Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
LAUGARDAGUR
5. apríl 2008 — 92. tölublað — 8. árgangur
VERSLUN Sala á nýjum
bílum er að segja má hrun-
in eftir gengisfall krónunn-
ar. Í vikunni sem er að líða
seldist aðeins þriðjungur
þess bílafjölda sem selst hefur
vikulega það sem af er árinu.
Bílasalar segjast hafa reynt að
halda aftur af sér í verðhækkunum
en þær hafa þó verið umtalsverð-
ar.
„Það er engin launung að fólk er
miklu minna að skoða nýja bíla,“
segir Loftur Ágústsson, markaðs-
stjóri Ingvars Helgasonar, sem
kveður stöðuna einkennast af því
að menn taki einn dag í einu og bíði
átekta. „Við bíðum eftir að sjá hvar
þetta endanlega jafnar sig og
almenningur gerir það líka.“
Egill Jóhannsson, forstjóri Brim-
borgar og formaður Bílgreinasam-
bandsins, tekur undir að afar rólegt
hafi verið á markaðnum frá því í
síðustu viku.
„Þegar krónan veikist svona
skarpt finnur bílgreinin mjög hratt
fyrir samdrætti í sölu því mjög stór
hluti af bílverði er erlendur kostn-
aður. Þegar umræðan er í hámarki
og dýfan er sem dýpst heldur fólk
náttúrulega að sér höndum. Síðan
fer það að laga sig að aðstæðum og
kemur út á markaðinn aftur,“ segir
Egill.
Aðeins var skráður 151 bíll í vik-
unni eftir páska, samanborið við
281 bíl vikuna á undan og 275 bíla
vikuna þar á undan, og í vikunni
sem er að líða höfðu aðeins verið
skráðir 105 bílar á hádegi á föstu-
dag. Þrátt fyrir þetta bakslag jókst
sala nýrra bíla um fjórtán prósent
fyrstu þrjá mánuði ársins miðað
við sama tíma í fyrra. - gar/sjá síðu 4
Sala á bílum hrunin
með falli krónunnar
Gengislækkun krónunnar gerir að verkum að vikuleg sala á nýjum bíl-
um er nú aðeins þriðjungur af því sem hún var allt þetta ár. Verð á bílum
hefur hækkað mikið en bílasalar segjast þó halda aftur af hækkunum.
Rockwood Fellihýsin 2008
Við frumsýnum 2008 árgerðina af stórglæsilegum Rockwood fellihýsum
helgina 5.-6. apríl í verslun okkar að Fosshálsi 5-7.
OPIÐ LAUGARDAG KL:11-16
FLOTT VEÐUR Í dag verða norðan
5-13 m/s allra austast annars
hægviðri. Skýjað með köflum á
Norðaustur- og Austurlandi annars
bjartviðri. Frostlaust syðra að
deginum.
VEÐUR 4
-3
-2
0
3
2
MENNING „Já, ef Guð lofar. Þá fer
ég með,“ segir Grétar Mar
Jónsson alþingismaður. Félag
tónskálda og textahöfunda vinnur
nú að því að taka saman lista yfir
þá hundrað heppnu sem sóttu um
að komast með félaginu í
afmælis- og pílagrímsför til
Liverpool, á bítlaslóðir, 30. maí.
Formaður félagsins, Jakob
Frímann Magnússon, segir þá
sem skráðir eru í félagið sitja
fyrir. En þeir félagar sem ætla
með ná ekki hundrað og er því
biðlisti. - jbg/ sjá síðu 58
Eftirspurn á bítlaslóðir:
Þingmaður á
leið í bítlaferð
Ekkert skemmtilegra en að leika
Í Kommúnunni skipta fjórir hressir krakkar á aldrinum
12-13 ára með sér hlutverkum og halda brátt utan,
meðal annars til Mexíkó með sýningunni. 34
Jóhann Meunier ræðir um tísku-
heim Parísar, verslunina Liborius
og fyrirhugað samstarf við Epal.
30
heimili&hönnunLAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008● STÍLLKeppnisfólk í Kópavogi● HÖNNUN
Jean Nouvel heiðraður● HEIMA ER BEST
Upplifanir Ástrósar Gunnarsdóttur
VEÐRIÐ Í DAG
SMÁATRIÐIN
SKIPTA MÁLI
MENNING Stórt málverk eftir Erró,
úr Scape-seríu hans frá 1972-1974,
er á uppboði í París í kvöld.
Verkið er metið
á 35-47
milljónir
íslenskra
króna.
Verkið heitir
Lovescape og
er 2x3 metrar.
Það er úr sömu
seríu og verkið
Comicscape,
sem metið var
á svipuðu verði í desember
síðastliðnum. Það verk seldist á
720 þúsund evrur. Má búast við að
verkið seljist á mun hærra verði
en matsverði. - pbb
Erró á uppboði:
Verkið metið á
47 milljónir
ERRÓ
DEYR EKKI RÁÐALAUS María Ponce er 76 ára gömul og býr í þorpinu El Borbollon í El Salvador. María lét ekki fátækt sína koma
í veg fyrir að hún kæmi sér þaki yfir höfuðið. Þar sem hún hafði ekki efni á hefðbundnum byggingarefnum þá nýtti hún tómar
plastflöskur sem féllu til og byggði sér hús úr þeim. NORDICPHOTOS/AFP
UMHVERFISMÁL Leiguþota Geirs H.
Haarde forsætisráðherra, Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur
utanríkisráðherra og föruneytis
lenti á Reykjavíkurflugvelli um
klukkan sex í gær. Voru þau að
koma af fundi NATO í Búkarest í
Rúmeníu.
Samkvæmt útreikningum á
heimasíðu The Carbon Neutral
Company má áætla að einkaþotan
hafi losað 11,2 tonn af koltvísýr-
ingi (CO2) á leiðinni fram og til
baka. Til þess að kolefnisjafna
flugferðina þyrftu ráðuneytin að
planta tæplega áttatíu trjám.
Um sex klukkustundir tekur að
fljúga frá Reykjavík til Búkarest
og kom flugvélin við í Stafangri í
Noregi þar sem tekið var elds-
neyti.
Fréttavefurinn Vísir greindi
frá því á þriðjudaginn að kostn-
aður við leigu á þotunni væri lík-
lega um 60 þúsund evrur eða 7,2
milljónir króna. Daginn eftir var
haft eftir Grétu Ingþórsdóttur,
aðstoðarmanni forsætisráðherra,
að kostnaðarauki við leigu á
einkaþotunni, í stað þess að far-
þegar færu með áætlunarflugi,
væri á bilinu 100 til 300 þúsund
krónur. - ovd
Leiguþota Geirs og Ingibjargar losaði um 11,2 tonn af koltvísýringi:
Áttatíu tré kolefnisjafna flugið
KÖRFUBOLTI Keflavík tryggði sér
Íslandsmeistaratitilinn í
körfuknattleik kvenna í þrett-
ánda sinn í gær þegar liðið lagði
KR að velli með eins stigs mun,
91-90. Keflavík varð fyrsta liðið
til að vinna sex leiki í röð í
úrslitakeppni kvenna.
- óój / sjá síðu 44
Keflavík sigraði í kvennakörfu:
Íslandsmeistari
í þrettánda sinn