Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 71

Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 71
LAUGARDAGUR 5. apríl 2008 GRILLIN ERU KOMIN í verslanir og á þjónustustöðvar N1 VERSLUN N1 ÞJÓNUSTUSTÖÐVAR SÍMI 440 1000 WWW.N1.IS - 13,2 kW / 50,000 BTU Dual-TubeTMbrennarar - 2,7 kW / 10,000 BTU hliðarhella úr ryðfríu stáli - 5,25 kW / 15,000 BTU bakbrennari fyrir grilltein - 3 Dual-TubeTMryðfríir línubrennarar - 2 grillgrindur úr steypujárni - Rotisserie grillteinn - Ryðfrí eldunarhlíf Flav-R-WaveTM - Hágæða Accu-TempTM hitamælir - Sure-LightTMelektrónískt kveikjukerfi - Niðurfellanleg hliðarborð með áhaldakrókum - Skápur með stálhurðum BROIL KING SIGNET 90 - 8,8 kW / 30,000 BTU I brennari úr ryðfríu stáli - Postulínshúðaðar járngrindur til eldunar - Ryðfrí eldunarhlíf Flav-R-WaveTM - Hágæða Accu-TempTM hitamælir - Sure-LightTMelektrónískt kveikjukerfi - Niðurfellanleg hliðarborð með áhaldakrókum BROIL KING GEM 22.900,- 32.900,- 17.900,- - 5 kW / 20,000 BTU I brennari úr ryðfríu stáli - Postulínshúðaðar járngrindur til eldunar - Sure-LightTMelektrónískt kveikjukerfi BROIL KING PORTA-CHEF 72.900,- 89.900,- HEIMSENDING Á HÖFUÐ- BORGAR- SVÆÐINU Á SAMSETTUM GRILLUM FRÍ - 13,2 kW / 50,000 BTU Dual-TubeTM brennarar - 3 Dual-TubeTMryðfríir línubrennarar - 2 grillgrindur úr steypujárni - Ryðfrí eldunarhlíf Flav-R-WaveTM - Hágæða Accu-TempTM hitamælir - Sure-LightTMelektrónískt kveikjukerfi - Niðurfellanleg hliðarborð með áhaldakrókum - Skápur með stálhurðum BROIL KING SIGNET 20 - 11,4 kW / 40,000 BTU H brennari úr ryðfríu stáli - Postulínshúðaðar járngrindur til eldunar - Ryðfrí eldunarhlíf Flav-R-WaveTM - Hágæða Accu-TempTM hitamælir - Sure-LightTMelektrónískt kveikjukerfi - Niðurfellanleg hliðarborð úr stáli með áhaldakrókum BROIL KING ROYAL Mikil færeysk menningarhátíð verður haldin á Kjarvalsstöðum í dag á milli kl. 14 og 18. Þar koma fram færeyskir tónlistarmenn og dansarar og boðið verður upp á leiðsögn um sýningu á verkum myndlistarmannsins Sámals Mikines. Að auki verður boðið upp á fróðleik um Færeyjar í máli og myndum allan daginn og fær- eyskir þjóðarréttir kynntir, íslenskum matgæðingum vafa- laust til mikillar ánægju. Hátíðin er haldin í tengslum við sýningu á verkum meistarans Mikines sem staðið hefur yfir á Kjarvalsstöðum undanfarnar vikur, en sýningunni lýkur nú á morgun. Mikines er einn helsti myndlistarmaður sem Færeyjar hafa af sér alið og mætti leggja stöðu hans í hugum Færeyinga að jöfnu við stöðu Kjarvals í hugum okkar Íslendinga. Mikines sótti sér helst innblástur í náttúru, landslag og líf Færeyinga. Tengsl Íslands og Færeyja ná langt aftur í aldir og spanna hin ýmsu svið menningar og lista. Við undirbúning á sýningunni á verk- um Mikines komst á gott sam- band aðila úr íslensku og fær- eysku menningarlífi sem skilar sér svo í dag í þessari menningar- hátíð. Dagskrá hátíðarinnar hefst sem fyrr segir kl. 14 í dag með setningarathöfn. Að athöfninni lokinni býður