Fréttablaðið - 13.03.2008, Side 40
13. MARS 2008 FIMMTUDAGUR
Sundkappinn Örn Arnarson
var fermdur annan í páskum
fyrir þrettán árum.
„Ég man nú ekkert sérstaklega
mikið eftir þessum degi,“ segir
sundkappinn Örn Arnarson þegar
við hittum hann að máli á dögun-
um og spurðum hann út í ferming-
ardaginn sinn. „Ég man samt að ég
var í einhverri skyrtu og buxum,
og svo var ég í blazer-jakka af
pabba mínum.“
Flestir kannast við Örn úr sund-
inu en hann er einna helst frægur
fyrir að vera sexfaldur Evrópu-
meistari í sundi og að hafa unnið
til silfur- og bronsverðlauna á
heimsmeistaramótinu 2001. Í dag
er Örn 26 ára og starfar hann sem
íþróttakennari við Áslandsskóla í
Hafnarfirði og sundþjálfari Sund-
félags Hafnarfjarðar.
Örn var fermdur í Vífilsstaða-
kirkju í Hafnarfirði annan í pásk-
um árið 1995 og var veislan hald-
in í sal í íþróttahúsinu við Strand-
götu. Örn telur að sjötíu eða áttatíu
manns hafi mætt í veisluna.
„Það var ýmislegt sem maður
fékk í fermingargjöf. Ég fékk
tjald og vekjaraklukku og svo
fékk maður náttúrlega einhvern
pening. Það var alveg fullt sem
ég fékk í fermingargjöf en ég
man bara ekki helminginn af því,“
segir hann og hlær.
Örn segist finna fyrir því að
viðhorf krakka til ferminga hafi
breyst á þessum þrettán árum sem
liðin eru síðan hann stóð við altar-
ið í Vífilsstaðakirkju ásamt félög-
um sínum. „Ég er ekki viss um að
krakkar í dag láti allir ferma sig
af réttum ástæðum. Það skipt-
ir öllu máli að fara í þetta af rétt-
um ástæðum, það er, til að stað-
festa trú sína á guð. Fyrir mig var
það jákvæð reynsla að staðfesta
trú mína,“ segir Örn og bætir við í
lokin að hann sé enn „töluvert trú-
aður, upp að vissu marki, þótt ég
fari mjög sjaldan í kirkju“. - smk
Í blazer-jakka af pabba
Örn Arnarson, sundkappi með meiru. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Örn í blazer-jakkanum góða.
Svefnpoki er
alger nauðsyn ef
farið er í útilegur og
íþróttaferðir.
Kíkir kemur sér
vel úti í náttúr-
unni, ekki síst
við fuglaskoðun.
Gastæki er þarfaþing
þegar búið er í tjaldi.
Fátt gleður hestakrakka
meira en höfðinglegur
hnakkur.
Ef fermingarbarnið er
spennt fyrir útivist er úr
mörgu að velja til gjafa. Fátt
er líka ánægjulegra fyrir
skyldfólkið en að efla og
ýta undir heilbrigðan lífsstíl.
Reyndar kemur sér alltaf vel
að eiga viðleguútbúnað,
þótt fjallgönguáhugi sé
kannski ekkert gífurlegur á
fermingaraldrinum.
FERMINGARGJAFIR NÁTTÚRUBARNSINS
Kúlutjald er yndis-
legt heimili í
útilegum.
Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is
HPI Savage X 4,6
fjarstýrður bensín torfærutrukkur
nú á lækkuðu verði.
7”
www.elo.is
Netverslun - Hlíðasmára 13, Kóp - Sími 554-0400
Spilar stafrænar myndir, video og tónlist.
Dagatal og klukka, vekjari, 2 innb. hátalarar.
Tekur USB og flest minniskort. Fjarstýring.
LCD myndarammi
Kr. 12.9
00
Verð áð
ur kr. 22
.90010.000
kr. afsl
Fjarstýring fylgir