Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 33
][ Senn bresta á sumarfrí og margir sem hyggja á ferðalög utan landsteina. Lystisemdir heimsins eru óþrjótandi, en margt að varast og mikilvægt að bólusetja kroppinn áður en haldið er utan. „Bólusetningu þarf að fá með minnst mánaðar fyrirvara því ónæmiskerfið myndar ekki mótefni fyrr en að þremur vikum liðnum,“ segir Þorsteinn Blöndal, yfirlæknir hjá Miðstöð sóttvarna á Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins. „Varasömustu lönd og heimsálfur nú eru Afríka og Indland. Þar er hætta á fjölda sjúkdóma en vatn og matur er einnig svo mengað að niðurgangur getur hæglega eyðilagt ferðalagið. Því er mikilvægt að drekka aldrei ósoðið vatn og gæta sín á grænmeti og ávöxtum sem þvegið er með menguðu vatni, eða hreinlega ekkert þvegið. Og þótt allt líti vel út í matsal veitingastaða getur aðstaða baka til og þá sal- ernisaðstaða starfsfólks verið með miklum ósköp- um,“ segir Þorsteinn, sem minnir íslenska ferða- langa á mikilvægi notkun flugnafælna. „Í flugnafæluáburði felst veruleg hjálp gagnvart sjúkdómum sem dreifast með moskítóflugum. Malaría er þar skæðust, en einnig beinbrunasótt, mýgulusótt og svefnsýki,“ segir Þorsteinn. „Vel heppnuð bólusetning varnar veikindum. Gengið er út frá að allir hafi fengið almennar bólusetningar, en gott þykir að auka mótefni við barnaveiki, stífkrampa og lömunarveiki. Þá er bólusett gegn taugaveiki, salmonellu-typhi, lifrar- bólgu A sem smitast út frá saurgerlum í menguðu vatni og lifrarbólgu B sem smitast með blóði, en hún er gefin ungu fólki sem lifir áhættulífi og skiptir oft um bólfélaga,“ segir Þorsteinn og ítrekar varasöm tengsl áfengisneyslu og kynsjúkdóma. „Fólk gengur af vitinu þegar það drekkur yfir ákveðið magn áfengis og útkoman eftir því. Margt hefur áhrif á ferðalög fólks og margt ber að varast. Barnshafandi konum má þannig helst ekki gefa nein bóluefni og betra að sitja heima,“ segir Þorsteinn og varar við ferðalögum með ung börn. „Fyrsta ár barnsins er ónæmiskerfið enn að þróast og enn í fullu gildi það gamla heilræði að þvælast ekki með barnið hvert sem er. Ekki má gleyma að árlega deyja tíu milljón börn undir fimm ára úr nið- urgangi, malaríu og lungnabólgu, og því miður á það ekki síður við börn sem koma í heimsókn til landa þar sem sjúkdómarnir eru landlægir.“ Skoða má ráðlagðar bólusetningar fyrir ferðalög til flestra landa heims á: www.who.int/countries/en/ thordis@frettabladid.is Afríka og Indland varasöm Lesefni er nauðsynlegt á langferðum. Gríptu með þér góða bók í flugið eða í rútuferðina til að stytta þér stundir þegar rignir og ekkert sést út um gluggann. Þorsteinn Blöndal, yfirlæknir á Miðstöð sóttvarna á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis- ins, minnir íslenska ferðamenn á að mánaðar fyrirvara þarf á bólusetningum áður en farið er á fjarlægar og framandi slóðir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A R N ÞÓ R Bókaðu bílinn fyrir 1. maí á www.hertz.is og fáðu 1000 vildarpunkta hjá Vildarklúbbi Icelandair. Tilboðið gildir til 1 maí. Hertz hefur yfi r 7600 afgreiðslustaði í 146 löndum. Hertz Car Rental Flugvallarvegi, 101 Reykjavik, Iceland hertz@hertz.is. Tel. +354 522 44 00. Fax. +354 522 44 01 www.hertz.is MasterCard Mundu ferðaávísunina! Montreal Ógleymanleg ævintýri Á FERÐ UM HEIMINN www.fjallaleidsogumenn.is · sími: 587 9999 Sp ör - R ag nh ei ðu r Á gú st sd ót ti r SUÐUR GRÆNLAND 18. - 25. júlí 25. júlí - 1. ágúst örfá sæti laus 1. - 8. ágúst MAROKKÓ 6. - 13. september NEPAL 18. október - 10. nóvember AUSTUR PÝRENEAFJÖLL 21. - 27. apríl KILIMANJARO 7. - 22. júní Mt. BLANC 21. - 29. júní UMHVERFIS Mt. BLANC 1. - 9. júlí Nú er rétti tíminn til þess að undirbúa næsta veiðitímabil. Veiðikortið veitir aðgang að rúmlega 30 vatnasvæðum vítt og breitt um landið fyrir aðeins 5000 kr. Frí heimsending þegar verslað er beint á www.veidikortid.is Tryggðu þér Veiðikortið í tíma! Á að veiða í sumar?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.