Aðalsteinn Ingólfs- son listfræðingur upp á sérlega fróðlega leiðsögn um Mikines- sýninguna. Á meðal þess sem einnig verður á boðstólum er brúðuleikritið Vinátta í flutningi Leikbrúðulands Helgu Steffen- sen, færeysk tónlist í flutningi Tríós Katrínar Petersen, færeysk danssýning sem gestum býðst að taka þátt í og kynning á færeysk- um þjóðarréttum á borð við skerpukjöt, rastakjöt, hvalkjöt og hvalspik. Nánar má kynna sér dagskrá hátíðarinnar á vef Lista- safns Reykjavíkur: www.lista- safnreykjavikur.is - vþ Færeyskur menningardagur; dans, tónlist og myndlist GRINDARDRÁP Málverk eftir Færeyinginn Samál Mikines. Þjóðleikhúsið frumsýnir í kvöld leikritið Sá ljóti eftir þýska leikskáldið Marius von Mayenburg á Smíða- verkstæðinu í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur. Sá ljóti er nýjasta verk leik- skáldsins sem hefur vakið mikla athygli í evrópsku leikhúslífi á undanförnum árum. Verkið er jafnframt fyrsta verk hans sem sviðsett er á Íslandi, en hið metnaðarfulla Útvarpsleik- hús Ríkisútvarpsins hefur áður flutt leikrit eftir hann. Í leikritinu kynnumst við Lárusi sem er óheppilega ljótur. Svo ljót- ur að honum er meinað að fara á ráðstefnu á vegum fyrirtækisins sem hann vinnur hjá. Sú ákvörð- un kemur Lárusi algerlega í opna skjöldu og þegar vinnufélagar hans og eiginkona segjast skilja afstöðu fyrirtækisins fullkom- lega tekur hann ákvörðun sem gjörbreytir lífi hans og útliti. Sá ljóti er kolsvartur gaman- leikur um samtímann, bráðsmell- inn og martraðarkenndur í senn. Hér er tekist á við brennandi spurningar um samkeppnisþjóð- félag nútímans og fegurðardýrk- unina, jafnframt því sem höfund- ur veltir upp tilvistarlegum spurningum um það hvað við erum í raun, og hvað greinir okkur frá öðrum manneskjum. Er það í raun og veru fallega fólkið sem lifir besta kynlífinu, hefur mestu völdin og upplifir mestu hamingjuna? Ef það er hægt að breyta andlitinu á fólki, af hverju ætti þá einhver að sætta sig við að vera ófríður? Er hægt að vera of fallegur? Leikhópurinn fer hráa og umbúðalausa leið að þessu hárbeitta verki og skapar úr því eftirminnilega sýningu þar sem list leikarans er í fyrirrúmi. Leikarar í sýningunni eru Dóra Jóhannsdóttir, Jörundur Ragn- arsson, Stefán Hallur Stefánsson og Vignir Rafn Valþórsson, en þau stunduðu öll nám á svipuðum tíma við leiklistardeild Listahá- skóla Íslands og hafa meðal ann- ars starfað saman áður undir merkjum leikfélagsins Vér morð- ingjar. Leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir en Sá ljóti er fyrsta leikstjórnarverkefni hennar í Þjóðleikhúsinu. Um leikmynd og búninga sér Stígur Steinþórsson. Hallur Ingólfsson semur tónlist en lýsingu hannar Hörður Ágústs- son. Þýðandi verksins er Bjarni Jónsson. vigdis@frettabladid.is Ljótur maður á fjalirnar LJÓTUR MAÐUR EÐA FALLEG SÁL? Úr leikritinu Sá ljóti sem frumsýnt verður á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins í kvöld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.