Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 34
[ ] Mæðgurnar Elín Guðmunds- dóttir og Hjördís Þorfinnsdóttir tóku nýlega höndum saman og opnuðu vintage-kjólabúð á Selfossi. Elín Guðmundsdóttir og móðir hennar, Hjördís Þorfinnsdóttir, hafa lengi haft áhuga á notuðum fötum. „Áhuginn kviknaði þannig að ég og Magnea systir mín fengum nokkra gamla kjóla frá frænkum okkar sem við héldum mikið upp á. Við systurn- ar göngum talsvert í not- uðum fötum en fyrir mitt leyti eru það aðallega fínir kjólar sem heilla,“ segir Elín Guðmundsdóttir, sem ásamt búðar- rekstrinum er nemi í náttúru- og umhverf- isfræði við Landbún- aðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Þegar hún var í miðri prófatörn síð- astliðið haust fóru hún og mamma hennar, Hjördís Þor- finnsdóttir, á flug með þá hugmynd að opna kjólabúð. „Við byrjuðum fyrst með nokkra kjóla á slá heima hjá mér. Þá voru það aðallega vinir og kunn- ingjar sem kíktu við. Um jólin fórum við síðan út til Bandaríkj- anna og komumst í samband við frábær- an heildsala sem er með kjóla og fylgi- hluti frá 1930 og upp úr. Við keyptum vörur af honum og vorum þá komnar með það mikið að við sáum ástæðu til að stækka við okkur. Mæðgurnar opnuðu svo búð í gömlu húsi að Austurvegi 33 um miðjan janúar. Hún ber nafnið Hosiló sem þýðir kompa eða kytra. „Hugmyndin er að hafa verslun- ina kósí og heimilislega en nafnið er í raun komið frá langömmu minni og langafa í móðurætt. Þau áttu bæ í Biskupstungum og kölluðu eitt herbergið hosiló.“ Búðin er opin á föstudögum frá tvö til sjö og á laugardögum frá ell- efu til tvö en afgreiðslutíminn verður líklega lengdur í sumar. Aðaláherslan er lögð á kjóla en einn- ig er boðið upp á notuð veski, belti og aðra fylgihluti. „Við vorum að taka upp stóra sendingu og búðin er því full af spennandi vörum. Við erum með allt frá hversdagskjólum upp í síða galakjóla“ segir Elín. vera@frettabladid.is Sparilegir kjólar í kytru Grænn og glitrandin pallíettu- kjóll. Verð 8.000 krónur. Gulur fifties-kjóll. Verð 7.000 krónur. Eldrautt er hressandi. Láttu það eftir þér að sveiflast um í eldrauðum kjól við heimilisverkin og ímyndaðu þér að þú sért á dansleik við hirðina og danskortið sé þéttskrifað. Mæðgurnar Hjördís Þorfinnsdóttir og Elín Guðmundsdóttir opnuðu búðina Hosiló um miðjan janúar. M YN D /G U Ð M U N D U R K A R L SI G U R D Ó R SS O N Tvö Líf þriggja ára. Afmælishátíð í Tvö Líf föstudag, laugardag og sunnudag, 20% afsláttur af öllum vörum. Allir sem versla fara í lukkupott þar sem fjöldi vinninga í boði. Taktu helgina frá og fagnaðu með okkur. Opið alla virka daga frá 11-18 Laugardaga frá 11-16 Sunnudaga 13-17 www.tvolif.is Laugavegi 63 • S: 551 4422 Glæsileg sparidress Mikið úrval - gott verð Suðurlandsbraut 50 (bláu húsunum við Fákafen) www.gala.is • Sími 588 9925 Opið 11-18 • 11-16 lau. Full búð af flottum fötum frá Pause Café Str: 34-52 Full búð af sumarvörum www.sigurboginn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.