Fréttablaðið - 15.03.2008, Blaðsíða 80
40 15. mars 2008 LAUGARDAGUR
Hvenær varstu hamingjusöm-
ust? Þegar ég vaknaði í morgun
eins og alla aðra daga.
Við hvað ertu hræddust? Er
ekki hrædd við neitt, bít bara á
jaxlinn og tek öllu sem kemur.
Hver er fyrsta minningin þín?
Ég, mjög ung á 17. júní-skemmt-
un á Akranesi, sól og blíða eins og
svo oft á Skaganum.
Hvaða útivistarferð er þér
minnisstæðust? Sú síðasta; í fjall-
göngu með frábærum hópi fólks í
æfingaferð 66°Norður og
Íslenskra fjallaleiðsögumanna
upp Skarðsheiði, algjör snilld.
Hvað er það versta sem ein-
hver hefur sagt við þig? „Skák og
mát“ − á mjög erfitt með að tapa í
skák en verð að viðurkenna að
hafa heyrt þetta nokkrum sinnum.
En ekkert svakalega oft.
Hvað gerir þú alltaf á laugar-
dögum? Sef meira en á virkum
dögum.
Hvaða kæki ertu með? Er hægt
að flokka stjórnsemi undir kæki?
Hvernig slakar þú á? Í faðmi
fjölskyldunnar.
Hverjar eru uppáhaldsflíkurn-
ar þínar? Þær eru ansi margar en
Glymur, öndunarfatnaðurinn frá
66°Norður, hefur reynst mér mjög
vel og ullarfötin sem ég klæðist
við hvert tækifæri. En svo á ég
líka forláta dúnsokka sem eru
nauðsynlegir fyrir fólk eins og
mig.
Uppáhaldstímarit og af hverju?
Skakki turninn og Lifandi vísindi,
fullt af alls konar fróðleik. Hlakka
alltaf til að fá næsta tölublað.
Hvar myndir þú helst vilja búa
ef þú hefðir frjálst val? Á Ísland-
inu, það er ekki hægt að hafa það
betra.
Draumafríið? Verður tekið í
sumar á Íslandi. Upp á fjöll og
niður í dali og svo verða sundlaug-
ar landsins kannaðar.
Hvað er það mikilvægasta sem
þú hefur lært í lífinu? Að njóta
hverrar mínútu og sem flestra
með þeim sem maður elskar. Svo
lærir maður vonandi eitthvað
meira.
Ef þú værir að halda hið full-
komna matarboð, hvaða fjórum
manneskjum myndirðu vilja
bjóða? Ásdísi systur, Vöku
frænku, Friðrikku vinkonu og svo
auðvitað Hillary Clinton.
Hvaða bók gætir þú lesið aftur
og aftur? Hef engan tíma í svo-
leiðis lúxus.
Hundur eða köttur? Hef átt
bæði hund og kött og get ómögu-
leg séð mig í þessum dýrum. En
báðar tegundir mjög skemmtileg-
ar.
Áttu þér einhvern leynistað á
Íslandi? Já, reyndar á ég það og
ég ætla ekki að segja frá.
Er einhver núlifandi mann-
eskja sem þú hatar? Nei, hvorki
núlifandi né þálifandi.
Hvað bera næstu sex mánuðir
í skauti sér? Nú er vorið að koma
svo það er ótal margt fram undan.
Einna helst fjallgöngur í mjög
miklum mæli.
Hvernig fjallgöngur? Við hjá
66°Norður ásamt Íslenskum fjalla-
leiðsögumönnum settum saman
heildstæða og raunhæfa æfinga-
áætlun sem ætti að gera flestum
kleift að standa á hæsta tindi
Íslands, Hvannadalshnúki. Dag-
skrá áætlunarinnar byggist ekki
eingöngu á göngum heldur er líka
í boði fræðsla um hina ýmsu þætti
sem hafa verður í huga þegar tek-
ist er á við fjöll og firnindi. Ég
hvet alla til að kynna sér æfinga-
áætlunina nánar því að þetta er
búið að vera ævintýri líkast
hingað til og næsta fjall sem
við förum á er Hekla hinn 29.
mars. Allar upplýsingar er að
finna á www.66north.is
amb@frettabladid.is
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Helga Viðars-
dóttir.
FÆÐINGARÁR: 16. janúar 1974
og það markverðasta á því ári
var að Siggi frændi fæddist.
STARF: Framkvæmdastjóri
markaðssviðs 66°Norður.
HELGA VIÐARSDÓTTIR MARKAÐSSTJÓRI HJÁ 66 NORÐUR Draumafríið er í sumar á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þykir verst að tapa í skák
Helga Viðarsdóttir er að skipuleggja ferð fyrir alla sem langar með á Hvannadalshnúk í sumar.
Fréttablaðið tók hana í þriðju gráðu yfirheyrslu.
■ Á uppleið
Stuttar strákaklipping-
ar Nú eiga allar aðal-
skvísurnar að verða eins
og fyrirsætan Agyness
Deyn.
Vorboðar Þegar rónarnir eru farnir
að garga á eftir þér í bænum og
mótorhjólin geysast um bæinn þá
veistu að vorið er á næsta leiti.
Sumarbústaðaferðir Sólin hækkar
á lofti og um að gera að hafa það
rómó með elskunni við arineldinn.
Garðumhirða Ömurlegt að leita að
páskaeggjum í ljótum vorgörðum þar
sem enn er að finna flugeldaspýtur
og rakettubréf.
Skjálfti Frábært nafn á nýjum
íslenskum bjór. Afbragðsgóður og
veldur vonandi ekki of miklum
skjálfta.
Ritdeilur Fræg-
ir menn ráðast
hver á annan í
bloggheimum.
Ekkert betra að
gera í marsmán-
uði en hlæja að
svona steypu.
■ Á niðurleið
Facebook Gamanið fer að kárna
þegar vinur þinn úr tíu ára bekk fer að
kalla þig „gæludýrið“ sitt og vill senda
þér uppáhalds kynlífsórana sína.
Að segja „ég vill“ Hver einasti
Íslendingur hlýtur að hafa lært að
beygja sögnina „ að vilja“ í sex ára
bekk.
Kreppuhlakkarar Nóg komið af
fólki sem bíður með blóðbragð í
munni eftir uppsögnum í bönkum.
Kreppur bitna mest á þeim sem síst
skyldi. Stöndum
saman Íslendingar!
SMS-viðreynsla
Karlmenn sem
halda að það sé
nóg að senda
manni eins
atkvæðis sms-
skeyti fullir á
miðnætti til að
sjarmera mann
upp úr skónum.
Fjáröflunardinnerar Hvers
vegna gefur lið sem hefur efni á
tugþúsunda-galadinner ekki bara
allan peninginn og situr heima
og skammast sín á meðan
konur og börn svelta?
Páskaskraut Gult og
grænt þema, ungar og
fjaðrir? Hverjum datt þessi
viðbjóður eiginlega í hug.
MÆLISTIKAN