Fréttablaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 15. mars 2008 19 SEND IÐ OKK UR LÍNU Við hvetj um les end ur til að senda okk ur línu og leggja orð í belg um mál efni líð andi stund ar. Grein ar og bréf skulu vera stutt og gagn- orð. Ein göngu er tek ið á móti efni sem sent er frá Skoð ana síð unni á vis ir.is. Þar eru nán ari leið bein- ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni birt ist í Frétta blað inu eða Vísi eða í báð um miðl un um að hluta eða í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt- inga og til að stytta efni. UMRÆÐAN Samgöngumál Hafist verður handa við tvær meiri háttar samgöngubæt- ur – tvöföldun Suðurlandsvegar og Vaðlaheiðargöng – strax á næsta ári. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi nú í vikunni og kynnt á blaðamannafundi á fimmtudag. Báðar þessar fram- kvæmdir eru hluti af viðauka við samgönguáætlun 2007-2010, sem ríkisstjórnin boðaði sem hluta af mótvægisaðgerðum vegna niður- skurðar á þorskkvóta. Tvöföldun til Hveragerðis Lengi hefur verið talað um tvö- földun Suðurlandsvegar. Slys hafa verið tíð á veginum og umferð þar er mikil og fer vax- andi. Ákvörðun ríkisstjórnarinn- ar um að hefjast handa við fyrsta áfanga á tvöföldun vegarins felur því í sér mikil og góð tíð- indi fyrir ökumenn. Stefnt er að því að frumdrög umhverfismats á tvöföldun vegarins frá Litlu kaffistofunni að Hveragerði verði tilbúin nú í lok maí. Þá þegar verður hönnun vegarkafl- ans boðin út og framkvæmd verksins strax í kjölfarið í nóv- ember. Framkvæmdir við tvö- földun þessa fyrsta áfanga geta því hafist að ári og ætti þeim að ljúka vorið 2011. Göng um Vaðlaheiði Vaðlaheiðargöng stytta ökuleiðina milli Akureyrar og Húsa- víkur, og þar með hringveginn, um ríf- lega 16 kílómetra auk þess sem tilkoma þeirra gerir ökumönnum kleift að sneiða hjá vegi sem oft er varasamur að vetri. Nauðsynlegt var orðið að tengja þessi tvö atvinnusvæði, Akureyri og Húsa- vík, betur saman og engin fram- kvæmd er betur til þess fallin en Vaðlaheiðargöng. Hér er því án efa um þjóðhagslega hagkvæmt verkefni að ræða, þar sem betri forsendur fyrir vexti og atvinnu- þróun á Norðausturlandi mun vitaskuld koma þjóðinni allri til góða. Undirbúningsvinna, nauð- synlegar rannsóknir og mat, hefur þegar farið fram, sem gerir það að verkum að nú er hægt að hefjast handa og ráðast í útboð. Þreföldun til tengivega Auk þessara tveggja meiri hátt- ar samgöngubóta boðar ríkis- stjórnin til enn frek- ari aðgerða á sviði samgöngumála. Um 700 milljónum verður varið til framkvæmda á tengivegum víða um land, til viðbótar við þær tæplega 1.300 milljónir sem boðað- ar voru í framkvæmd- ir við tengivegi síð- astliðið sumar. Alls renna því tveir millj- arðar til tengivega á þessu ári, sem er ríflega þreföldun frá fyrra ári. Út frá atvinnusjónar- miðum er mikilvægt að hafa í huga að þessar framkvæmdir henta minni verktökum víða um land ákaflega vel og falla því vel að markmiðum mótvægisaðgerð- anna. GSM og háhraðanet um allt land Einnig verður hafist handa við lengingu Akureyrarflugvallar, sem eykur notkunarmöguleika flugvallarins til muna og gert er ráð fyrir að komið verði upp aðstöðu fyrir innanlandsflug á Reykjavíkurflugvelli, til þess að leysa úr aðsteðjandi húsnæðis- vanda sem þarfnast úrlausnar, burtséð frá öllum ákvörðunum sem síðar verða teknar um fram- tíð flugvallarins. Í fjarskiptamálum verður einn- ig brett upp ermar. Þegar hefur farið fram útboð á lagningu háhraðanets til um 1.200 staða á landinu, sem standa fyrir utan áætlanir fyrirtækja á markaði um netuppbyggingu. Þegar þess- ir staðir verða tengdir hefur rík- isstjórnin náð því markmiði sínu að koma á háhraðaneti um land allt. Uppbygging á GSM neti hefur einnig verið sett á fulla ferð og gera áætlanir ráð fyrir að síðari áfanga í þeirri uppbygg- ingu ljúki á næsta ári. Jafnvel má gera ráð fyrir, ef áætlanir ganga eftir, að landið allt verði orðið GSM-vætt um áramót. Sókn í samgöngumálum Aldrei hefur jafnmiklu fé verið varið til samgöngumála og nú. Það er í samræmi við fyrirheit beggja stjórnarflokkanna á sviði samgöngumála, enda eru góðar samgöngur í víðustu merkingu þess orðs lykillinn að hagvexti og blómlegu mannlífi í landinu. Þær aðgerðir sem nú eru boð- aðar og hér hafa verið raktar marka vitaskuld ekki endapunkt á framkvæmdum í samgöngu- málum. Meira stendur til. Á það hefur verið bent að ýmsar vega- framkvæmdir á suðvesturhorn- inu og þá einkum á höfuðborgar- svæðinu séu orðnar verulega aðkallandi. Undir það tek ég heilshugar. Næsta stórfram- kvæmd á dagskrá er Sundabraut. Hún hefur alltaf verið forgangs- mál í mínum huga. Fyrirhuguð lagning hennar er nú í lögform- legu matsferli. Höfundur er samgönguráðherra. Meiri háttar samgöngubætur KRISTJÁN MÖLLER Aldrei hefur jafnmiklu fé verið varið til samgöngumála og nú. Það er í samræmi við fyrirheit beggja stjórnarflokkanna á sviði samgöngumála... Prófaðu Heimaöryggi í 2 mánuði án endurgjalds – án skuldbindinga. Hringdu núna í 570 2400 og fáðu Heimaöryggi í áskrift! www.oryggi.is T B W A \R E Y K JA V ÍK \ S ÍA \ 9 08 03 50 Heimaöryggi með útkallsþjónustu öryggisvarða býðst á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi, Akranesi, Akureyri og í Árborg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.