Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 80
52 5. apríl 2008 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
Markvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson hjá Fram er nýkom-
inn frá Þýskalandi þar sem hann var að skoða aðstæður hjá
Bittenfeld sem leikur í suðurriðli í 2. deild þar í landi.
„Ég vissi í raun ekki við hverju ég ætti að búast þegar ég
fór út þar sem liðið er nýliði í 2. deildinni og er ekkert að
gera neitt allt of góða hluti þar. Félagið kom mér hins vegar
skemmtilega á óvart; mér leist mjög vel á allar aðstæður
þar og mikið er lagt upp úr allri umgjörð í kringum
liðið. Bittenfeld hefur farið upp um fjórar deildir
á síðustu fimm árum og það er greinilega mikill
metnaður í kringum félagið, en liðið sjálft er ungt
og efnilegt,“ sagði Björgvin Páll, sem telur tíma til
kominn að breyta aðeins um umhverfi og prófa
eitthvað nýtt.
„Ég er náttúrlega bara tæplega 23 ára
gamall, sem er mjög ungt að markvarðarárum,
en mér finnst vera kominn tími á að ég takist
á við nýja áskorun á mínum ferli. Ég held að
það sé líka rétt ákvörðun hjá mér að vera ekkert
að fara fram úr mér heldur fara til liðs þar sem ég á góðan
möguleika á því að spila mikið og get þar af leiðandi tekið
framförum og bætt minn leik. Ég er búinn að fá á mig sömu
skotin í íslensku deildinni undanfarin ár og ég held að það
verði mjög hollt fyrir mig sem markvörð að prófa að leika
í Þýskalandi,“ sagði Björgvin Páll, sem á ekki von á því að
Fram stæði í vegi fyrir því að hann færi til Bittenfeld.
„Ég er samningsbundinn Fram í eitt ár til viðbótar
og mun klára tímabilið í N1-deildinni í ár en ég
hef þegar spjallað við forráðamenn Fram og þeir
skilja alveg að ég vilji reyna mig í Þýskalandi. Ég
á því von á að félögin tvö komist að samkomu-
lagi áður en langt um líður,“ sagði Björgvin Páll,
sem vonast til að félagaskiptin hjálpi honum að
festa sig í sessi í landsliði Íslands.
„Ég stefni auðvitað á að fá fleiri tækifæri með
landsliðinu og ég held að þetta sé góð ákvörðun
upp á það að gera líka, þannig að þetta gengur
vonandi eftir,“ sagði Björgvin Páll að lokum.
BJÖRGVIN PÁLL GÚSTAVSSON, FRAM: ER AÐ ÖLLUM LÍKINDUM Á LEIÐ TIL 2. DEILDAR LIÐS BITTENFELD Í ÞÝSKALANDI
Kominn tími á að ég takist á við nýja áskorun
FÓTBOLTI Arsenal fær Liverpool í
heimsókn á Emirates-leikvanginn í
dag í annað skiptið á fjórum
dögum. Að þessu sinni er það í
ensku úrvalsdeildinnni þar sem
liðin eru sem stendur í þriðja og
fjórða sæti.
Arsenal hefur ekki sagt sitt
síðasta í titilbaráttunni og þarf
nauðsynlega á sigri að halda til
þess að hanga í toppliði Manchest-
er United. Arsene Wenger,
knattspyrnustjóri Arsenal, getur
því tæplega leyft sér að hvíla
lykilmenn. Robin van Persie getur
ekki leikið vegna meiðsla og Abou
Diaby tekur út leikbann.
Liverpool situr hins vegar sem
fastast í fjórða sætinu og er átta
stigum á eftir Arsenal og fimm
stigum fyrir ofan erkifjendurna í
Everton sem eru í fimmta sæti.
Rafa Benitez, knattspyrnustjóri
Liverpool, mun því líklega hrista
upp í leikmannahópi sínum og
leyfa sér að gera nokkrar breyt-
ingar til þess að hvíla lykilmenn
fyrir seinni leik liðanna í Meistara-
deildinni á þriðjudaginn næstkom-
andi.
