Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 6
6 5. apríl 2008 LAUGARDAGUR
LÖGREGLUMÁL Töluverður reykur
barst inn í húsakynni smurstöðv-
ar Heklu á Laugavegi í gærmorg-
un þegar kviknaði í hrúgu
sígarettustubba undir stétt á bak
við húsið. Starfsmenn smurstöðv-
arinnar og nærliggjandi húsa eru
vanir að henda logandi vindlinga-
stubbum niður um brunnlok sem
þar er.
Slökkvilið var kvatt á vettvang
en engar skemmdir urðu á
húsnæðinu. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Heklu voru samstundis
pöntuð stubbahús á svæðið til að
forða frekari vandræðum sem
gætu hlotist af reykingum
starfsfólks utandyra. - kg
Reykur barst inn í Heklu:
Kviknaði í síga-
rettustubbum
HEILBRIGÐISMÁL Sjúkraþjálfarar
og iðjuþjálfarar Landspítalans
skora á heilbrigðisyfirvöld og
yfirstjórn Landspítalans að bæta
kjör heilbrigðisstétta á spítalan-
um. Þetta kom fram í yfirlýs-
ingu sem fulltrúar stéttanna
tveggja sendu frá sér í gær.
Í yfirlýsingunni kemur meðal
annars fram að starfsmönnum
þyki orðið nóg komið í aðgerðum
sem miða að því að ná fram
hagræðingu í sparnaði í rekstri
Landspítalans.
Telja þeir að sparnaðurinn sé
farinn að bitna á þjónustu við
sjúklinga. Þeir segja að erfið-
lega hafi gengið að manna allar
stöður sjúkra- og iðjuþjálfa
undanfarin ár á spítalanum
vegna lélegra launakjara og
miklu vinnuálagi.
- kdk
Sjúkra- og iðjuþjálfarar:
Þykir nóg um
sparnaðinn
DÓMSMÁL Ritstjóri og blaðamaður
Vikunnar voru í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær sýknaðir af
kröfu um greiðslu miskabóta.
Ásgeir Davíðsson, Geiri í
Goldfinger,
stefndi þeim
fyrir ærumeið-
andi ummæli í
viðtali við
fyrrverandi
dansara. Ásgeir
krafðist bóta og
að ummælin
yrðu dæmd
ómerk.
„Það er mikill léttir að þessu sé
lokið,“ segir Elín Arnar ritstjóri.
„Þetta er líka almennt gott fyrir
blaðamenn, þeir hefðu lent í
vandræðum með vinnu sína hefði
dómafordæmið orðið á hinn
veginn.“ - kp / sjá síðu 58
Blaðamenn Vikunnar:
Sýknaðir í
meiðyrðamáli
ELÍN ARNAR
VINNUMARKAÐUR Guðmundur Ragn-
arsson var í gær kjörinn formaður
VM, félags vélstjóra og málm-
tæknimanna. Bæði Örn Friðriksson
og Helgi Laxdal, sem gegnt hafa
formennsku og varaformennsku til
skiptis, eru hættir störfum.
Í kjörinu í gær fékk Guðmundur
Ragnarsson 34 prósent atkvæða,
Gunnar S. Gunnarsson fékk 25 pró-
sent, Valgeir Ómarsson 23 og Guð-
mundur S. Guðmundsson 18 pró-
sent. Þá er nokkur endurnýjun í
stjórninni því þrír frambjóðend-
anna voru í stjórn og detta nú út úr
stjórn og varastjórn.
„Við bíðum átekta eftir hvað ger-
ist á mörkuðum og hvað stjórnvöld
ætla að gera í sambandi við það að
meta stöðuna og bæta kjör almenn-
ings,“ segir hinn nýi formaður.
„Nóg er af verkefnum fram undan,
þannig eru til dæmis samningar
vélstjóra á fiskiskipum lausir í
maí.“
Forseti Íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, ávarpaði aðal-
fund VM og gerði verkþekkingu,
verkmenntun og hugvit að umtals-
efni. Forsetinn dró upp mynd af því
þegar hann var að alast upp á Þing-
eyri og smiðja Guðmundar Sigurðs-
sonar var miðjan í lífi þorpsins.
Hróður verkþekkingar barst víða
um heim.
„Ólafur Ragnar sagði að þetta
væri eins í dag. Víða um landið séu
starfandi fyrirtæki sem byggi á
verkþekkingu sem sé mikilvæg
auðlind fyrir Ísland í framtíðinni,“
segir í tilkynningu frá VM. - ghs
Nýr formaður, Guðmundur Ragnarsson, kjörinn á aðalfundi VM:
Bíðum átekta varðandi kjörin
NÝR FORMAÐUR Nýr formaður, Guð-
mundur Ragnarsson, heilsar Helga
Laxdal, fráfarandi varaformanni VM.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EFNAHAGSMÁL Gjermund Hagesæt-
er, þingmaður Framfaraflokksins
í Noregi, hefur sent bréf til Krist-
inar Halvorsen, fjármálaráðherra
Noregs, og óskað eftir mati henn-
ar á því hvaða kosti og galla það
hefði í för með sér fyrir Íslend-
inga og Norðmenn að binda
íslensku krónuna við þá norsku ef
sú staða kæmi upp. Fjármálaráð-
herrann verður að gefa skriflegt
svar á innan við einni viku.
Hagesæter segir að málið hafi
komið til umræðu á þingmanna-
fundi EFTA í Brussel á mánudag-
inn var. Á fundinum hafi verið sex
norskir þingmenn og þrír íslensk-
ir og þar hafi þetta komið til
umræðu. Hagesæter telur mikil-
vægt að Norðmenn ræði málið og
taki afstöðu til þess. Hann hefur
því óskað eftir afstöðu og rök-
stuðningi ráðherrans.
