Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 77
LAUGARDAGUR 5. apríl 2008
Næsti þáttur Sjálfstæðs
fólks er með sérstæðara
móti. Jón Ársæll fjallar um
Ólöfu Pétursdóttur sem
jarðsett var fyrir viku.
„Þetta er mjög sérstakt mál. Við
erum búnir að fylgjast með Ólöfu
frá því í sumar. Fréttum að hún
væri farin að mála á ný eftir slysið.
Þá kemur í ljós að aðferð hennar er
að mála með pensilinn í munni sér,“
segir Jón Ársæll sjónvarpsmaður.
Á sunnudagskvöldið er á dagskrá
Stöðvar 2 einstakur þáttur í viðtals-
þáttaröðinni Sjálfstætt fólk. Hann
fjallar um Ólöfu Pétursdóttur sem
var jarðsett fyrir viku. Greint er
frá hetjulegri baráttu hennar en
Ólöf lamaðist þegar hestur hennar
hnaut og hún féll af baki sumarið
2006. Í samráði við fjölskyldu
Ólafar ákvað Jón Ársæll að ljúka
við gerð þáttarins og er hann nú
sýndur til að heiðra minningu Óla-
far en eiginmaður hennar er Frið-
rik Pálsson, fyrrverandi stjórnar-
formaður Landsímans. Jón Ársæll
hélt áfram að heimsækja Ólöfu og
ræða við allt til dauðadags.
„Það var mikið áfall að missa
þessa konu sem var í blóma lífsins
þrátt fyrir lömun,“ segir Jón Ársæll
sem telur sig ríkari að hafa fengið
að kynnast henni. Hann neitar því
að þetta hafi tekið á hann þrátt
fyrir harm sem getur og fylgir erf-
iðleikum og andláti. „Nei, því það
var stöðug birta í kringum Ólöfu.
Hún leit á erfiðleikana sem verk-
efni, leysti þá í sjálfu sér og það
smitaði út frá sér. Ég sjálfur stóð
ekki frammi fyrir sorg heldur í
hina áttina þannig að ég fékk trú á
manninn eftir að hafa kynnst Ólöfu.
Hún sigraðist á erfiðleikum á glæsi-
legan hátt.“
Jón Ársæll segir það hafa skipt
miklu máli að fjölskylda Ólafar
sem og hún sjálf komu afskaplega
hreint fram og forðuðust að skoða
þá stöðu sem uppi var á of tilfinn-
ingalegum nótum heldur tóku henni
með æðruleysi. „Ólöf var einstakur
persónuleiki og sérfræðingur í að
skilja hismið frá kjarnanum,“ segir
Jón en á ekkert svar við þeirri
spurningu hvar þröskuldurinn liggi
þegar fjölmiðlar eru annars vegar
– sem oft eru sakaðir um að fara
yfir ákveðin mörk í þeim efnum.
Jóni Ársæli er það einkar lagið að
fjalla um persónuleg og viðkvæm
málefni þannig að allir telja sig
mega vel við una. „Ég reyni að
vinna starf mitt, hvert sem það er,
eins vel og unnt er. Umgangast fólk
eins og manneskjur og hlusta á
það.“ jakob@frettabladid.is
Minningarþáttur um
Ólöfu Pétursdóttur
JÓN ÁRSÆLL Næsti þáttur hans er með
óvenjulegu móti en þar ræðir hann við
Ólöfu Pétursdóttur sem nú er látin.
ÓLÖF PÉTURSDÓTTIR Jón Ársæll fylgdist
með henni allt frá í sumar og greinir frá
hetjulegri baráttu hennar.
PENSILL Í MUNNI Eftir slysið var Ólöf lömuð en lét það ekki stöðva sig í að sinna list
sinni.
„Ég gerði bara samning við Þyrlu-
þjónustuna og þeir taka bara sinn
hlut af söluverði myndarinnar,“
segir ljósmyndarinn Friðrik Örn
Hjaltested. Hann opnar sýningu í
dag í verslun Sævars Karls og
hyggst bjóða öllum þeim sem
kaupa mynd þann daginn í þyrlu-
ferð um Reykjavík. Áhugasamir
þurfa ekki að hafa áhyggjur af því
að reiða fram fúlgur fjár fyrir
myndirnar og komast þar með í
þyrluflugið því hver mynd kostar
aðeins 88 þúsund krónur. Að sögn
Friðriks eru myndirnar stórar og
aðeins eru til tvö eintök af hverri.
Myndirnar á sýningunni eru
allar teknar úr þyrlu og Friðrik
segir að hugmyndin hafi kviknað
þegar margir ræddu við hann um
möguleikann á þyrluflugi. „Fólki
fannst þetta mjög spennandi,
þegar maður kom úr fluginu,
veðurbarinn og vel klæddur. En
flestir létu aldrei verða neitt úr
þessu en gefst núna tækifæri til
að láta drauminn rætast,“ segir
Friðrik. Sýningin hefst klukkan
eitt og stendur til klukkan fjögur.
- fgg
Friðrik Örn býður
fólki í þyrluferð
HÁLFUR ÚTÚR ÞYRLUNNI Friðrik Örn
smellir mynd af Reykjavík og er hálfur
útúr þyrlunni.
FRIÐRIK ÖRN Býður þeim sem kaupa af
sér mynd í þyrluferð í dag.