Fréttablaðið - 13.03.2008, Síða 52
13. MARS 2008 FIMMTUDAGUR16 ● fréttablaðið ● fermingar
Himneskir herskarar
– Fermingarstyttur
Auðbrekka 4, gengið inn bakatil.
Upplýsingar í síma 862 2783 eða 552 1783.
Veislulist og Skútan, Hólshrauni 3 - Hafnarfirði - 555 1810
Íslenskt handverk
Tákn heilagrar þrenningar
til styrktar blindum
Matthildur Sigurjónsdóttir fékk
að fara í bíó með stóra bróður
eftir fermingarveisluna. Janis
Joplin í mynd um Woodstock
hafði varanleg áhrif á ungu
stúlkuna, sem taldi sig þar með
hafa teygt sig inn í hóp hinna
fullorðnu.
„Ég fermdist árið 1971 og þá var
hippafílingurinn í algleymi. Mamma
leyfði mér að fá sérsaumuð föt,
þótt hún væri ekki sátt við valið,
en ég var alsæl. Ég valdi símun-
strað fjólublátt efni í kjól sem var
opinn frá mitti og undir voru stutt-
ar buxur. Kjólinn var hnepptur með
yfirdekktum tölum úr sama efni og
buxurnar. Þessu fylgdu hnéhá stíg-
vél. Mér fannst ég flott en kannski
var þetta ekki alveg við hæfi fjór-
tán ára stúlku,” segir Matthildur
Sigurjónsdóttir hlæjandi.
Fermingarundirbúningurinn
hófst eftir jól og séra Garðar Svav-
arsson sóknarprestur í Laugarnes-
kirkju sá um fræðsluna fyrir ferm-
ingarárgang Matthildar í sókninni.
Stóri dagur Matthildar var 25. apríl,
fyrsti sunnudagur sumars.
„Pabbi var ekki sérlega ánægður
með mína frammistöðu í kirkjunni.
Ég var algjör unglingur og gat illa
haldið mér vakandi í kirkju. Jafn-
vel í minni eigin athöfn rann á mig
svefnhöfgi og ég fékk olnbogaskot
frá sessunaut. Þegar ég leit út í sal
sá ég að pabbi sendi mér illt auga.
Hann tók mig þó í sátt og ég hef
haldið mér vakandi við kirkjuat-
hafnir síðan,“ fullyrðir Matthildur,
sem er gift og á þrjú börn sem öll
eru skírð og fermd. Allar hafa at-
hafnirnar farið fram í kirkju, með
Matthildi vakandi.
„Annars var fermingin mín frek-
ar hefðbundin. Ég valdi kökur fram
yfir kalt matarhlaðborð. Mamma
sá um að fylla borðið af alls kyns
hnallþórum og gotterí. Veislan var
haldin heima og öll ættin mætti.
Mamma og pabbi höfðu þann sið
að gefa okkur systkinunum vandað
úr í fermingargjöf og ég hef haldið
þeim sið fyrir börnin mín. Aðrar
gjafir eru ekki eins eftirminnilega
en ég man þó að ég fékk 550 krón-
ur sem þótti ekki mikið, enda fengu
stelpur þá meira af glingri en strák-
arnir.“
Að sögn Matthildar var dagurinn
ljúfur en hámarkinu var síðan náð
um kvöldið þegar hún fór í Austur-
bæjarbíó með bróður sínum. „Mér
fannst ég orðin fullorðin þegar ég
horfði á Woodstock-hátíðina. Janis
Joplin stal deginum af Jesú og hefur
haft meiri áhrif á mig síðan en það
sem presturinn sagði í athöfninni.
Enda svaf ég í kirkjunni en vakti
í bíó,“ segir hin friðelskandi Matt-
hildur kímin og setur Janis Joplin á
fóninn í huganum. - vaj
Woodstock eftirminnilegust
Tíðarandinn endirspeglast í þeim fatnaði sem fermingarbörnin velja sér og það er
ansi skondið að skoða gamlar fermingarmyndir, sérstaklega þegar kyrtillinn hylur
ekki tískuna. Matthildur er til hægri í efri röð.