Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 38
HEIMILISHALD
MARTA MARÍA JÓNSDÓTTIR
● Forsíðumynd: Stefán Karlsson tók mynd á heimili
Ástrósar Gunnarsdóttur Útgáfufélag: 365 miðlar ehf.,
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Roald
Eyvindsson roald@frettabladid.is, Emilía Örlygsdóttir
emilia@frettabladid.is Auglýsingar: Ámundi Ámunda-
son s. 517 5724 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir
kristina@frettabladid.is.
Húseigendur!
Aukið þægindin og
lækkið hitunarkostnaðinn
með ECL stjórnstöð á hitakerfið
Kynnið ykkur kosti og verð
ECL stjórnstöðvarinnar frá Danfoss
ECL stjórnstöðvar fyrir hitakerfi
Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins
● heimili&hönnun
Ása og Ína, dóttir hennar, búa til ávaxta- og grænmetissafa í eldhúsinu á hverjum morgni. Í horninu er borðkrókur með veggföst-
um bekk en sams konar bekkur var á æskuheimili Ásu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Við fjölskyldan festum kaup á
fallegu húsi í Grafarholti fyrir
nokkrum árum en Vesturbærinn
togaði í okkur og nú eigum við
hæð á besta stað í 107. Það má því
segja að við höfum gefið úthverf-
unum tækifæri,“ segir hjúkrunar-
fræðingurinn Áslaug Ína Krist-
insdóttir, eða Ása eins og hún er
ávallt kölluð, en sambýlismað-
ur hennar er einnig alinn upp í
Vesturbænum.
Ása er sérstaklega ánægð með
eldhúsið en á því er örlítill sveita-
bragur. Í einu horninu er borð-
krókur með veggföstum bekk en
slíkur bekkur var einnig á æsku-
heimili Ásu. „Hann kemur sér vel
þegar dóttir okkar fær frændsyst-
kini sín og og vini í heimsókn. Þau
raða sér í kringum borðið og þarna
myndast svolítil Emil í Kattholti-
stemning. Síðan situr skottan og
teiknar á meðan við foreldrarn-
ir hjálpumst að við að elda en við
höfum bæði mjög gaman af því,“
segir Ása.
Hún segist hafa verið komin
með nóg af minimalíska stílnum
sem var allsráðandi í fyrri húsa-
kynnum hennar og valdi því skær-
ustu flísarnar á markaðnum í nýja
eldhúsið. „Nú vil ég frekar hafa
líflegt í kringum mig,“ útskýrir
hún glöð í bragði.
Ása segist gera mikið af alls
kyns ávaxta- og grænmetissöf-
um í eldhúsinu ásamt Ínu dótt-
ur sinni. „Ég fæ mér alltaf greip-
safa á morgnana en gef Ínu app-
elsínusafa sem ég lauma stundum
gulrótum út í.“
Ása segir Ínu hafa mjög gaman
af því að hjálpa til við safagerðina
og kemur hún með ýmsar frum-
legar hugmyndir. „Hún fær að
gera gúrku-, vínberja- og paprik-
usafa og finnst gaman að sjá mis-
munandi liti koma úr pressunni.
Um daginn stakk hún þó upp á
því að við gerðum lauksafa handa
pabba hennar en ég reyndi að
segja henni að það væri kannski
ekki alveg nógu góð hugmynd,“
segir Ása kímin og bætir við að sú
stutta hafi þó verið handviss um
að slíkur safi væri einmitt eitt-
hvað fyrir pabba hennar.
Ása er mjög ánægð með að vera
komin aftur á heimaslóðir og finnst
gott að geta farið allra sinna ferða
fótgangandi. „Ég get rölt út í Mela-
búð, farið í bíó, sund og í helstu
búðir sem mér finnst sérstakur
kostur fyrir barnafólk. Þá er hægt
að hafa börnin með og sýna þeim
næsta nágrenni á meðan maður
sinnir nauðsynlegum erindum.“
- ve
Komin heim í gamla
góða Vesturbæinn
● Áslaug Ína Kristinsdóttir er fædd og uppalin í Vesturbæ Reykjavíkur. Þar hefur hún búið
meirihluta ævinnar ef frá er talinn smá útúrdúr í Grafarholtið.
