Fréttablaðið - 13.03.2008, Síða 87

Fréttablaðið - 13.03.2008, Síða 87
FIMMTUDAGUR 13. mars 2008 51 Hljómsveitin Kings of Leon og tónlistarmaðurinn Will Oldham, einnig þekktur sem Bonnie Prince Billy, hafa bæst í hóp þeirra sem spila á Hróarskeldu- hátíðinni í sumar. Einnig hafa rokksveitin The Dillinger Escape Plan og sinfón- íuhljómsveitin The Tivoli Symphony Orchestra frá Dan- mörku bæst við dagskrána. Á meðal fleiri flytjenda sem hafa bókað sig á hátíðina eru Radio- head, Neil Young, The Chemical Brothers, Judas Priest, Slayer og The Streets. Hróarskelda 2008 fer fram dagana 3.-6. júlí og hefst upphitun 29. júní. Kóngarnir á Hróarskeldu KINGS OF LEON Sveitarokkararnir spila á Hróarskelduhátíðinni í sumar. Heilsíðugrein um feril Bjarkar Guðmundsdóttur var að finna í laugardags- útgáfu breska dagblaðs- ins The Independent. Til- efnið er hvatningarorð hennar til Tíbet á tónleik- um sínum í Kína sem hafa vakið mikla athygli víða um heim. „Það hlýtur að vera leiðinlegt að vera Björk þessa dagana. Eftir allar frábæru plöturnar, fram- sæknu tónlistarmynd- böndin og framandi klæðnaðinn á hin óút- reiknanlega stjarna sífellt erfið- ara með að koma aðdáendum sínum á óvart. En henni tókst það með því að æpa „Tíbet!, Tíbet!“ á tónleikum í Sjanghaí undir lok lagsins Declare Independ- ence,“ sagði í grein- inni. „Þessi árás á kín- versk stjórnvöld var svolítið eins og að kasta smásteinum í fíl. Ef Steven Spielberg getur ekki haft áhrif á stefnu kínverskra stjórnvalda, hvaða möguleika á þá tónlist- arkona eins og Björk?“ Í greininni er því einnig haldið fram að Björk sé með uppreisnarandann í blóðinu því móðir hennar sé fem- ínisti og faðir hennar formaður Rafgreinasambands Íslands. Uppreisn í blóðinu BJÖRK GUÐMUNDSDÓTT- IR Breska dagblaðið The Independent birti heil- síðugrein um feril Bjarkar Guðmundsdóttur. Nú standa Músiktilraunir yfir. Þar hefur alltaf verið (mis)hátt hlutfall hljómsveita sem spila argasta þungarokk af öllum tegundum. Arnar Eggert Thor- oddsen sem sér um þáttinn Metall!!! á Rás 2 ætlar að fjalla um Músiktilrauna-þungarokkið í þættinum í kvöld strax á eftir tíufréttum. Af mörgu er að taka og Arnar rótar eftir gullmolunum í safni RÚV. Hlustendur mega eiga von á að heyra í dauðarokk- sveitinni Sororicide, sem vann keppnina árið 1991 (undir nafninu Infusoria), Bootlegs sem tók þátt fjórum sinnum, hornfirsku bylmingssveitinni Mosaeyði sem sló í gegn með ópusnum „Ég elska Satan“ og Bee Spiders, grugg- sveit sem Jónsi í Sigur Rós fór fyrir. Ég elska Sat- an á Rás 2 CRANIUM VARÐ Í ÖÐRU SÆTI 1993 Spilaði dauðarokk og lét mynda sig í kirkju. Verktakafyrirtækið Strúctor byggingaþjónusta ehf. hefur stefnt Ríkharði Daðasyni, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmanni í knattspyrnu, vegna vangoldinna greiðslna í tengslum við viðgerð á húsnæði hans að Sunnuvegi í Reykjavík. Húsnæðið þarfnaðist viðgerða þegar Ríkharður festi kaup á því og réð hann Strúctor, sem sérhæfir sig í breytingum og endurnýjun húsnæðis, til að sjá um verkið. Að sögn lögfræðings Ríkharðs, Steinars Þórs Guðgeirssonar, sem er fyrrverandi leikmaður Fram eins og Ríkharður, var skjólstæðingur hans ósáttur við viðgerðina. Neitar hann að greiða þá upphæð sem fyrirtækið vill fá fyrir verkið og því er málið á leið fyrir dómstóla. Talsmaður Strúctor vildi ekkert láta hafa eftir sér í tengslum við málið en staðfesti þó að Ríkharður hefði ekki greitt fyrir umbeðna þjónustu og fullyrti að fyrirtækið hefði staðið við öll sín loforð við framkvæmd viðgerðarinnar. Ríkharður Daðason spilaði fjölda landsleikja fyrir Íslands hönd og var jafnan duglegur að þenja út netmöskvana. Einnig spilaði hann sem atvinnumað- ur bæði í Noregi og á Englandi við góðan orðstír. Eftir að hann kom heim til Íslands spilaði hann með sínum gömlu félögum í Fram áður en hann lagði skóna á hilluna. - fb Verktaki stefnir fótboltakappa RÍKHARÐUR DAÐASON Knattspyrnu- kappinn fyrrverandi Ríkharður Daðason á í deilum við verktakafyrir- tækið Strúctor byggingaþjón- ustu ehf.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.