Fréttablaðið - 05.04.2008, Qupperneq 71
LAUGARDAGUR 5. apríl 2008
GRILLIN
ERU KOMIN
í verslanir og á þjónustustöðvar
N1 VERSLUN N1 ÞJÓNUSTUSTÖÐVAR SÍMI 440 1000 WWW.N1.IS
- 13,2 kW / 50,000 BTU Dual-TubeTMbrennarar
- 2,7 kW / 10,000 BTU hliðarhella úr ryðfríu stáli
- 5,25 kW / 15,000 BTU bakbrennari fyrir grilltein
- 3 Dual-TubeTMryðfríir línubrennarar
- 2 grillgrindur úr steypujárni
- Rotisserie grillteinn
- Ryðfrí eldunarhlíf Flav-R-WaveTM
- Hágæða Accu-TempTM hitamælir
- Sure-LightTMelektrónískt kveikjukerfi
- Niðurfellanleg hliðarborð með áhaldakrókum
- Skápur með stálhurðum
BROIL KING SIGNET 90
- 8,8 kW / 30,000 BTU I brennari úr
ryðfríu stáli
- Postulínshúðaðar járngrindur
til eldunar
- Ryðfrí eldunarhlíf Flav-R-WaveTM
- Hágæða Accu-TempTM hitamælir
- Sure-LightTMelektrónískt kveikjukerfi
- Niðurfellanleg hliðarborð
með áhaldakrókum
BROIL KING GEM
22.900,-
32.900,-
17.900,-
- 5 kW / 20,000 BTU I brennari úr
ryðfríu stáli
- Postulínshúðaðar járngrindur
til eldunar
- Sure-LightTMelektrónískt kveikjukerfi
BROIL KING
PORTA-CHEF
72.900,-
89.900,-
HEIMSENDING
Á HÖFUÐ-
BORGAR-
SVÆÐINU Á
SAMSETTUM
GRILLUM
FRÍ
- 13,2 kW / 50,000 BTU Dual-TubeTM
brennarar
- 3 Dual-TubeTMryðfríir línubrennarar
- 2 grillgrindur úr steypujárni
- Ryðfrí eldunarhlíf Flav-R-WaveTM
- Hágæða Accu-TempTM hitamælir
- Sure-LightTMelektrónískt kveikjukerfi
- Niðurfellanleg hliðarborð með
áhaldakrókum
- Skápur með stálhurðum
BROIL KING SIGNET 20
- 11,4 kW / 40,000 BTU H brennari
úr ryðfríu stáli
- Postulínshúðaðar járngrindur
til eldunar
- Ryðfrí eldunarhlíf Flav-R-WaveTM
- Hágæða Accu-TempTM hitamælir
- Sure-LightTMelektrónískt kveikjukerfi
- Niðurfellanleg hliðarborð úr stáli
með áhaldakrókum
BROIL KING ROYAL
Mikil færeysk menningarhátíð
verður haldin á Kjarvalsstöðum í
dag á milli kl. 14 og 18. Þar koma
fram færeyskir tónlistarmenn og
dansarar og boðið verður upp á
leiðsögn um sýningu á verkum
myndlistarmannsins Sámals
Mikines. Að auki verður boðið
upp á fróðleik um Færeyjar í máli
og myndum allan daginn og fær-
eyskir þjóðarréttir kynntir,
íslenskum matgæðingum vafa-
laust til mikillar ánægju.
Hátíðin er haldin í tengslum við
sýningu á verkum meistarans
Mikines sem staðið hefur yfir á
Kjarvalsstöðum undanfarnar
vikur, en sýningunni lýkur nú á
morgun. Mikines er einn helsti
myndlistarmaður sem Færeyjar
hafa af sér alið og mætti leggja
stöðu hans í hugum Færeyinga að
jöfnu við stöðu Kjarvals í hugum
okkar Íslendinga. Mikines sótti
sér helst innblástur í náttúru,
landslag og líf Færeyinga.
Tengsl Íslands og Færeyja ná
langt aftur í aldir og spanna hin
ýmsu svið menningar og lista. Við
undirbúning á sýningunni á verk-
um Mikines komst á gott sam-
band aðila úr íslensku og fær-
eysku menningarlífi sem skilar
sér svo í dag í þessari menningar-
hátíð.