Í
gegnum tíðina hef ég verið mikil talskona framkvæmda. Hef æst öll
upp þegar fólk nefnir framkvæmdir og hef hvatt fólk til að fara út í
alls konar vitleysu. Þegar einhver hefur býsnast yfir ryki og drullu
sem fylgir þessu hef ég ekki tekið neitt mark á því og fundist þetta
vera algjört væl í fólki. Í dag eru að renna á mig tvær grímur. Í bráðum
mánuð hef ég nefnilega sofið í stofunni, verið baðkarslaus og andað að
mér ryki á milli þess sem ég hef ryksugað og skúrað til að varna því að
hinn hlutinn af heimilinu eyðileggist í allri framkvæmdagleðinni. Svo hafa
allt of margir klukkutímar farið í að rúnta á milli byggingarvöruverslana
til að velja baðkar, vask, klósett, flísalím, múr og
allt sem viðkemur heimilinu. Eitt kvöldið ætlaði
ég til dæmis aldrei að sofna því ég gat ekki ákveð-
ið hvort klósettið ætti að vera kantað eða hring-
laga og nú get ég ekki ákveðið hvernig blöndunar-
tæki ég á að kaupa. Fann reyndar ein um daginn
en þegar ég leit á verðmiðann brá mér all svaka-
lega. Þegar ég sagði vinkonum mínum frá því
hvað tækin kostuðu hlógu þær og sögðu að ég
hefði ekki hugsað mig tvisvar um ef blöndunar-
tækin væru leðurjakki eða handtaska.
Fyrstu daga framkvæmdanna var ég svaka
hress og fannst æsispennandi að sjá veggina á
neðri hæðinni hrynja eins og spilaborg og sá fyrir mér að þetta yrði sirka
viku vinna. Það gæti varla tekið nema eitt kvöld að sparsla í sárin og mála
og múrarar og smiðir myndu rumpa baðherberginu af á þremur dögum.
Síðan framkvæmdir byrjuðu er ég búin að liggja í húsbúnaðarblöðum
til að finna út hárréttu stemninguna og ég var svo niðursokkin í þessar
pælingar að ég var löngu búin að gleyma því að ég byggi ekki ein. Þegar
ég álpaðist til að ræða skipulag neðri hæðarinnar við eiginmanninn komst
ég að því að við höfum mjög ólíkar hugmyndir. Meðan ég sá fyrir mér
„daybed“, risastórt skrifborð, blómstrandi orkedíur, vanilluilm, róandi
slökunartónlist og önnur smartheit var hann meira að hugsa um bjór-
dælu, poolborð, „lazyboy“ og risastórt sjónvarp. Ég minnti hann á að þetta
væri fjölskyldurými, ekki leikvöllur fyrir hann og vini hans. Eitt augna-
blik hvarflaði það að mér að rykið væri farið að hafa skaðleg áhrif á heila-
starfsemina og hann yrði kannski aldrei samur. Mér létti stórlega þegar
hann viðurkenndi að hann væri bara að reyna að æsa mig upp.
Þótt það sé erfitt að hugsa skýrt í öllu rykinu geri ég mér grein fyrir
því að framkvæmdirnar geta hugsanlega bætt líf mitt að einhverju leyti.
Síðustu morgna hef ég nefnilega neyðst til að fara í sund til að þvo af mér
rykið og það gæti ekki verið betri byrjun á deginum. Meðan ég syndi af
mér spikið ímynda ég mér hvernig lífið verði eftir framkvæmdir. Þori þó
ekki að vona að það verði í næstu viku.
Hefur ryk skaðleg áhrif
á heilann?
Eitt kvöldið ætlaði
ég til dæmis aldrei
að sofna því ég gat
ekki ákveðið hvort
klósettið ætti að
vera kantað eða
hringlaga og nú
get ég ekki ákveðið
hvernig blöndunar-
tæki ég á að kaupa.
5. APRÍL 2008 LAUGARDAGUR2