Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 80
44 13. mars 2008 FIMMTUDAGUR bio@frettabladid.is Stórmyndamaðurinn Roland Emmerich er hvergi af baki dottinn og um helgina verður frumsýnd enn ein „stórmyndin“ þar sem útlit og tæknibrellur eiga að nægja til að trekkja áhorfendur að. Kvikmyndin 10.000 BC komst að sjálfsögðu á toppinn í Bandaríkjunum um síðustu helgi þegar hún var frumsýnd með pomp og prakt. Myndbrotin gáfu líka góð fyrirheit, mammút-fílar og önnur forsöguleg dýr kveiktu von um að þýski leikstjórinn væri að ná sér aftur á strik eftir fremur mögur ár. En dómarnir tala sínu máli: imdb.com leyfir myndinni að slefa yfir falleinkunn á meðan hin miskunnarlausa síða RottenTomatoes gefur henni sjö prósent af hundrað mögulegum. Sömu einkunn og Paris Hilton-hörmung- ina The Hottie and the Nottie fær en hún er af mörgum talin vera versta kvikmynd sögunnar. Hugsanlega hæfir Hin þýski Emmerich stökk fram á sjónarsviðið árið 1992 þegar kraftabúntin Jean-Claude Van Damme og Dolph Lundgren fóru á kostum í Universal Soldier. Upp úr þeirra mynd spratt upp undarlegur hópur aðdáenda testesterón-tröllanna og ófáir unglingspilt- ar hældu myndinni sem þeirri bestu. Hún hafði auðvitað allt sem táningsdrengir vilja sjá; sprengjur, byssur, flottar græjur og framtíðina. Emmerich sýndi, svo ekki varð um villst, að hann kunni að festa hasar á filmu og framleiðendur í draumaverksmiðjunni sáu í Þjóðverjanum hugsan- legan gullkálf. Enda skilaði Universal Soldiers kostnaðinum við gerð myndarinnar vel til baka. Í kjölfarið tókust á góð kynni með Emmerich og handritshöfundinum Dean Devlin sem urðu eins konar Bernie Taupin og Elton John-par Hollywood og þeir kumpánar settust helst ekki niður við skriftir nema kvikmyndin kostaði yfir 50 milljónir dollara, eða þrjá milljarða íslenskra. Fyrsti ávöxtur sam- bands þeirra var Stargate með James Spader (sem þá var heitasta nafnið í Hollywood) og Kurt Russell (sem var líka ansi eftirsóttur meðal stórlaxanna). Emmerich og Devlin fundu einhverja uppskrift af góðum kokkteil því Stargate rann ljúflega ofan í áhorfendur og lifir enn góðu lífi í skelfilegum sjónvarpsþáttum. Stutt gullæði En það var fyrst árið 1996 að Emmerich gerði af fullri alvöru tilkall til hins eftirsóknarverða „gullkálfa“- starfs. Will Smith og Jeff Goldblum lömdu á geimver- um sem ætluðu að tortíma jörðinni á meðan Bill Pullman hélt innblásnar og þjóðrembingslegar ræður um ágæti Ameríku í Independence Day. Engu var til sparað við markaðsherferðina sem öll gekk út á 4. júlí, þjóðhátíðardag Bandaríkjanna. Og myndin, hún sló að sjálfsögðu í gegn. Emmerich fékk fúlgur fjár fyrir sína næstu mynd þegar hann endurvakti japanska skrímslið Godzilla. En söguþráðurinn var slappur, myndin of löng og áhorfendum fannst þeir vera hafðir að háði og spotti. Þeim þótti ekki nóg að allt væri „stórt“ þegar innihald- ið væri bæði rýrt og veikt. Trúin á Emmerich minnk- aði eilítið og hann færði sig aðeins niður skalann, tók sér frí frá stórslysamyndum og gerði The Patriot með Mel Gibson og Heath heitnum Ledger. En leikstjórinn hafði glatað tilfinningunni fyrir því sem kvikmynda- húsagestir vildu og myndin kolféll í miðasölu. Og það liðu enda fjögur ár þar til Emmerich fór aftur á stjá. Leikstjórinn blandaði sér inn í umræðuna um hnatthlýnunina með The Day after Tomorrow þar sem sjónarspilið í upphafi hélt ungum sem öldnum hugföngnum en framhaldið reyndist heldur þunnt, eins og svo oft hjá Þjóðverjanum. Stórmyndamaðurinn Roland BYRJUNIN LOFAÐI GÓÐU The Day after Tomorrow lofaði vissulega góðu í byrjun en koðnaði niður með lélegum söguþræði. VERSTA STÓRMYNDIN? Rotten Tomatoes setur sjö prósent á myndina, sömu prósentutölu og The Hottie and the Nottie sem margir telja verstu mynd sögunnar. MISTÆKUR Í MEIRA LAGI Emmerich varð stjarna tíunda áratugar síðustu aldar en er smám saman að verða heldur dýr í rekstri. Lars and