Í frétt norska blaðsins Bergens
Tidende kemur fram að íslensku
þingmennirnir hafi ekki farið
leynt með að myntsamstarf með
Norðmönnum væri til umræðu til
lausnar á efnahagsvanda og geng-
issveiflum íslensku krónunnar.
„Það hefur í för með sér að Noreg-
ur og Ísland hafa sama vaxtastig. Í
dag er vaxtamunurinn næstum
því tíu prósent,“ segir blaðið.
Bent er á tvo möguleika; að
stofna sameiginlega norræna
krónu eða að binda gengi íslensku
krónunnar við norsku krónuna „án
þess að það hafi nokkur sérstök
áhrif hér á landi,“ segir þar.
„Mér finnst skynsamlegt að við
Norðmenn myndum okkur skoðun
á því hvað nánara samstarf á milli
þjóðanna myndi þýða og hvað það
myndi þýða fyrir okkur ef nokk-
urs konar myntbandalag kæmist á
milli Íslands og Noregs. Það kemur
kannski aldrei neitt opinbert
erindi frá Íslandi en mér finnst
mikilvægt að við Norðmenn
ræðum þetta líka,“ segir hann.
Hagesæter veltir fyrir sér hvort
Íslendingar myndu ekki græða
meira á myntsamstarfi. „Norð-
menn græða heldur ekkert á því
að hafa jafn náinn EES-samstarfs-
aðila eins og Íslendinga sem hafa
gengi sem sveiflast jafn mikið og
raunin er. Það sem er Íslendingum
í hag er líka Norðmönnum í hag
vegna þess að við eigum í miklum
viðskiptum og eigum náið sam-
starf á mörgum sviðum,“ segir
hann og bendir á að myntbandalag
myndi styrkja stöðu norsku krón-
unnar og stækka myntsvæðið sem
nemur Íslendingum.
Katrín Júlíusdóttir þingmaður
var í Brussel ásamt Illuga Gunn-
arssyni og Arnbjörgu Sveinsdótt-
ur. Hún segist hafa „farið yfir
umræðuna heima“ en engin dýpri
umfjöllun hafi átt sér stað.
ghs@frettabladid.is
Ráðherrann svari til
um myntsamstarf
Norskur þingmaður hefur sent norska fjármálaráðherranum bréf og beðið um
mat á kostum og göllum þess að binda gengi íslensku krónunnar við þá norsku.
„Það sem er Íslendingum í hag er líka Norðmönnum í hag,“ segir þingmaðurinn.
FRAKKLAND, AP Nicolas Sarkozy
Frakklandsforseti er reiðubúinn að
ferðast í félagi við Hugo Chavez,
forseta Venesúela, að landamærum
Kólumbíu ef það kann að hjálpa til
að fá Ingrid Betancourt, fyrrver-
andi forsetaframbjóðanda í Kól-
umbíu, lausa úr gíslingu kólumb-
ísku skæruliðahreyfingarinnar
FARC. Frá þessu greindi franski
utanríkisráðherrann Bernard
Kouchner í gær.
Í viðtali við AP-fréttastofuna
sagði Kouchner jafnframt að til
greina kæmi að fangelsuðum
skæruliðum FARC yrði boðið tíma-
bundið hæli á yfirráðasvæðum
Frakka í Suður-Ameríku, skyldu
þeir verða látnir lausir í tengslum
við samninga um lausn Betancourt
og fleiri gísla FARC.
Sérstök sendinefnd Frakklands-
stjórnar kom til höfuðborgar Kól-
umbíu, Bogota, á fimmtudag, með
umboð til samninga um lausn Bet-
ancourt, sem hefur bæði kólumb-
ískt og franskt ríkisfang og hefur
verið í gíslingu í sex ár. Talsmenn
FARC hafa hins vegar ítrekað að
hvorki henni né öðrum gíslum sam-
takanna yrði sleppt nema liðsmenn
þeirra í kólumbískum og banda-
rískum fangelsum yrðu látnir laus-
ir.
Sonur Betancourt hefur greint
frá því að hún sé svo alvarlega veik
að fái hún ekki blóðgjöf mjög fljót-
lega sé henni vart hugað líf. - aa
Frönsk stjórnvöld gera atlögu að því að fá Ingrid Betancourt leysta úr haldi FARC:
Sarkozy beitir sér í gíslamáli
Í SEX ÁR Í GÍSLINGU Þessa mynd af Ingrid Betancourt birtu skæruliðar FARC í lok
nóvember 2007. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÓR YFIR UMRÆÐUNA Katrín
Júlíusdóttir, fulltrúi Íslendinga í EFTA-
nefndinni, „fór yfir umræðuna heima“
á þingmannafundi EFTA í Brussel.
BRÉFLEG FYRIRSPURN Þingmaður á
norska stórþinginu, Gjermund Hages-
æter, fulltrúi Framfaraflokksins, hefur
skrifað bréf og óskað eftir afstöðu
Kristinar Halvorsen, fjármálaráðherra
Noregs, gagnvart þeirri hugmynd
að binda norsku krónuna við þá
íslensku. FRÉTTABLAÐIÐ/ÚR SAFNI
Vilt þú að ríkið ráðstafi hærri
upphæðum en nú er gert til
öryggis- og löggæslu?
Já 79,4%
Nei 20,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú verið teppt(ur) í
umferðinni vegna mótmælaað-
gerða atvinnubílstjóra?
Segðu skoðun þína á Vísir.is
KJÖRKASSINN