra, samkvæmt
heimildum Sunday Business
News. - jab
Sparisjóðasala í salt fram á næsta ár
BG Capital ehf., dótturfélag
Baugs Group, færði í gær 5,6 pró-
senta hlut í félaginu til Lands-
bankans. Færslan er tilkomin
vegna fjármögnunar með fram-
virka samninga BG Capital.
BG Capital er stærsti hluthafi
FL Group með 25,29 prósenta
hlut. Það fer eftir færsluna með
öll réttindi yfir hlutnum sem fær-
ist til, að því er fram kemur í til-
kynningu frá FL Group.
Færslan, sem var gerð fyrir
upphaf viðskiptadagsins í Kaup-
höllinni í gærmorgun, var á geng-
inu 9,5 á hlut og verðmætið rúmir
7,2 milljarðar króna. Tilfærslan
var ekki verðmyndandi. - jab
Tilfærsla á bréf-
um FL Group
Heimsmarkaðsverð á hráolíu
lækkaði í gær eftir að olíubirgðir
jukust talsvert umfram vænting-
ar á milli vikna í Bandaríkjunum í
síðustu viku.
Olíuverðið fór í 109,83 dali á
tunnu á fjármálamörkuðum í
Bandaríkjunum fyrir birtingu
bandaríska orkumálaráðuneytis-
ins á birgðatölunum í gær. Slík
verðlagning á svartagullinu hefur
aldrei áður sést. Það lækkaði tals-
vert eftir birtingu upplýsinganna
og fór lægst í 107,09 dali á tunnu í
gær.
Bandaríska fréttastofan CNN
hefur eftir Stephen Schork, rit-
stjóra tímarits um olíuiðnaðinn, að
birgðaaukningin hafi komið sér á
óvart enda dragist þær iðulega
saman um þetta leyti árs. Lítil
eftir spurn upp á síðkastið skýri
breytinguna að einhverju leyti.
- jab
Olíuverð fór úr
hæstu hæðum
OLÍUVINNSLUSTÖÐ Sérfræðingur í
olíumálum segir litla eftirspurn eftir
olíu hafa valdið óvæntri aukningu á
birgðastöðu vestanhafs í síðustu viku.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
BANKASTJÓRAR LANDSBANKANS Líkur eru á að hætt verði við sölu á stærsta spari-
sjóði Írlands vegna aðstæðna á mörkuðum. Landsbankinn og Kaupþing hafa verið
orðaðir við kaupin.
Verðtryggð bandarísk ríkisskulda-
bréf til fimm ára hafa verið seld
með 0,17 prósenta afföllum frá
enda febrúar. Þróunin þykir vís-
bending um að fjárfestar vestan-
hafs sjái háa verðbólgu í spilun-
um, að mati
Bloomberg-fréttaveitunnar.
Bankastjórn bandaríska seðla-
bankans vísaði iðulega til þess síð-
asta sumar að fremur ætti að
halda verðbólgu niðri en að koma
til móts við versnandi aðstæður á
fjármálamörkuðum með lækkun
stýrivaxta. Eftir því sem kreppti
að breyttist stefnan í haust og hafa
stýrivextir lækkað úr 5,25 pró-
sentum í 3,0 prósent nú. Útlit er
fyrir 50 punkta lækkun á ný í
næstu viku. Á sama tíma er því
spáð að verðbólga mælist 2,4 pró-
sent á árinu. - jab
Afföll á ríkis-
skuldabréfum