the Real Girl Lars er vægast sagt feiminn strákur frá litlum smábæ í norð- urríkjum Bandaríkjanna. Hann hefur aldrei verið við kvenmann kenndur en kemur fjölskyldu sinni á óvart þegar hann mætir með stúlku upp á arminn. Aðeins einn hængur er á málinu; stúlkan er kynlífsdúkka sem Lars pantaði á netinu. Fjölskyldan veit ekki alveg í hvorn fótinn hún á að stíga en fljótlega snýst smábærinn á sveif með Lars og reynir að gera honum og dúkkunni lífið bærilegra. Leikstjóri: Craig Gillespie Aðalhlutverk: Ryan Goosling og Emily Mortimer Dómur IMDB: 7,8/10 The King of Kong Þessi kostulega og stórskrýtna heimildarmynd hefur farið sig- urför um heiminn en hún segir frá Steve Wiebe sem reynir að slá heimsmet í Donkey Kong. Titilhafinn er furðufuglinn og sósugerðarmaðurinn Billy Mitchell sem telur sig jafn umdeildan og fóstureyðingar í Bandaríkjunum. Eini vandinn hjá Wiebe er að hann þykir nokkuð grátgjarn. Leikstjóri: Seth Gordon Dómur IMDB: 8,4/10 10.000 BC D’Leh er mammút-veiðimaður sem reynir að bjarga ættbálki sínum frá þrælkunarvinnu óþekktra afla. Hann reynir um leið að vinna sér virðingu ættbálksins með því að drepa stærsta mammútfíl sem á að færa honum yfirráð og ást dular- fullrar konu. Leikstjóri: Roland Emmerich Aðalhlutverk: Steven Strait og Camilla Belle Dómur IMDB: 5,2/10 Horton Einvalalið gamanleikara ljær per- sónum teiknimyndarinnar Horton rödd sína. Myndin er byggð á bók dr. Seuss og segir frá fílnum Horton sem ákveður að bjarga samfélagi Whoville frá glötun. Þrátt fyrir að enginn treysti því að þetta risavaxna spendýr geti reddað einu né neinu þá ákveður Horton að standa fast við sitt enda eru allir jafnir óháð stærð. Leikstjóri: Jimmy Hayward og Steve Martino Aðalhlutverk: Jim Carrey og Steve Carell Dómur IMDB: 7,9/10 FRUMSÝNDAR UM HELGINA Bíódagar verða haldnir á vegum kvikmyndaklúbbsins Græna ljósið í Regnboganum dagana 11.-24.apríl. Kvikmyndahúsið Regnboginn verður lagt undir hátíðina sem er þó ekki kvikmyndahátíð í orðsins fyllstu merkingu. Heldur verða kvikmyndirn- ar sýndar mörgum sinnum á besta tíma, ólíkt því sem tíðkast á venjuleg- um hátíðum þar sem hver kvikmynd er sýnd einu sinni til tvisar. Að sögn Ísleifs B. Þórhallssonar, forsvars- manns Bíódaga, heppnaðist hátíðin í fyrra mjög vel en hana sóttu yfir tíu þúsund manns. „Við sýndum þá Die Falscher sem var valin besta erlenda myndin á Óskarnum í ár og svo Away From Her en þar fór Julie Christie á kostum,“ segir Ísleifur sem lofar engu síðra hlaðborði á næstu Bíódögum. Þegar hafa sjö titlar verið negldir inn í dagskrá Bíódaga og ber þar hæsta ísraelsku kvikmyndina The Band‘s Visit. Myndin segir frá ísraelskri hljómsveit sem leggur land undir fót en verður innlyksa í egypsk- um smábæ. Myndin hefur verið lofuð í hástert og ef allt hefði verið með eðlilegum hætti hjá óskarsakademí- unni þá hefði hún vafalítið hlotið tilnefningu til Óskarsverðlauna. Bandarískum starfsbræðrum þótti hins vegar ekki nægjanlega margir Ísraelar vinna að gerð hennar og því var myndinni ýtt út af borðinu. Hið sama átti hins vegar ekki við um War/Dance sem var tilnefnd í hópi heimildarmynda. Þrenn systkini frá Úganda eru allslaus en ákveða að skrá sig í árlega danskeppni sem haldin er í höfuðborginni. - fgg Bíódagar byrja í apríl VINSÆLIR Ísleifur B. Þórhallsson segir að Bíó- dagarnir hafi mælst vel fyrir í fyrra en þá hafi mætt yfir tíu þúsund manns. > FJALAKÖTTURINN ENN Á KREIKI Fjalakötturinn verður að venju með fjölbreytta dagskrá. Á laugardag verða sýndar norrænar stuttmyndir en á sunnudag verður heimildar- myndin Ketill frumsýnd en henni er meðal annars leikstýrt af Tómasi Lemarquis. Vi nn in ga r v er ða a fh en di r h já B T Sm ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úb b. 9 9 kr /s ke yt ið . ATH! Frábær sýnishorn af Ice Age 3 frumsýnt á Horton Þú finnur muninn frá fyrsta sopa!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.