Fréttablaðið - 13.03.2008, Page 31
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Fegurðardrottningin Jóhanna Vala Jónsdóttir
fékk einstakan jakka að gjöf frá kærastanum.
Jóhanna Vala Jónsdóttir, Ungfú Ísland 2007, fékk
jakka sem hún heldur mikið upp á að gjöf frá
kærasta sínum þegar hann kom að heimsækja hana í
Miss World-keppnina í Kína á síðasta ári. Keppnin
fór fram í nóvember og fengu hún og kærastinn einn
dag til að versla.
„Við fundum jakkann í kínverskri hönnunarbúð og
er bara til eitt svona eintak. Hann er hermanna-
grænn með stórum vösum og voðalega hlýr. Hann á
reyndar örugglega að ná kínverskum konum niður
að hnjám en á mér er hann aðeins styttri og með
frekar stuttum ermum, útskýrir Jóhanna Vala. „En
mér finnst það bara flott,“ bætir hún við.
Jóhanna Vala er með fjölbreyttan fatasmekk. „Ég
er þó mikið fyrir svartar og dökkbláar gallabuxur,
stígvél og flottar peysur. Ég er ekki mjög hrifin af
retro-stíl og fell frekar fyrir klassískum fötum.“
Jóhanna Vala er líka gefin fyrir kjóla af ýmsu tagi.
„Ég á frekar mikið af kjólum eftir keppnirnar og gat
nýtt þá vel í Kína.“
Jóhanna Vala segist mjög róleg yfir titlinum og
finnst lítið umstang hafa fylgt honum. Hún hefur
dvalið hjá kærasta sínum í Dallas síðastliðna tvo
mánuði en er nú að fara að flytja með honum til
Flórída.
„Ég verð hér heima næstu tvær vikurnar en verð
svo í Flórída þangað til ég kem heim að krýna
arftaka minn í lok maí,“ segir Jóhanna Vala sem er
þó ekki alveg búin að yfirgefa landið enda ætlar hún
að búa hér í sumar og starfa sem flugfreyja hjá
Icelandair. vera@frettabladid.is
Jakkinn keyptur í Kína
Jóhanna Vala er að fara
að flytja til Flórída en
kemur þó heim til að
krýna arftaka sinn í vor og
til að starfa sem flugfreyja
hjá Icelandair í sumar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
KLASSÍSK TÍSKA
Parísartízkan hefur verið
starfrækt í 45 ár og er því
ein elsta tískuverslun
landsins.
TÍSKA 2
ALLT Í BLÓMA
Mademoiselle er litríkur
stóll úr plasti og plexigleri
eftir hönnuðinn Philippe
Starck.
HEIMILI 5
Opnunartími
Mán - Föstudagar 09 - 18
Laugardaga 11 - 16
Erum í Dugguvogi 2. Sími 557-9510
ALLTAF BESTA VERÐIÐ