Fréttablaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
LAUGARDAGUR
15. mars 2008 — 74. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
da
gar
til paska
i
8
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is
50
TÓNLIST Bob Dylan leikur ásamt
hljómsveit sinni í Egilshöll mánu-
daginn 26. maí. Hljómsveitina
hefur Dylan kallað „bestu hljóm-
sveit sem ég hef unnið með“ en
saman hafa Dylan og hljómsveitin
leikið víða um heim síðustu árin.
Dylan er í fantaformi um þessar
mundir og spilar sín vinsælustu
lög á tónleikum. Þetta verður í
annað sinn sem meistarinn leikur á
Íslandi.
Bob Dylan er tvímælalaust einn
af risum rokksögunnar og hefur
haft gríðarleg áhrif á hana. Hann
hefur gert 32 hljóð-
vers plötur á ferlinum,
hin fyrsta kom út árið
1962, en sú nýjasta, Mod-
ern Times, kom út árið
2006. Dylan á tíu plötur á
frægum lista Rolling
Stone-tímaritsins yfir 500
bestu plötur allra tíma,
þar af tvær plötur á topp tíu. Aðeins
Bítlarnir státa af betri árangri, eiga
ellefu plötur á listanum.
Ísleifur B. Þórhallsson
hjá Concert á heiðurinn
að tónleikum Dylans og
hefur unnið að komu hans
hingað í tvö ár.
- glh / sjá bls. 62
Einn af risum rokksögunnar er væntanlegur í Egilshöll þann 26. maí:
Bob Dylan spilar í Grafarvogi
SPILAR ALLA SMELLINA Bob
Dylan er væntanlegur ásamt
hljómsveit.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu vinnur nú að
breyttu skipulagi á hundahaldi
embættisins. Starfshópur vinnur
að hugmyndum um að fá nýja
hunda sem sinni öðru en leit að
fíkniefnum.
„Það er ekkert launungarmál að
okkar hugmyndir eru þær að nýta
betur þá hunda sem eru í umdæm-
unum á suðvesturhorninu,“ segir
Hörður Jóhannesson aðstoðarlög-
reglustjóri.
„Það hafa ekki verið teknar
neinar endanlegar ákvarðanir en
það sem við erum að velta fyrir
okkur er tvennt; í fyrsta lagi að í
ljósi þess að tollgæslan á svæð-
inu er með allnokkra hunda sem
eru sérþjálfaðir til fíkniefnaleit-
ar þá getum við fengið fullnægj-
andi þjónustu hjá þeim. Sé staðan
sú, höfum við hug á að fá okkur
annars konar hunda, til að mynda
svokallaða valdbeitingarhunda,
sem eru notaðir ef einhverjar róst-
ur verða. Jafnframt erum við að
huga að leitarhundum sem ekki
leita að fíkniefnum heldur að
munum og jafnvel lífsýnum.“
Hörður bendir á að í umræddum
umdæmum séu nú margir fíkni-
efnaleitarhundar, fleiri en þörf er
fyrir. Hagkvæmara væri að sam-
nýta hundana með tollgæslunni og
koma upp annars konar lögreglu-
hundum á höfuðborgarsvæðinu.
Slík samvinna embætta lögreglu-
og tollyfirvalda á svæðinu verði þá
angi af því góða og vaxandi sam-
starfi sem nú er.
Hörður segir að lögð sé áhersla á
að skoða fyrst samstarf um fíkni-
efnaleitarhunda. Því hafi núver-
andi vinnufyrirkomulagi verið
sagt upp með góðum fyrirvara.
Síðan verði nýir hundar fengnir.
„Þetta er einungis spurning um
skipulag,“ útskýrir hann. „Við
höfum verið með fimm eða sex
hundamenn á stundum og reynt
ýmiss konar fyrirkomulag á liðnum
árum, bæði lögreglan í Reykjavík
og síðan á höfuðborgarsvæðinu. Nú
erum við að skoða sóknarfæri til að
gera þetta liprara og að ekki haldi
öll embætti fíkniefnaleitarhunda.