Javier Mascherano verður í
banni en breskir fjölmiðlar leiða
líkur að því að tvíeykið öfluga,
Fernando Torres og Steven
Gerrard, verði hvílt og jafnvel
muni Peter Crouch og Andriy
Voronin byrja í fremstu víglínu.
„Ég verð að gera breytingar. Ég
get ekki búist við því að leikmenn
geti spilað þrjá leiki á sjö dögum,
það er útilokað,“ sagði Benitez á
blaðamannafundi í gær. - óþ
Arsenal og Liverpool mætast:
Sjö daga stríðið
heldur áfram
BARÁTTA Arsenal er enn með í titilbar-
áttunni en Liverpool siglir lygnan sjó í
fjórða sæti. NORDIC PHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Keflavík, Grindavík, Snæfell og ÍR
voru sigurvegarar átta liða úrslita Iceland
Express-deildar karla og eru komin inn í undan-
úrslitin en Fréttablaðið hefur nú skoðað hvaða
leikmenn stóðust prófið og gott betur þegar
alvaran skall á, spennustigð hækkaði og
liðin voru farin að spila um það að
vinna Íslandsmeistaratitilinn eða
fara í sumarfrí.
Það er 23 ára Grindvíking-
ur, Þorleifur Ólafsson,
sem er sprunginn
út og það var
ekki nóg með
að hann
hækkaði sig
mest allra í
framlagi frá
því í deildar-
keppninni held-
ur var hann einnig
sá íslenski leikmaður sem var
með hæsta framlagið í átta liða
úrslitunum. Þorleifur var með 19,7
stig, 5,7 fráköst og 4,0 stoðsend-
ingar að meðaltali í leikjunum
þremur og hækkaði sig bæði í
stigum og framlagi í hverjum
leik. Þorleifur var með 30 stig í
oddaleiknum þar sem hann
hitti úr 13 af 17 skotum
sínum, þar af 4 af 6
fyrir utan þriggja
stiga línuna.
Flake valinn
bestur
Darrell
Flake úr
Skallagrími var
með hæsta framlag í
leik af leikmönnum átta
liða úrslitanna en fjórir hæstu
leikmenn á þeim lista urðu allir að
sætta sig við að detta úr keppni. Þeim
Flake, Milojica Zekovic (Skallagrími),
Joshua Helm (KR) og Damon Bailey
(Njarðvík) er því ekki að kenna
hvernig fór því þeir skiluð sínu.
Flake (25,0 stig, 12,7 fráköst og
56,1 prósent skotnýting) og Zek-
ovic (27,3 stig, 7,3 frá köst og 65,4
prósent skot nýting) voru
saman með 52,3 stig og
20 fráköst að meðal-
tali í leik.
Hæstur á list-
anum yfir þá
sem komust
áfram í
undan-
úrslit er
danski
leik-
stjórnand-
inn hjá
Grindavík,
Adama Dar-
boe, sem er
rétt á undan
Justin Shouse hjá
Snæfelli. Adama var í
fjórða sæti yfir þá sem
hækkuðu framlag sitt
mest en hann var með 19,3
stig og 8,7 stoðsendingar
að meðaltali í leikjunum
þremur gegn Skallagrími
auk þess sem hann sá til
þess að Alan Fall, franski
leikstjórnandinn hjá Borg-
nesingum, lækkaði sitt framlag talsvert frá því
í deildarkeppninni.
Menn hjá Njarðvík höfðu mestar áhyggjur af
stóru mönnunum sínum eftir að landsliðsmið-
herjinn Friðrik Stefánsson datt út en það voru
hins vegar bakverðirnir sem brugðust. Brenton
Birmingham og Hörður Axel Vilhjálmsson voru
báðir meðal þeirra fimm sem lækkuðu sig mest
frá því í deildarkeppninni og fóru saman niður
um 23,7 framlagsstig í leik. Hér munar mestu
um að þeir hittu ekki neitt og voru saman með
aðeins 26,5 prósenta skotnýtingu (9 af 34) í leikj-
unum tveimur á móti Snæfelli.
