Fréttablaðið - 13.03.2008, Page 86
50 13. mars 2008 FIMMTUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ!NÝTT Í BÍÓ! NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
12
12
7
12
12
16
7
14
7
SEMI PRO kl. 6 - 8 - 10
THE KITE RUNNER kl. 8
BE KIND REWIND kl. 10.10
BRÚÐGUMINN kl. 6
12
12
7
16
7
THE ORPHANAGE kl.5.30 - 8 - 10
AUGUST RUSH kl.5.30 - 8 - 10.30
BE KIND REWIND kl. 8 - 10.15
DIVING BELL kl.5.40 - 8
27 DRESSES kl.5.30 - 10.10
SEMI PRO kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
SEMI PRO LÚXUS kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10
BE KIND REWIND kl. 5.45 - 8 - 10.15
27 DRESSES kl. 8 - 10.30
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 3.30 ÍSL. TAL
JUMPER kl. 6 - 10.10
BRÚÐGUMINN kl. 3.40 - 5.50 - 8
SEMI PRO kl. 6 - 8 - 10
THE KITE RUNNER kl. 6 - 9
THERE WILL BE BLOOD kl. 8
INTO THE WILD kl. 10.10
ATONEMENT kl. 5.30
BRÚÐGUMINN kl. 5.50 - 8
5%
5%
5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN
MEÐ KREDITKORTI TENGDU AUKAKRÓNUM!
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
S.V. - MBL.
S.V. - MBL.
B.B - 24 STUNDIR
M.M.J - kvikmyndir.com
-V.J.V. - Topp5.is / FBL
- H.J. - MBL
Topp5.is
Hugljúf og í allan stað frábær mynd
um drauma og hvernig þeir rætast
ef maður bara vill trúa því.
-24 Stundir
MYND SÍÐASTA ÁRS.
SÍÐARI ÁRA OG EIN BESTA
„EIN BESTA HROLLVEKJA
ÉG HVET ALLA TIL
Að SKELLA SÉR Á ÞESSA“
- D.Ö.J.
KVIKMYNDIR.COM
,,Í HÓPI BESTU HROLLA
SEM KOMIÐ HAFA
UNDANFARIN ÁR."
- LIB, TOPP5.IS/FBL
REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
SELFOSS
AKUREYRI
KEFLAVÍK
THE BUCKET LIST kl. 6 - 8 - 10:10 7
AUGUST RUSH kl. 5:30 - 8 7
DARK FLOORS kl. 10:30 14
UNDRAHUNDURINN ÍSL TAL kl. 6 L
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 16
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 VIP
THERE WILL BE BLOOD kl. 10:30 16
STEP UP 2 kl. 5:50 - 8 -10:10 7
P.S. I LOVE YOU kl. 8 L
DIGITAL
THE BUCKET LIST kl. 8 - 10:10 L
THERE WILL BE BLOOD kl. 10:20 16
27 DRESSES kl. 8 L
UNDRAHUNDURINN ÍSL TAL kl. 6 L
THE BUCKET LIST kl. 8 7
STEP UP 2 kl. 6 - 10 7
JUNO kl. 8 7
DARK FLOORS kl. 10 16
NJÓTTU
LÍFSINS
ÓSKARSMYNDIRNAR
ERU Í SAMBÍÓUNUM
nánari upplýsingar um ÓSKARSMYNDIRNAR má finna á www.SAMbio.is
ÞAÐ ELSKA ALLIR JUNO! BESTI VINUR MANNSINS
AUGUST RUSH
27 DRESSES kl. 8 L
DEATH AT A FUNERAL kl. 8 7
ATONEMENT kl. 10:10 12
SWEENEY TODD kl. 10:10 16
THE BUCKET LIST kl. 6 - 8:20 - 10:30 7
JUNO kl. 6 - 8 - 10:10 7
UNDRAHUNDURINN ÍSL TAL kl. 6:10 L
STEP UP 2 kl. 8:20 - 10:30 7
- bara lúxus
Sími: 553 2075
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
SEMI-PRO kl. 6, 8 og 10 12
FLUGDREKAHLAUPARINN kl. 5.30, 8 og 10.20 12
RAMBO kl. 8 og 10 16
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 5.30 L
2
- 24. Stundir
- V.J.V., Topp5.is
- M.M.J., kvikmyndir.com
- S.V., MBL
- L.I.B., topp5.is
20%
afsláttur
fyrir
Vörðufélaga
Borkó er listamannsnafn Björns
Kristjánssonar. Hann hefur feng-
ist við tónlist í mörg ár, hefur m.a.
