Fréttablaðið - 13.03.2008, Síða 34
[ ]
Joan M. Johnston er kanad-
ískur læknir sem hefur sér-
hæft sig í meðferðarúrræðum
við átröskun. Átröskun líkir
hún við sjúkdóma á borð við
áfengis sýki. Líkt og með áfeng-
issýkina má yfirbuga sjúkdóm-
inn með aðferðum tólf spora
kerfisins.
„Söngkonan Karen Carpenter lést
af völdum átröskunar árið 1983. Það
var ekki fyrr en þá að augu
umheimsins opnuðust fyrir því að
glíman við sjúkdóminn er dauðans
alvara,“ segir Joan M. Johnston,
sem hefur skrifað fræðigreinar og
gefið út bækur um átröskun. Í bók-
inni Feast of famine lýsir hún því
hvernig öðlast bata með hjálp tólf
spora kerfisins, sem þekkist um
allan heim sem leið við áfengissýki.
Sem heilbrigðisráðgjafi og læknir
stýrir hún í dag meðferðardagskrá
fyrir átröskunarsjúklinga. Hún var
hér á landi nýverið með erindi auk
þess sem hún hélt námskeið fyrir
þolendur átröskunar og aðstand-
endur þeirra.
Joan leggur áherslu á persónu-
lega ábyrgð hvers og eins. Um leið
og sjúklingurinn reynir að hætta að
skilja sjúkdóminn getur hann fyrst
farið að ná bata, bendir hún á. Hér
kemur tólf spora kerfið að gagni
samhliða þeim stuðningi sem
almenn heilbrigðisþjónusta veitir.
„Sá sem stríðir við átröskun verður
að læra upp á nýtt að takast á við
það að borða reglulega og hugsa um
eina máltíð í einu. Fíkillinn hefur
ekki stjórn á hegðun sinni því hann
er valdalaus gagnvart fíkn sinni og
þarf aðstoð. Um leið og hann áttar
sig á þessu og tekst á við eigin veik-
leika getur hann fyrst öðlast bata.“
Joan glímdi sjálf við átröskun um
árabil og það var ekki fyrr en hún
kynntist tólf spora kerfinu að hún
öðlaðist nýja sýn á sjúkdóminn.
„Þegar ég áttaði mig á því að átrösk-
un væri vandamál í mínu lífi en
ekki lausn gat ég fyrst tekist á við
sjúkdóminn,“ segir hún. „Sá sem
glímir við átröskun hefur enga
stjórn á matarhegðun sinni því hug-
urinn er upptekinn af kaloríum í
fæðunni. En á tímabili borðaði ég til
dæmis alltaf sextán engiferkökur á
dag af því ég hafði reiknað það út að
það væri rétti kaloríuskammturinn
fyrir mig. Mér fannst ég vera við
stjórnvölinn þegar ég hafði yfirsýn
yfir kaloríufjöldann og hafa vald
yfir eigin líkama en fyrr eða síðar
missir maður alla stjórn.“
Joan segir lykilatriðið að fólk
verði að vilja hjálpa sér sjálft til
þess að eiga von um bata. „Sjúkling-
urinn verður að viðurkenna vanda
sinn og leggja raunir sínar í hend-
urnar á öðrum. Með réttri leiðsögn
og styrk frá öðrum getur sá sem
glímir við átröskun náð að fóta sig á
beinu brautinni. Enda þarf algjör
hugarfarsbreyting að koma til ef
sjúklingurinn ætlar sér að ná að
yfirbuga fíkn sína. Sjúklingurinn
þarf að fara í gegnum heljarátök
við sjálfan sig ef hann ætlar virki-
lega að bera sigur úr býtum,“ segir
Joan að lokum.
- vg
Aðeins ein máltíð í einu
Svefn er eitt af því nauðsynlegasta fyrir okkur svo við
höldum heilsu og sönsum. Best er að fara alltaf að sofa á
sama tíma hvert kvöld.
Joan M. John-
ston þekkir
átröskun vel af
eigin raun og
hefur haldið
fyrirlestra um
sjúkdóminn
víða um heim.