Óðinn gaf mikið eftir
Það var hins vegar Akureyringurinn Óðinn
Ásgeirsson sem olli mestum vonbrigðum í átta
liða úrslitunum en hann lækkaði um 13,8 fram-
lagsstig frá því í deildarkeppninni.
Óðinn var aðeins með 1,5 framlagsstig í leik
gegn Keflavík en hann var með með 6,0 stig
(15,1 í deildinni), 4,0 fráköst (7,0) og 26,1 pró-
senta skotnýtingu (46,5 prósent) í leikjunum
tveimur. Þórsarar fengu fín framlög frá útlend-
ingunum sínum en vantaði nauðsynlega meira
frá sínum besta íslenska leikmanni.
Sá atvinnumaður sem brást var hins vegar
Grindvíkingurinn Jamaal Williams, sem lækk-
aði um heil 11,3 framlagsstig í leik á sama tíma
og landi hans í liði Skallagríms, Darrell Flake,
var með hæsta framlag allra leikmanna. Grind-
víkingar þurfa talsvert meira frá Jamaal ætli
þeir sér að slá Snæfellinga út í undanúrslitun-
um. ooj@frettabladid.is
Þorleifur sprakk út gegn Sköllunum
Grindvíkingurinn Þorleifur Ólafsson var sá leikmaður í átta liða úrslitum Iceland Express-deildar karla
sem bætti mest sinn leik frá því í deildarkeppninni. Fréttablaðið fór yfir framistöðu leikmanna.
AÐ SPILA
VEL Grindvík-
ingurinn Þorleifur
Ólafsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Hermann Hreiðarsson
ætlar að gera allt til þess að missa
ekki af fyrsta möguleika sínum á
því að spila á Wembley-leikvang-
inum. Portsmouth mætir West
Bromwich Albion í undanúrslita-
leik ensku bikarkeppninnar
klukkan 12.15 í dag en með sigri
kemst félagið í sinn fyrsta bikar-
úrslitaleik síðan árið 1939; fyrir
upphaf seinni heimsstyrjaldar.
Hermann er að leika sitt ellefta
tímabil í enska boltanum en á enn
eftir að spila á Wembley.
Hermann fékk ljótan skurð á
fótinn í leik gegn Wigan um síð-
ustu helgi þegar hann og félagar
hans í Portsmouth unnu sinn
fimmta leik í síðustu sjö deildar-
leikjum. Sauma þurfti þrjú spor
og Hermann hefur síðan verið í
sérstakri meðferð til þess að
verða góður fyrir leikinn. Hann
hefur meðal annars dvalið í sér-
stökum súrefnisklefa til þess að
hraða batanum.
„Hermann er ákveðinn að spila
með en hann var með stóra holu í
fætinum og þetta leit virkilega
illa út,“ sagði Harry Redknapp,
stjóri Portsmouth, fyrir leik. Það
hefur aukið enn á mikilvægi þess
að Hermann spili leikinn að vara-
maður hans, Noe Pamarot, er
ennþá að glíma við hnémeiðsli og
geti okkar maður ekki spilað með
bendir allt til þess að Lauren
spili þá í „öfugum“ bakverði.
Það eru líka vandamál fyrir
Redknapp framar á vellinum því
vængmaðurinn John Utaka glím-
ir við tognun aftan í læri og hetja
liðsins að undanförnu, framherj-
inn Jermain Defoe, má ekki spila
þar sem hann spilaði með Totten-
ham í bikarnum.