samið eitthvað fyrir leikhús og á að
baki eina EP-plötu sem kom út
fyrir nokkrum árum hjá Resonant-
merkinu, en Celebrating Life er
hans fyrsta stóra plata. Hún er
búin að vera lengi í vinnslu; elsta
lagið á henni er orðið sex ára gam-
alt. Platan kemur út hjá Kimi Rec-
ords hér á Íslandi og á vegum Morr
Music í Evrópu, en Borkó er þessa
dagana á tónleikaferð um álfuna
með múm.
Borkó má hiklaust telja til krútt-
senunnar. Þegar hann spilaði á Air-
waves síðasta haust fylgdu honum
nokkrir af hirðhljóðfæraleikurum
þeirrar senu og bæði Örvar Þóreyj-
arson Smárason og Gunnar Örn
Tynes úr múm koma við sögu á
Celebrating Life; Örvar sem texta-
höfundur og hljóðfæraleikari og
Gunnar sem upptökustjóri með
Borkó sjálfum.
Það fyrsta sem kemur upp í hug-
ann þegar maður heyrir fyrstu tón-
ana í upphafslaginu Continental
Lover er líka múm. Áferðin og
stemningin eru mjög lík. Eins og
hjá múm er tónlist Borkó marglaga
sambland af raftónlist og lifandi
hljóðfæraleik. En þegar maður
hlustar meira og betur á Celebrat-
ing Life þá uppgötvar maður að
Borkó hefur alveg sín sérkenni
sem skilja hann frá múm og öðrum
krútturum.
Eitt af þeim eru áhrif frá stór-
sveitum áttunda áratugarins. Gítar-
leikurinn og risið í laginu Sushi
Stakeout minnir t.d. einna helst á
Pink Floyd á Dark Side Of The
Moon eða Wish You Were Here og
lokalagið Hondo & Borko er ein-
hvers konar uppfærð útgáfa af
proggrokki. Andi áttunda áratug-
arins svífur yfir vötnum. Það er
samt alls ekki eins og þetta sé ein-
hver retró-plata, heldur er sevent-
ís-fílingurinn eitt af hráefnunum í
bragðmikilli tónlistarsúpu Borkós.
Flest þeirra átta laga sem eru á
Celebrating Life eru án söngs og
þau lög sem eru sungin eru bara
með texta í smá kafla. Samt er plat-
an melódísk og poppuð. Og fjöl-
breytt. Lagið Summer Logic er
borið uppi af lúðrablæstri og munn-
hörpuleik, en í næsta lagi Doo Doo
Doo eru raddir og gítar mest áber-
andi. Textinn og söngmelódían í
Dingdong Kingdom („Hello is it me
you’re looking for/ding dong, are
you standing at my door/peeping
through my keyhole/smelling my
kingdom...“) eru bráðskemmtileg
og sýna að húmorinn er eitt af því
sem skapar Borkó.
Celebrating Life er heilsteypt og
virkar mjög vel þegar maður spil-
ar hana alla í gegn í einu. Fyrsta
íslenska snilldarplatan á árinu
2008.
Trausti Júlíusson
Fyrsta snilldarplata ársins
TÓNLIST
Celebrating Life
Borkó
★★★★
Þó að það sé margt sem minnir á
krúttsveitir eins og múm og Benna
Hemm Hemm hjá Borkó þá hefur
tónlist hans alveg sín sérkenni líka.
Hún er margþætt en líka melódísk og
poppuð. Fyrsta snilldarplata ársins.
Trappa, önnur plata hljómsveitarinnar
Steintryggs, er komin út. Freyr Bjarnason
spjallaði við bank-bræðurna Steingrím
Guðmundsson og Sigtrygg Baldursson.
Þeir Steingrímur og Sigtryggur hafa unnið að Tröppu
undanfarin fjögur ár með hléum. Fengu þeir til liðs
við sig fjölda hljóðfæraleikara af ýmsum þjóðernum
og eftir það sá ástralski tónlistarmaðurinn Ben Frost,
sem er búsettur hérlendis, um að fullvinna verkið
með hljóðgöldrum sínum. „Við vorum að djöflast í
„lókal“ tónlistarmönnum hér og hvar,“ segir Sig-
tryggur um þriggja vikna tónleikaferð Steintryggs til
Evrópu. „Við vorum með stúdíó með okkur og það var
það sem þetta gekk út á, að ferðast, spila, taka upp og
hitta „lókal“ tónlistarmenn.“
Tyrkneskur flautusnillingur
Á meðal gesta Steintryggs á plötunni er tyrkneski
strengja- og flautusnillingurinn Hadji Tekbilek.