Vaxandi tölvu- og
tæknifíkn
Æ FLEIRI VERÐA HÁÐIR FARSÍMUM
SÍNUM OG LÓFATÖLVUM EN TÆKNI-
FÍKN GETUR ORÐIÐ SVO SVÆSIN AÐ
FÓLK VAKNAR UM MIÐJAR NÆTUR
TIL AÐ ATHUGA MEÐ NÝ SKEYTI.
Tölvu- og tæknifíkn er vaxandi
vandamál um allan heim og getur
truflað fólk í starfi þegar því finnst
það þurfa að vera í látlausu sam-
bandi við farsímaskeyti og tölvu-
póst á vinnutíma. Þetta segir
Nada Kakabadse, prófessor við
North ampton-háskóla, sem stýrir
rannsókn á því hversu útbreidd
fíknin er orðin.
Í nýlegu 360 manna úrtaki
rannsóknar hennar kemur fram að
þriðjungur er haldinn tækni- og
tölvufíkn, en prófessor Kakabadse
segir mannskepnuna geta orðið
háða næstum hverju sem er.
„Mannfólkið gerir sér flest að
vana og verður háð óvenjulegum
hlutum. Tækni hefur orðið áhuga-
verðari síðastliðinn áratug með
auðveldari netaðgengi og það
yrðu margir undrandi ef þeir vissu
hve margir sofa með lófatölvur
sínar og farsíma við rúmgaflinn.
Þeir verst höldnu vakna upp um
miðjar nætur til að athuga með
skilaboð; jafnvel þrisvar á nóttu.“
Fíkn af þessu tagi getur einnig
leitt til samskiptavanda þar sem
tölvufíklar fjarlægjast æ meira fjöl-
skyldu og vini. Félagslegar afleið-
ingar koma einnig fram í kvíða og
ýmiss konar sjúkleika, en á fyrstu
stigum tæknifíknar er fólk af-
kastamikið í vinnu við að svara og
senda tölvupósta, þótt afleiðing-
ar verði alvarlegri eftir því sem á
líður. - þlg
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Björgum
mannslífum!
• Ávallt tilbúið til notkunar
• Einfalt og öruggt
• Einn aðgerðarhnappur
• Lithium rafhlaða
• Íslenskt tal
PRIMEDIC hjartastuðtæki
Maternity
Fyrir verðandi og
nýbakaðar mæður.
• Neðanþvottaklútar fyrir þrútin og
viðkvæm svæði
• Olíugel, eykur teygjanleika húðarinnar
og er tilvalið til að nudda uppúr
• Næringarkrem sem eykur teygjanleika
húðarinnar
•Fótakrem sem léttir á þrútnum fótum
Fæst aðeins í verslunum Lyf og heilsu og ÁrbæjarapótekiFæst í apótekum um land allt
RAFMAGNSHITARAR
VERÐ FRÁ 1.990
ne
tv
er
slu
n
ish
us
id
.is
n á t t ú r u l e g a
Skólavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi, Lágmúla & Selfossi
Hvað á ég að gefa
barninu mínu að borða?
Námskeið með Ebbu Guðnýju í hvernig útbúa á einfaldan og næringarríkan mat
fyrir börn frá 6 mánaða aldri. Hvaða fæðutegundum er gott að byrja og hvenær?
Námskeiðið nýtist einnig vel þeim sem eru með eldri börn. Nýjar uppskriftir
fylgja með og verða nokkrir réttir útbúnir á staðnum og allir fá að smakka.
Ebba Guðný
Að auki verður bókin Hvað á ég að gefa
barninu mínu að borða? seld með 20%
afslætti á námskeiðinu. Námskeiðið kostar
3000 kr. Upplýsingar og skráning fer
fram í síma 694 6386 og á netfanginu
ebbagudny@mac.com
Miðvikudaginn 2. apríl kl. 20-22 í Heilsuhúsinu Lágmúla
Þriðjudaginn 8. apríl kl. 20-22 í Heilsuhúsinu á Selfossi