Gæði þeirra og virkni byggist á því
að þeir séu í stöðugri æfingu.“ - jss
Lögreglan vill hunda
til valdbeitingar
Svokallaðir valdbeitingarhundar og hundar sem leita að munum og lífsýnum
eru að líkindum það sem koma skal hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
NÁTTÚRA Ekki er víst að allir séu
ánægðir með að sjá þennan
myndarlega geitung sem Ágúst
Leifsson húsasmíðameistari og
félagar hans rákust á við vinnu
sína á Þinghólsbraut í gær.
Að slík skordýr séu vöknuð af
vetrardvala er þó greinilegt merki
um að vorið sé á næsta leiti.
Erling Ólafsson, skordýrafræðing-
ur hjá Náttúrufræðistofnun, segir
suma geitunga liggja inn undir
húsþökum sem hitni með hækk-
andi sól. „Einmitt nú um miðjan
mars fara því hlutirnir að gerast.“
Þá greindi Ríkisútvarpið frá því
í gær að sést hefði til og heyrst í
lóum í Grafarholtinu. Eru það
fyrstu fréttir af því að vorboðinn
ljúfi sé kominn til landsins. - ovd
Skordýr vakna af dvala:
Vorið er á
næsta leiti
FYRSTU MERKI VORKOMUNNAR
Geitungurinn sem heilsaði Ágústi Leifs-
syni var nokkuð dasaður eftir langan svefn
undanfarna mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Mannslífum bjargað með símtali
Jónas Gunnar Allansson og Bjarney Frið-
riksdóttir voru friðargæsluliðar á Srí Lanka
þegar samkomulagið um vopnahléið var
rofið. 34&35
formúla 1LAUGARDAGUR 15. MARS 2008
Formúla 3 líka í beinni
Íslendingarnir í Formúlu 3 verða í beinni á Stöð 2 Sport.
BLS. 6
N
O
RD
ICPH
O
TO
S/G
ETTY IM
A
G
ESFYLGIR Í DAG
HANDBOLTI Gunnar Pettersen,
landsliðsþjálfari Noregs, segir að
leikir við Norðmenn um páskana,
sem forsvarsmenn Handknatt-
leikssambands Íslands segjast
hafa afþakkað, hafi verið slegnir
út af borðinu í Noregi í nóvember.
HSÍ hafi klúðrað málinu með því
að svara ekki tölvupósti frá norska
handknattleikssambandinu.
Klúðrið uppgötvaðist fyrir
mánuði en ekki var greint frá
raunverulegri ástæðu þess á
blaðamannafundi á fimmtudag.
„Það hefði hugsanlega mátt orða
hlutina öðruvísi,“ sagði Guðmund-
ur Ingvarsson, formaður HSÍ.
- hbg / sjá síðu 58
HSÍ kom ekki hreint fram:
Noregsleikir
voru ekki í boði
Bjartviðri Í dag verður bjart og
fallegt veður. Helgin er kjörin til úti-
vistar og má gera ráð fyrir hægviðri
um allt land. Með bjartviðrinu má
svo búast við talsverðu frosti og
jafnvel góðum skilyrðum til að sjá
norðurljós í kvöld og nótt.
VEÐUR 4
-1 -1
-2
3
3
HEFUR RÆKTAÐ
KETTI Í 13 ÁR
Er kattarækt
gróðafyrirtæki
eða rándýr
hugsjón?
VIÐTAL 38
ÁHRIF FRÁ ASÍU
Hönnuðir sækja
innblástur til hins
dularfulla austurs.
ÞAÐ VAR DURAN DURAN! Menntaskólinn í Reykjavík bar sigurorð af Menntaskólanum á Akureyri í spurningakeppninni Gettu
betur í gærkvöldi. Bráðabana þurfti til að skera úr um sigurvegarann en Akureyringunum tókst að jafna metin með ævintýraleg-
um hætti í síðustu þremur spurningunum fyrir bráðabanann. Í úrslitaspurningunni var spurt um hljómsveitina Duran Duran.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/D
A
N
ÍE
L