„Auðvitað munum við sakna
hans. Hann er búinn að skora átta
mörk í sjö leikjum en við vorum
líka búnir að spila stóran hluta
tímabilsins án hans og stóðum
okkur þá vel. Við erum með Kanu,
Milan Baros og David Nugent svo
að þetta verður í lagi,“ sagði Red-
knapp en Baros á enn eftir að
skora sitt fyrsta mark fyrir félag-
ið þrátt fyrir að vera búinn að
spila tíu leiki fyrir Portsmouth.
Tap hjá Portsmouth yrði sögu-
legt fyrir þessa elstu keppni í
heimi því þá myndu í fyrsta sinn
mætast í úrslitaleiknum tvö lið
utan efstu deilar síðan deildar-
keppnin var tekin upp í Englandi
1888-89. Í hinum undanúrslita-
leiknum, sem fer fram á sunnnu-
daginn, mætast 1. deildarliðin
Barnsley og Cardiff. - óój
Hermann Hreiðarsson ætlar sér að spila undanúrslitaleik bikarsins í dag þrátt fyrir slæman skurð á fæti:
Hermann er með stóra holu í fætinum
HÖRKUTÓL Hermann Hreiðarsson
er tæpur fyrir undanúrslitaleikinn í
kvöld. NORDICPHOTOS/GETTY
Hæsta framlag í leik
1. Darrell Flake, Skallagrími 31,3
2. Milojica Zekovic, Skallagr. 29,0
3. Joshua Helm, KR 26,7
4. Damon Bailey, Njarðvík 25,5
5. Adama Darboe, Grindavík 25,3
6. Justin Shouse, Snæfell 25,0
7. Nate Brown, ÍR 24,3
7. Andrew Fogel, KR 24,3
9. Þorleifur Ólafsson, Grindavík 23,0
10. Cedric Isom, Þór Ak. 22,0
Hver gaf mest í (Mesta hækkun á
framlagi frá því í deildinni)
Þorleifur Ólafsson, Grindavík +11,7
Arnar Freyr Jónsson, Keflavík +11,1
Milojica Zekovic, Skallagrími +10,5
Adama Darboe, Grindavík +9,7
Helgi Jónas Guðfinnss., Grind. +8,2
Andrew Fogel, KR +7,3
Axel Kárason, Skallagrími +4,6
Magni Hafsteinsson, Snæfell +4,3
Guðmundur Jónsson, Njarðvík +4,1
Slobodan Subasic, Snæfelli +3,8
Hver gaf mest eftir (Mesta lækk-
un á framlagi frá því í deildinni)
Þorsteinn Gunnlaugss., Þór Ak. -5,8
Igor Beljanski, Grindavík -5,8
Sigurður Þorvaldsson, Snæfelli -5,9
Allan Fall, Skallagrími -6,1
Brynjar Þór Björnsson, KR -7,7
Jón Norðdal Hafsteinss., Keflav. -8,3
Brenton Birmingham, Njarðvík -11,2
Helgi Már Magnússon, KR -11,2
Jamaal Williams, Grindavík -11,3
Hörður Axel Vilhjálms., Njarð. -12,5
Óðinn Ásgeirsson, Þór Ak. -13,8
FRAMMISTAÐA LEIKMANNA Í 8 LIÐA ÚRSLITUM ICELAND EXPRESS KARLA
> Stórmót í badminton og sundi
Meistaramót Íslands í badminton hófst í gær í TBR-hús-
unum við Gnoðarvog og stendur yfir um helgina. Mótið
er hápunktur vetrarins hjá íslensku badmintonfólki en
úrslitaleikir í öllum flokkum verða leiknir á morgun,
sunnudag. Ragna Ingólfsdóttir, margfaldur íslandsmeistari í
badminton, mun að öllum líkindum geta tekið þátt í öllum
greinum í sínum flokki en hún meiddist í síðasta mánuði
á móti í Króatíu og hefur verið í endurhæf-
ingu síðan þá. Íslenskt sundfólk verður
einnig í eldlínunni um helgina þar sem
Íslandsmótið í 50 metra laug hófst
í Laugardalslaug í gær og stendur
einnig yfir um helgina.