Fréttablaðið - 13.03.2008, Page 85
FIMMTUDAGUR 13. mars 2008 49
Söngkonan Amy Winehouse hefur
þurft að eyða
háum fjárhæðum
í að þrífa og end-
urbæta íbúð sína
í Austur-London.
Þegar Amy flutti
fyrst inn í
íbúðina með
eiginmanni
sínum, sem
nú situr í
fangelsi,
var hún
stórglæsileg.
Eftir eiturlyfjaveislur þeirra hjóna
þótti íbúðin hins vegar vera orðin
hreinn viðbjóður, svo illa útlítandi
að eigandi hennar hótaði að fara í
mál við Amy ef hún gerði ekkert í
málunum.
Heroes-leikkonan
Hayden Panettiere
segir að hún muni
aldrei verða eins
grönn og fyrirsæta.
Hún segist hafa
ákveðið að sætta sig
við þessa staðreynd
og njóta þess að
vera með ávalar
línur. „Ég er ekki ein
af þessum klikkuðu
stelpum sem halda
að þær séu feitar. Ég
er sátt við það sem
ég hef,“ segir leikkon-
an unga. Hayden, sem
er 18 ára, er sögð vera á
föstu með mótleikara
sínum úr Heroes, Milo
Ventimiglia.
Kate Beckinsale
heldur því fram
að hún sé ófríð.
Leikkonan þekkta
er oft ofarlega á
blaði í kosning-
um um fallegustu
konur heims
en það er ekki
nóg fyrir hana.
„Ég var mjög
ljót þar til ég
náði fimmtán
ára aldri og
hef ekki náð að losa mig út úr því
hugarfari,“ segir hún.
Charlize Theron verður
ekki sökuð um að vera
ljót, ekki frekar en
Beckinsale. Hún seg-
ist þó elska að leika
ófríðar persónur.
„Það skiptir ekki máli
hvernig maður lítur út
á skjánum, þetta snýst
um að segja sögu. Ég
dæmi ekki persónur
eftir því hvernig þær líta
út,“ segir Charlize sem
hreppti Óskarsverðlaun
fyrir hlutverk sitt í Monster
árið 2004.
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Þær stúlkur sem ekki hafa náð
átján ára aldri þegar keppnin fer
fram þurfa skriflegt leyfi frá for-
eldrum,“ segir Arnar Laufdal,
framkvæmdastjóri Fegurðar-
samkeppni Íslands. Undirbúning-
ur fyrir Ungfrú Reykjavík er nú í
fullum gangi og meðal tuttugu
keppenda eru tvær stúlkur sem
ekki hafa náð átján ára aldri. Þær
eru hins vegar með leyfi frá for-
eldrum um að mega taka þátt í
þessari keppni.
Mikla athygli vakti þegar
Manuela Ósk Harðardóttir sagði
í viðtali við Fréttablaðið um helg-
ina að fegurðarsamkeppnir væru
ávísun á einhvers konar átröskun
en Arnar vildi ekki tjá sig um þau
ummæli. Elín Gestsdóttir, sem
var framkvæmdastjóri keppn-
innar þegar Manuela var krýnd
fegurst allra fljóða, segir að þessi
ummæli hafi stungið
hana. „Já, ég verð
að viðurkenna að
þetta kom mér
svolítið á óvart,“
segir Elín en
hún telur að rík
áhersla hafi
verið lögð á að
stúlkurnar sem
kepptu borðuðu holla og næring-
arríka fæðu. Hún segist ekki hafa
heyrt af öðrum
stúlkum
sem hafi
þessa
sögu að
segja
eftir
þátt-
töku í
keppn-
inni. Elín viðurkennir hins vegar
að kannski sé átján ára aldurs-
takmarkið of lágt og hún hafi
sjálf sagt stúlkum sem vildu fá
að vera með að bíða sökum ungs
aldurs. „Þær fegurðardrottning-
ar sem hafa kannski náð hvað
lengst að undanförnu hafa allar
verið komnar yfir tvítugt,“ segir
Elín og bendir máli sínu til stuðn-
ings á Ragnhildi Steinunni sem
var 23 ára og Unni Birnu Vil-
hjálmsdóttur en hún var 21 árs.
Ekkert lát virðist hins vegar á
áhuga á fegurðarsamkeppnum
hér á landi, því að sögn Arnars
bárust tvö hundruð ábendingar
fyrir keppnina í ár. Ungfrú
Reykjavík verður krýnd í lok
apríl en ungfrú Ísland hinn 30.
maí. - fgg
Með skriflegt leyfi foreldra í Ungfrú Reykjavík
UNDRANDI
Elín var
hissa á
ummæl-
um
Manuelu
í Frétta-
blaðinu.
ÁVÍSUN Á
ÁTRÖSKUN
Manuela Ósk
Harðardóttir
sagði feg-
urðarsam-
keppnir
ávísun á
átröskun.
Leikarinn Hugh Laurie segir að
Bretar hafi snúið við sér baki
eftir að hann sló í gegn í Banda-
ríkjunum í sjónvarpsþáttunum
House. Hann segist ekki hafa
fengið nein tilboð frá föðurlandi
sínu í langan tíma og undrast það
mjög.
„Hurðinni hefur verið skellt á
mig. Fólk virðist telja að ég hafi
gengið markaðsöflunum á hönd,“
sagði Laurie. „Fólk virðist halda
að ég hafi svarið eið um að verða
ekki vinsæll.“ Bætti hann því við
að hann hefði mikinn áhuga á að
starfa aftur með Stephen Fry sem
lék meðal annars með honum í
hinum vinsælu þáttum Jeeves and
Wooster.
Bretar sneru
við mér baki
HÚS
IÐ O
PNA
R KL
. 24
MIÐ
AVE
RÐ K
R. 10
00
FOR
SALA
Á NAS
A
FÖST
UDA
GINN
22. F
EB .
MILL
I KL.
13-1
6
ALD
URST
AKM
ARK
20 Á
RA
AÐ L
OKN
UM ST
ÓRT
ÓNL
EIKU
M
Í LAU
GAR
DALS
HÖL
L
GLE
ÐIN
HEL
DUR
ÁFR
AM
Á N
ASA
.
ÞAN
GAÐ
ERU
ÁHA
NGE
NDU
R VE
LKO
MNI
R
OG G
ILDA
MIÐ
ARN
IR Ú
R HÖ
LLIN
NI
EIN
NIG
SEM
AÐG
ÖNG
UMI
ÐAR
Á N
ASA
ÞET
TA K
VÖL
D.
TIL H
AMI
NGJU
MEÐ
SÁLA
RAF
MÆ
LIÐ!
EFTIRP
ARTÝ