Fréttablaðið - 15.03.2008, Síða 36
[ ]Sandalar og ermalaus bolur skulu vera í töskunni þegar haldið er til sólarlanda. Einnig er gott að hafa með sér sólgleraugu, handklæði og sólaráburð.
Íslenskir fjallaleiðsögumenn
hafa skipulagt ferð til Austur-
Pýreneafjalla í lok apríl.
„Þetta er fyrsta ferð Íslenskra
fjallaleiðsögumanna til þessa
gósenlands fjallaáhugafólks og er
stefnan tekin inn í hjarta Katalón-
íu, á sjálfan Canigou-tindinn, þjóð-
artákn Katalóníubúa. Canigou-
tindur rís tígulegur upp af grænum
sléttum Prades, þar sem Miðjarð-
arhafsloftslag og flóra ráða ríkj-
um,“ segir Dagný Indriðadóttir
leiðsögukona sem verður farar-
stjóri í gönguferðinni.
Á tindinum sjálfum má hins
vegar gera ráð fyrir snjó og harð-
gerðari plöntum enda rís hann í
2.784 metra hæð. Eins og gefur að
skilja er gróðurfarið afar fjöl-
breytt, og landslagið býsna ólíkt
því sem við eigum að venjast,
gljúfur, gil og granítveggir. „Það
er fleira en landslag og gróðurfar
sem hugað verður að en menning
og hefðir Katalóna eru um margt
áhugaverðar. Gisting er alla jafna
í bændagistingu í fjallaþorpunum
þar sem hægt er að fá líferni
heimafólks nánast beint í æð,
bragða á fjallaostum og dreypa á
fjallavíni,“ útskýrir Dagný.
Gengið verður í fimm daga og
meðal annars á Canigou-tindinn.
Alltaf er gengið á göngustígum
sem gerir gönguna létta og þægi-
lega. Þetta er ferð sem hentar
öllum þeim sem hafa áhuga á því
að kynnast nýju umhverfi og upp-
lifa stórbrotið umhverfi. Öll leið-
sögn verður í höndum heimafólks,
sem gerir gæfumuninn þegar
framandi staðir eru heimsóttir.
Flogið veður til Barcelona í morg-
unflugi og við lendingu tekur stað-
arleiðsögumaður við hópnum og
er fyrsti áfanginn akstur til þorps-
ins Villefranche de Conflent, sjar-
merandi sveitaþorps þar sem hin
raunverulega ganga hefst.
Allar nánari upplýsingar um
ferðina er að finna á heimasíðu
Íslenskra fjallaleiðsögumanna,
www.fjallaleidsogumenn.is.
mikael@frettabladid.is
Gangan um Pýreneafjöllin er þægileg og létt og hæfir því öllum.
Inn í hjarta Katalóníu
Átján manna hópur á vegum
Ferðafélags Íslands heldur í
páskaferð á Hornstrandir.
„Hornstrandir eru ólýsanlega
heillandi heimur þar sem maður
og náttúra verða eitt,“ segir Sig-
rún Valbergsdóttir, annar tveggja
leiðsögumanna í páskaferð Ferða-
félags Íslands, þegar hún er innt
eftir fróðleik um hið fyrirheitna
land. Hún hefur dvalið á páskum á
Hornströndum í tíu ár og á ekki
erfitt með að fljúga þangað í hug-
anum. Hinn leiðsögumaðurinn í
páskaferðinni er Bragi Hannibals-
son.
Flogið verður til Ísafjarðar á
skírdagsmorgun og farið beint
með báti til Hesteyrar í Jökulfjörð-
um. Þar verður gamli Læknisbú-
staðurinn vakinn af vetrardvala
því hann verður bústaður ferða-
fólksins fram á annan í páskum.
„Það er ekki síst fyrir töfra
þessa húss sem tilhlökkunin er
mikil vegna ferðarinnar. Það er
ekki hægt að hugsa sér yndislegri
íverustað og það í þessu magnaða
umhverfi,“ segir Sigrún. Hún segir
stefnt að löngum gönguferðum á
hverjum degi, t.d. að Sléttu, Stað í
Aðalvík og í Stakkadal. Einnig á
nálæg fjöll, svo sem Nasa, Mann-
fjall og Kagrafell. Allt segir hún
þó háð veðri og færð.
Annan í páskum er hópurinn
sóttur að Hesteyri, tímanlega fyrir
kvöldflug til Reykjavíkur. „Það
eru forréttindi að komast í þessa
ferð. Við verðum eflaust einangr-
uð á svæðinu og eina lífveran sem
við viljum ekki mæta þar er
ísbjörn,“ segir Sigrún Valbergs-
dóttir að lokum.
- gun
Heillandi
heimur
Læknishúsið er meðal þeirra húsa sem
vitna um mannlífið á Hesteyri áður fyrr.
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
BARCELONA
Skíðagönguferð í Strút
Skálavarsla í Básum alla Páskahelgina.
Ógleymanleg ævintýri
Á FERÐ UM HEIMINN
KILIMANJARO
7. - 22. júní
Mt. BLANC
21. -29. júní
UMHVERFIS Mt. BLANC
1. - 9. Júlí
SUÐUR GRÆNLAND
18. - 25. júlí
25. júlí - 1. ágúst örfá sæti laus
1. - 8. ágúst
MAROKKÓ
6. - 13. september
NEPAL
18. október - 10. nóvember
www.fjallaleidsogumenn.is
sími: 587 9999
Sp
ör
-
R
ag
nh
ei
ðu
r
Á
gú
st
sd
ót
ti
r