Dagskrá hátíðarinnar hefst
sem fyrr segir kl. 14 í dag með
setningarathöfn. Að athöfninni
lokinni býður Aðalsteinn Ingólfs-
son listfræðingur upp á sérlega
fróðlega leiðsögn um Mikines-
sýninguna. Á meðal þess sem
einnig verður á boðstólum er
brúðuleikritið Vinátta í flutningi
Leikbrúðulands Helgu Steffen-
sen, færeysk tónlist í flutningi
Tríós Katrínar Petersen, færeysk
danssýning sem gestum býðst að
taka þátt í og kynning á færeysk-
um þjóðarréttum á borð við
skerpukjöt, rastakjöt, hvalkjöt og
hvalspik. Nánar má kynna sér
dagskrá hátíðarinnar á vef Lista-
safns Reykjavíkur: www.lista-
safnreykjavikur.is - vþ
Færeyskur menningardagur;
dans, tónlist og myndlist
GRINDARDRÁP Málverk eftir Færeyinginn Samál Mikines.
Þjóðleikhúsið frumsýnir í
kvöld leikritið Sá ljóti eftir
þýska leikskáldið Marius
von Mayenburg á Smíða-
verkstæðinu í leikstjórn
Kristínar Eysteinsdóttur. Sá
ljóti er nýjasta verk leik-
skáldsins sem hefur vakið
mikla athygli í evrópsku
leikhúslífi á undanförnum
árum. Verkið er jafnframt
fyrsta verk hans sem
sviðsett er á Íslandi, en hið
metnaðarfulla Útvarpsleik-
hús Ríkisútvarpsins hefur
áður flutt leikrit eftir hann.
Í leikritinu kynnumst við Lárusi
sem er óheppilega ljótur. Svo ljót-
ur að honum er meinað að fara á
ráðstefnu á vegum fyrirtækisins
sem hann vinnur hjá. Sú ákvörð-
un kemur Lárusi algerlega í opna
skjöldu og þegar vinnufélagar
hans og eiginkona segjast skilja
afstöðu fyrirtækisins fullkom-
lega tekur hann ákvörðun sem
gjörbreytir lífi hans og útliti.
Sá ljóti er kolsvartur gaman-
leikur um samtímann, bráðsmell-
inn og martraðarkenndur í senn.
Hér er tekist á við brennandi
spurningar um samkeppnisþjóð-
félag nútímans og fegurðardýrk-
unina, jafnframt því sem höfund-
ur veltir upp tilvistarlegum
spurningum um það hvað við
erum í raun, og hvað greinir
okkur frá öðrum manneskjum. Er
það í raun og veru fallega fólkið
sem lifir besta kynlífinu, hefur
mestu völdin og upplifir mestu
hamingjuna? Ef það er hægt að
breyta andlitinu á fólki, af hverju
ætti þá einhver að sætta sig við
að vera ófríður? Er hægt að vera
of fallegur? Leikhópurinn fer
hráa og umbúðalausa leið að
þessu hárbeitta verki og skapar
úr því eftirminnilega sýningu þar
sem list leikarans er í fyrirrúmi.
Leikarar í sýningunni eru Dóra
Jóhannsdóttir, Jörundur Ragn-
arsson, Stefán Hallur Stefánsson
og Vignir Rafn Valþórsson, en
þau stunduðu öll nám á svipuðum
tíma við leiklistardeild Listahá-
skóla Íslands og hafa meðal ann-
ars starfað saman áður undir
merkjum leikfélagsins Vér morð-
ingjar. Leikstjóri er Kristín
Eysteinsdóttir en Sá ljóti er fyrsta
leikstjórnarverkefni hennar í
Þjóðleikhúsinu. Um leikmynd og
búninga sér Stígur Steinþórsson.
Hallur Ingólfsson semur tónlist
en lýsingu hannar Hörður Ágústs-
son. Þýðandi verksins er Bjarni
Jónsson.
vigdis@frettabladid.is
Ljótur maður á fjalirnar
LJÓTUR MAÐUR EÐA FALLEG SÁL? Úr leikritinu Sá ljóti sem frumsýnt verður á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins í kvöld.