Fréttablaðið - 13.03.2008, Page 78
13. mars 2008 FIMMTUDAGUR
Einn af virtustu listamönn-
um þjóðarinnar, Sigurður
Guðmundsson, snýr til leiks
í Listasafni Reykjavíkur
með sýningunni Mállausir
kjarnar sem verður opnuð
í dag. Á sýningunni má sjá
tuttugu stórar ljósmynd-
ir sem aldrei hafa verið
sýndar áður og eru fyrstu
ljósmyndaverk Sigurðar
síðan 1980.
Myndirnar eru teknar á hefð-
bundna filmuvél og hefur þeim
ekki heldur verið breytt eftir á
með stafrænni tækni. Þær eru
festar á álplötur, innrammaðar og
sýndar undir gleri.
„Myndirnar eru afrakstur vinnu
síðustu tveggja ára,“ segir Sigurð-
ur. „Þessar myndir eru allar
aðskilin verk; þær mynda ekki
eina heild. Þó má segja að það sé
einhver samnefnari með þeim. Í
það minnsta hafa þær allar þróast
sem sýn fremur en sem hugmynd;
þannig losna þær undan rökhyggju
tungumálsins. Verkin eru því fyrir
augun ein, en það er ekki þar með
sagt að þær séu eitthvert augna-
yndi. Ég hef lengi haft áhuga á
skynjun og verkin eru sprottin úr
þeim farvegi. Ég vil bjóða fólki
upp á að upplifa lífið með skynjun
fremur en með greiningu, enda
þykir hæfileikinn að kryfja hluti
til mergjar án orða eftirsóknar-
verður.“
Til að ná fram sem tærustum
skynjunaráhrifum í ljósmyndun-
um skapaði Sigurður aðstæður þar
sem allt áreiti var útilokað frá
meðvitund fyrirsætnanna eins og
frekast var kostur. Í sumum til-
fellum lét listamaðurinn dáleiða
viðfangsefni sín til að ná fram
fullkominni einbeitingu að stað og
stund. Sigurður segir áhorfendum
ekki ætlað að lesa meira í verkin
en það sem birtist á mynd-
fletinum.
„Ég verð stundum fyrir von-
brigðum þegar ég skoða verk ann-
arra myndlistarmanna og ég skil
þau á þann hátt að ég get lesið ein-
hverja merkingu úr þeim. Ég vil
sjálfur ekki notast við milliliðinn
„hugmynd“ í mínum verkum þar
sem ég vil ekki notast við listina
til að tjá einhverjar tilfinningar
eða kenndir.“
Sigurður fluttist til Kína fyrir
tíu árum og hefur valið sér að lifa
þar lífi byggðu á skynjunum frem-
ur en skilningi. „Þegar ég flutti út
tók ég þá ákvörðun að læra ekki að
tala kínversku. Það er hreint út
sagt yndislegt að vera mállaus og
upplifa heiminn bara í gegnum
skynjun. Fjölmiðlar verða bara að
veggfóðri tilverunnar og hafa
enga þýðingu. Með þessum hætti
set ég stórt spurningarmerki við
þá ofuráherslu á þekkingaröflun
og greiningu sem við lifum flest
eftir.“
Þess ber að geta að í tilefni sýn-
ingarinnar kemur út bók á vegum
Listasafns Reykjavíkur og For-
lagsins um ljósmyndir Sigurðar.
Opnunin fer fram í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu í dag
og hefst kl. 17. Sigurður verður
svo með leiðsögn um sýninguna
kl. 20.
vigdis@frettabladid.is
Sýn fremur en hugmynd
MÁLLAUSIR KJARNAR Eitt af
verkum Sigurðar á sýningunni í
Hafnarhúsinu.
Þuríður Sigurðardóttir opnar
sýningu sem kallast Stóð í DaLí
galleríi, Brekkugötu 9 á Akureyri,
á laugardag kl. 17. Viðfangsefni
Þuríðar á sýningunni er íslenski
hesturinn, tengsl manns og dýrs
og upplifun lita og áferðar hrossa-
feldsins.
Með því að höfða til löngunar-
innar að klappa mjúkum dýrum
verða málverkin nánast ómót-
stæðileg og um leið koma fram
spurningar um málverkið sem
miðil. Þuríður vinnur með
upplifun áhorfenda í sýningar-
rýminu, en skoðar líka eigin
upplifun úti í náttúrunni í
hestamennsku.
Þuríður útskrifaðist úr
Listaháskóla Íslands 2001. Hún er
einn af stofnendum START ART
listamannahúss á Laugaveginum
og einn hugmyndasmiða og
umsjónarmanna Opna gallerísins
sem sýndi víða í 101 Reykjavík.
- vþ
Áferð hrossa-
feldsins
ÞURÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR Opnar sýn-
inguna Stóð í DaLí galleríi á laugardag.
Allra síðasta
sýning!
föstudaginn
14. mars.
SÍÐ
US
TU
SÝ
NIN
GA
R
LAUGADAGUR 8. MARS KL. 13
MEISTARI MOZART.
STRENGJA-OG PÍANÓKVINTETT
TÓNLEIKAR KENNARA TÓNÓ KÓP.
LAUGADAGUR 8. MARS KL. 20
TÍBRÁ: SÖNGBÓK JAZZINS.
TÓNLIST COLES PORTERS.
KRISTJANA STEFÁNS & FÉLAGAR
SUNNUDAGUR 9. MARS KL. 16
SÖNGLÖG JÓRUNNAR VIÐAR.
HELGA RÓS OG GUÐRÚN DALÍA
ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS KL. 20
TÍBRÁ: SÖNGTÓNLEIKAR.
LUBOV STUCHEVSKAYA,
TÓMAS TÓMASSON
OG KURT KOPETSKY
MIÐVIKUDAGUR 12. MARS KL. 20
TÍBRÁ: PÍANÓTÓNLEIKAR
SIMON SMITH - ÖLL PÍANÓVERK
HAFLIÐA HALLGRÍMSSONAR
EINSTAKT TÆKIFÆRI !
Þjóðleikhúsið
um helgina
Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri.
Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Ívanov e. Anton Tsjekhov
sýn. mið. 12/3, fim 13/3 sun 16/3 örfá sæti laus
Allra síðustu sýningar
Vígaguðinn e. Yasminu Reza
sýn. lau. 15/3 örfá sæti laus
Sólarferð e. Guðmund Steinsson
sýn. fös 14/3, lau. 15/3 uppselt
Baðstofan e. Hugleik Dagsson
sýn. fim 6/3, fös 7/3 örfá sæti laus
norway.today e. Igor Bauersima
Síðasta sýning í kvöld