Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 82
54 5. apríl 2008 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Enska knattspyrnusam-
bandið, FA, rannsakar nú
ásakanir sem sambandinu bárust
um að leikmaður í ensku úrvals-
deildinni hafi þegið mútur fyrir
að láta reka sig út af í leik í þeim
tilgangi að reyna að hafa áhrif á
úrslit umrædds leiks.
Enska dagblaðið The Independ-
ent segist hafa heimildir fyrir því
að atvikið hafi átt sér stað í ensku
úrvalsdeildinni fyrir ekki meira
en tveimur árum og að leikmað-
urinn hafi reynt að fá þrjá
meðspilara sína til þess að leika
sama leik. Fyrir vikið á leikmað-
urinn að hafa þegið greiðslu upp á
um 50 þúsund pund frá enskum
veðmangara.
Leikmönnum í ensku úrvals-
deildinni er óheimilt samkvæmt
reglum FA að veðja á leiki eða
deildarkeppnir sem þeir taka þátt
í sjálfir. „Við munum skoða málið
og athuga hvort fréttin eigi við
rök að styðjast,“ sagði talsmaður
FA í viðtali við BBC Sport. - óþ
Enska úrvalsdeildin:
Mútumál að
koma upp?
FÓTBOLTI Barcelona hefur orðið
fyrir miklu áfalli eftir að í ljós
kom að framherjinn Ronaldinho
verður frá keppni í allt að því sex
vikur. Brasilíumaðurinn snjalli
hefur átt erfitt uppdráttar á
þessu keppnistímabili vegna
lærmeiðsla og meintra deilna við
forráðamenn félagsins og
Rivaldo, fyrrverandi leikmaður
Barcelona, hefur gagnrýnt
félagið fyrir framkomu sína í
garð samlanda síns.
„Það er sorglegt að sjá fram-
komu forráðamanna Barcelona í
garð síns besta leikmanns. Þeir
eru að snúa aðdáendum gegn
honum og gera hann að blóra-
böggli þegar illa gengur og það
bendir til þess að þeir séu að
reyna að bola honum burt frá
félaginu. Aðrir leikmenn félags-
ins fá einnig vel borgað og það
vel og þurfa einnig að bera
ábyrgð,“ sagði Rivaldo í nýlegu
viðtali við spænsku útvarpsstöð-
ina Ona FM. - óþ
Rivaldo gagnrýnir Barcelona:
Ronaldinho á
betra skilið
ÓSÁTTUR Rivaldo finnur til með sam-
landa sínum Ronaldinho.
NORDIC PHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Keflavíkurkonur
tryggðu sér Íslandsmeistaratit-
ilinn í þrettánda sinn með eins
stigs sigur, 91-90, á KR í Toyota-
höllinni í gær. Keflavík vann alla
þrjá leiki lokaúrslitanna en
fengu verðuga keppni frá nýlið-
um KR sem töpuðu báðum leikj-
um sínum í Keflavík með aðeins
eins stigs mun. Keflavíkurkon-
um tókst hins vegar að verða
fyrsta liðið til þess að vinna alla
leiki úrslitakeppninnar síðan það
þurfti að vinna sex leiki til þess
að verða Íslandsmeistari.
Kesha Watson átti verk óunnið
þegar hún yfirgaf Keflavík í
fyrra með silfrið. Hún ætlaði sér
að verða Íslandsmeistari og
sýndi það í verki með því að eiga
frábæra úrslitakeppni. Kesha
kórónaði frammistöðu sína með
því að taka enn einu sinni liðið á
herðar sér í seinni hálfleik þegar
hún skoraði 27 af 36 stigum
sínum. Kesha átti líka lokaorðið í
lokin og setti niður mjög erfitt
skot til að koma Keflavík 89-97
og svo tvö víti skömmu síðar
sem juku muninn í 91-87. Guð-
rún Ámundadóttir skoraði
þriggja stiga körfu og fiskaði
sóknarvillu þegar tvær sekúnd-
ur voru eftir en KR tókst ekki að
nýta síðustu sóknina ekki frekar
en í fyrsta leiknum.
„Það er alltaf jafn sætt að
vinna meistaratitil hvort sem þú
vinnur með einu stigi eða tíu
stigum. Þetta fær maður að upp-
lifa ef maður leggur mikið á sig.