„Hann er rosalega flinkur músíkant og spilar á
skemmtileg hljóðfæri,“ segir Steingrímur. Einnig
koma við sögu dansk-hollenski hljóðfæraleikarinn
Sören Venema, Daninn Lars Bo Kujahn sem leikur á
flathörpu, Quanooon frá Egyptalandi og barkasöng-
hópurinn Huun Huur Tu sem spilaði á Listahátíð í
Reykjavík 2005. Að auki koma fram Kammerkór
Suðurlands, saxófónleikarin Jóel Pálsson, Dave
Randall, gítarleikari bresku sveitarinnar Faithless,
og munnhörpuleikarinn David Jones frá Wales.
Áhrif héðan og þaðan
„Við lítum ekki á þetta sem heimstónlist miðað við
þann skilning sem er beinlínis lagður í það orð,“ segir
Sigtryggur um tónlist Steintryggs. „Við lítum á þetta
sem tilraunakennda tónlist. Við erum að taka fullt af
áhrifum héðan og þaðan úr heiminum og búum til
ryþmagrunna sem við teljum vera nokkuð einstaka
fyrir okkur, báða slagverksmenn. Svo fer þetta allt í
gegnum filterinn hjá karlinum, Ben Frost.“
Steintryggur heldur útgáfutónleika á Organ í kvöld
til að fagna plötunni og hefjast þeir klukkan 22.00.
Eftir það spilar sveitin á tónlistarhátíðinni Aldrei fór
ég suður á Ísafirði á föstudaginn langa.
Gestkvæmt hjá Steintryggi
STEINTRYGGUR Sigtryggur Baldursson, Ben Frost og Steingrím-
ur Guðmundsson hafa sent frá sér plötuna Trappa.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Íslenska listahópnum The Weird Girls Project hefur
verið boðið að koma fram á Concrete and Glass-lista-
hátíðinni í London í byrjun október. Með hópnum í
för verður listakonan Berglind Ágústsdóttir sem
mun flytja þrjú lög af fyrstu sólóplötu sinni. Á meðal
þeirra flytjenda sem koma fram á hátíðinni eru Yeah
Yeah Yeahs, MIA, The Horrors, Liars og TV on the
Radio.
Kitty Von-Sometime, leiðtogi The Weird Girls
Project, segir að einn af skipuleggjendum hátíðar-
innar hafi frétt af tilurð hópsins á síðustu Airwaves-
hátíð og ákveðið að bjóða honum til London. „Ég hélt
að okkur yrði ekki boðið því þetta er stór hátíð og við
erum tiltölulega nýstofnaður hópur, höfum aðeins
starfað í eitt ár. Þess vegna er þetta mikill heiður,“
segir Kitty.
Hópurinn er skipaður hátt í þrjátíu stúlkum sem
eru flestar á þrítugsaldri. Hefur hann tekið þátt í
ýmsum uppákomum sem Kitty hefur séð um að
skipuleggja. Fá stúlkurnar aldrei að vita fyrr en á
hólminn er komið hvert verkefnið er eða hvernig
þær verða klæddar. „Ég sagði við þær að þær yrðu
að samþykkja að vera ljósmyndaðar og kvikmyndað-
ar ef þær vildu vera með og það hefur ekki skipt
neinu máli. Þær treysta mér algjörlega og gera það
sem ég segi. Þetta hefur líka styrkt þeirra sjálfs-
mynd og þær eru ekki eins feimnar og áður,“ segir
hún.
Á meðal verkefna The Weird Girls Project er þátt-
taka í tónlistarmyndbandi á Laugarvatni fyrir banda-
rísku hljómsveitina Heartsrevolution og ljósmynda-
taka þar sem hópurinn stillti sér upp og hermdi eftir
frægu málverki Leonardo Da Vinci, Síðustu kvöld-
máltíðinni. - fb
Skrýtnar stúlkur til London
THE WEIRD GIRLS PROJECT Kitty og vinkonur hennar í The
Weird Girls Project taka þátt í listahátíð í London í október.