Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 28
 5. apríl 2008 LAUGARDAGUR LEIKKONAN BETTE DAVIS FÆDD- IST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1908 „Forboðin ástarævintýri gera hjónabandi gott. Þau krydda hjónalífið og koma í veg fyrir að hjúskapur verði leiðinlegur. Ég ætti að vita það.“ Bette Davis hefur oft verið nefnd drottning kvikmynda- sögunnar. Hún hlaut Óskarinn fyrir Jezebel 1939 og Danger- ous 1935. Bette lést úr brjósta- krabbameini í Frakklandi árið 1989. Í dag eru 22 ár síðan flugvél á vegum flugfélagsins Ernis fórst í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi. Flugvélin TF-ORM, af gerðinni Piper Aztec, lagði upp í vondu veðri frá Ísafirði um hádegisbil með flugmann og sex farþega um borð. Framan af gekk flugið vel en veðrið versnaði stöðugt. Yfir Stykkishólmi tilkynnti flug- maður um ferðir vélarinnar yfir Ljósufjöll sem alræmd voru fyrir mikið niðurstreymi við þessar veðuraðstæður. Urðu farþegar þó einskis varir fyrr en vélin tók skyndilega mikla dýfu og skall utan í fjallshlíð, en við það lét- ust tveir menn samstundis. Um leið og vélin hvarf af rat- sjá var farið að ótt- ast um hana, en fljót- lega tókst að staðsetja TF-ORM í 600 metra hæð. Aðstæður til björg- unar voru afar slæm- ar, þyrlur gátu ekkert aðhafst og björgunarsveitum sóttist ferðin seint landleiðina. Ellefu tímum eftir slysið tókst snjóbíl Flug- björgunarsveitarinnar í Reykja- vík að brjótast á slysstað, en þá voru þrír til viðbótar látnir. Tveir farþeganna lifðu af. ÞETTA GERÐIST: 5. APRÍL 1986 Flugslys í Ljósufjöllum Í dag gefst tilefni til spennandi ferða- lags yfir til íðilfagurra Færeyja þegar blásið verður til fjölbreyttrar og eink- ar glæsilegrar færeyskrar menning- arhátíðar á Kjarvalsstöðum. „Hátíðina höldum við í tengslum við myndlistarsýningu færeyska listmál- arans Mikines sem lýkur á sunnudag,“ segir Soffía Karlsdóttir, kynningar- stjóri Listasafns Reykjavíkur, um veisluhöldin í dag. „Mikines var mest- ur færeyskra málara og hefur sess á sama stalli meðal færeysku þjóðarinn- ar og Kjarval hjá okkur Íslendingum. Þegar við unnum að sýningunni urðu til góð og dýrmæt tengsl við frændur okkar í Færeyjum. Báðar þjóðir lang- aði að gera meira og þá kom upp hug- mynd að menningarveislu, en í milli- tíðinni hafa Íslendingar sent bestu verk Kjarvals yfir til Færeyja,“ segir Soffía þar sem hún gæðir sér á dýrind- is skerpukjöti og ljúffengu hvalspiki. „Íslendingar búa við bæði frumlegar og fornar hefðir í mat, en Færeyingar luma líka á ýmsu sem forvitnilegt er fyrir bragðlaukana og hrein áskorun fyrir Íslendinga að smakka. Við verð- um því með lystilegt hlaðborð þjóð- legra færeyskra rétta, eins og skerpu- kjöt, rastakjöt, hvalkjöt og hvalspik, sem við skolum vitaskuld niður með færeyskum bjór. Þá fáum við notið færeyskra tóna Tríós Katrinar Pet- ersen en tríóið er skipað hinni kunnu söngkonu Katrinu Petersen, Leivi Thomsen sem er einn þekktasti gítar- leikari Færeyinga og bassaleikaran- um snjalla Bjarka Meitel,“ segir Soff- ía, en til Íslands kemur gagngert úrval færeyskra listamanna til að skemmta á menningarhátíðinni. „Færeying- ar eiga margar hefðir sem Íslending- ar hafa glatað niður, eins og færeyska dansinn sem stiginn var hérlendis á öldum áður en svo bannfærður í kjöl- far kristnitöku. Færeyingar sátu við sinn keip og héldu áfram að dansa. Hingað koma mjög þekktir færeyskir þjóðdansarar og gestum verður boðið að stíga dansinn með þeim. Því er víst að dynja muni í danssólum þessara góðu frændþjóða í sölum Kjarvals,“ segir Soffía full tilhlökkunar. „Hér verður vitaskuld veisla fyrir yngstu kynslóðirnar líka, þar á meðal skemmtileg verkefni fyrir alla fjöl- skylduna að leysa í tengslum við verk Mikines. Brúðuleikhús Helgu Steffen- sen mun sýna brúðuleikritið Vináttu og Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur fylgja gestum um sýninguna og segja frá meistara Mikines,“ segir Soffía en þess má geta að skemmtilegur fróð- leikur um Færeyjar í máli og myndum verður í boði allan daginn. Færeyska menningarhátíðin stend- ur frá 14 til 18. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. thordis@frettabladid.is LISTASAFN REYKJAVÍKUR: FÆREYSK MENNINGARHÁTÍÐ Á KJARVALSSTÖÐUM Dynur í danssólum Færeyinga Elskulegur eiginmaður og vinur, faðir, tengdafaðir og afi, Gunnar Örn Gunnarsson myndlistarmaður, Kambi, Holtum, lést að kvöldi 28. mars á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut. Þórdís Ingólfsdóttir Sigríður Gunnarsdóttir Rúnar V. Þórmundsson Vilhjálmur Jón Gunnarsson Gunnar Guðsteinn Gunnarsson Hafdís Sigurjónsdóttir Rósalind María Gunnarsdóttir María Björk Gunnarsdóttir Rasmus W. Johansen Snæbjörg Guðmunda Gunnarsdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir sendum við til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna and- láts og útfarar elskulegrar sambýliskonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, Hólmfríðar Davíðsdóttur Hlíðarhjalla 69. Kærar þakkir til allra sem önnuðust hana í veikindunum, sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans í Kópavogi. Gunnar Ásmundsson Davíð Guðmundsson Hulddís Guðbrandsdóttir Ásgeir Sigurðsson Arndís Kristjánsdóttir Kolbrún Marín og Róbert Dagur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Eiríkur Júlíus Sigurðsson vélstjóri, Smáratúni 12, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn 3. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Anna Vernharðsdóttir Leifur Eiríksson Hildur Ingvarsdóttir Guðbjörg Hrefna Blanar Richard Blanar Örn Sævar Eiríksson Guðlaug Hulda Halldórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, Guðrúnar Kvaran Sóleyjargötu 9, Reykjavík. Guðrún Kvaran Jakob Yngvason Vilhjálmur B. Kvaran Helga Pála Elíasdóttir Einar B. Kvaran Böðvar B. Kvaran Ásta Árnadóttir Hjörleifur B. Kvaran Anna Kristín Ólafsdóttir Gísli B. Kvaran Anna Alfreðsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Jónínu Helgu Guðmundsdóttur Austurbyggð 17, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Víðihlíð á dvalarheimilinu Hlíð fyrir góða umönnun. Guðrún Sigríður Stefánsdóttir Sigurjón Eðvaldsdóttir Guðmundur A. Stefánsson Anna Lilja Valdemarsdóttir Kristín Helga Stefánsdóttir Kolbrún Stefánsdóttir Friðrik Adolfsson Ómar Þór Stefánsson Hulda Vigfúsdóttir Stefán Heimir Stefánsson Anna Halldórsdóttir ömmu- og langömmubörn. Elskulegur eiginmaður minn Einar Guðlaugsson lést af slysförum þriðjudaginn 2. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd fjölskyldunnar Ingibjörg Þ. Jónsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdadóttir, systir og mágkona, Bára Traustadóttir frá Fáskrúðsfirði, Kjarrhólma 20, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðviku- daginn 2. apríl. Útförin fer fram frá Hjallakirkju mið- vikudaginn 9. apríl kl. 15.00. Guðbjartur Guðbjartsson Ívar Örn Róbertsson Sigurvin Guðbjartsson María Jóhannesdóttir Ottó Valur Kristjánsson Margrét Samsonardóttir Sjöfn Traustadóttir Eysteinn Stefánsson Óðinn Traustason Guðrún Erlendsdóttir Þórir Traustason Aðalheiður Sigurbjörnsdóttir Björg Traustadóttir timamot@frettabladid.is SKERPUKJÖT OG FÆREYSKUR DANS Soffía Karlsdóttir, kynningarstjóri Listasafns Reykjavíkur, með eitt málverka færeyska meistarans Mikines í bakgrunni, en Íslending- um er boðið til færeyskrar menningarveislu á Kjarvalsstöðum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.