Við höfum lent í miklu mótlæti
en það er það sem býr til meist-
ara er hvernig lið yfirvinna mót-
læti. Eftir öll meiðslin, veikind-
inn, svitan, tárin og blóðið þá
getum við brosað af því að við
komust í gegnum þetta allt,“
sagði Kesha sem átti verk óunn-
ið síðan í fyrra. „Mér fannst ég
ekki skila mínu besta í fyrra og
ég var ósátt allt síðasta sumar að
hafa misst af titlinum. Ég vissi
ef að ég væri heil í vetur þá
gætum við gert eitthvað,“ sagði
Kesha sem er ekki búin að
ákveða hvað hún gerir næsta
vetur. „Ég er ekki viss og á eftir
að skoða mín mál. Keflavík er
samt mitt heimili að heiman og
ég mun alltaf geyma Keflavík í
hjarta mínu,“ sagði Kesha að
lokum.
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir,
fyrirliði Keflavíkur tók við
Íslandsbikarnum í leikslok en
hún átti þrjá mjög góða leiki í
úrslitunum. „Við sýndum mikinn
karakter, við erum með frábært
lið og vorum svo samheldnar í
lokin. Það voru margar í liðinu
að leggja í púkkið og við vegum
hvora aðra upp,“ sagði Ingibjörg
sem skoraði yfir 10 stig í öllum
leikjum lokaúrslitanna. „Ég
ákvað að trúa meira á sjálfa mig,
skjóta meira, spila betri vörn og
vera kærulausari,“ sagði Ingi-
björg Elva að lokum en hún var
með 10 stig, 4 stoðsendingar og 3
varin skot í gær.
Keflavík hefur gengið í gegn-
um mikið mótlæti á leið sinn að
titlinum og liðið hefur misst út
menn. Rannveig Randversdóttir
fær jafnan það hlutverk að
hlaupa í skarðið og spila þá stöðu
sem vantar. „Mitt hlutverk í
vetur hefur verið að leysa hitt og
þetta en maður reynir bara að
gera það sem maður getur. Ég
ætlaði bara að mæta í dag og
hugsa um ekkert nema að spila
körfubolta. Jonni þjálfari bað
okkur að líta á bikarinn fyrir leik
og sjá hvað við vorum að spila
fyrir en ég ákvað að líta ekkert á
hann og ætlaði bara að koma og
spila körfubolta,“ sagði Rann-
veig sem var með 11 stig, 6 frák-
öst og 5 stolna bolta á 23 mínút-
um í gær.
KR-liðið átti mjög góðan leik
og fékk framlög frá mun fleirum
en í fyrstu tveimur leikjunum.
Candace Futrell (38 stig, 14 frák-
öst) átti sinn besta leik í serí-
unni, Sigrún Ámundadóttir (13
stig, 11 fráköst) skilaði sínu og
þá tók Helga Einarsdóttir (8 stig,
8 stoðsendingar) miklu meiri
þátt í sókninni og Guðrún
Ámundadóttir átti flotta inn-
komu af bekknum. Hildur Sig-
urðardóttir glímdi við meiðsli og
villuvandræði en endaði með 11
stig og 8 stoðsendingar.
ooj@frettabladid.is
Keflavík Íslandsmeistari í þrettánda sinn
Keflavík vann eins stigs sigur á KR, 91-90, í gær og tryggði sér titilinn. Keflavík varð fyrsta liðið til þess að
vinna sex leiki í röð í úrslitakeppni kvenna. Kesha Watson var kosinn besti leikmaður lokaúrslitanna.
KEFLAVÍK-KR 91-90 (43-45)
Stig Keflavíkur: Kesha Watson 36
(5 frák., 5 stolnir, 4 stoðs.), Susanne
Biemer 12, Rannveig Randversdóttir
11 (6 frák.), Ingibjörg Elva Vilbergs-
dóttir 10 (4 frák., 4 stoðs.), Margrét
Kara Sturludóttir 8 (7 frák., 4 stoðs.),
Pálína Gunnlaugsdóttir 6 (11 frák.),
Birna Valgarðsdóttir 6, Halldóra
Andrésdóttir 2.
Stig KR: Candace Futrell 38 (14
frák.), Sigrún Ámundadóttir 13 (11
frák.), Hildur Sigurðardóttir 11 (8
stoðs.), Guðrún Ámundadóttir 10,
Helga Einarsdóttir 8 (8 stoðs., 6
frák.), Rakel Viggósdóttir 5, Guðrún
Gróa Þorsteinsdóttir 3 (4 frák., 4
stoðs.), Lilja Oddsdóttir
ÞRETTÁNDI ÍSLANDSMEISTARATITILINN Fyrirliðar Keflavíkur, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir og Marín Rós Karlsdóttir. lyfta hér
Íslandsbikarnum eftir 91-90 sigur á KR í gær. Keflavík vann alla sex leiki sína í úrslitakeppninni. VÍKURFRÉTTIR/STEFÁN ÞÓR
SIGURSTURTAN Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, fær hér vatnsgusu frá
bandaríska leikmanni sínum, Keshu Watson. VÍKURFRÉTTIR/STEFÁN ÞÓR