Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 42
● heimili&hönnun HEYRN Fátt jafnast á við fallega klassíska tónlist úr góðum græjum. Falleg tónlist gefur orku, skerpir einbeitingu og veitir vellíðan. Ég hef verið svo heppin í mínu starfi að þurfa oft og tíðum að vinna við og fá að semja hreyfingar við fallega tónlist. Tónlist er því stór hluti af mínu lífi, bæði í starfi og leik. SJÖTTA SKILNINGARVITIÐ Það er nauðsynlegt að rækta það. Ég tel að allir búi yfir því, á ólíkan hátt þó. Mitt hefur stund- um truflað mig og ég hef lokað á það, en nú vil ég rækta það og opna sjálfa mig aftur fyrir hinu yfirskil- vitlega. Þótt Ástrós hafi í nógu að snúast þessa dagana við Pilates-þjálfun og danssköpun með Láru Stefáns- dóttur dansara gætir hún þess að skilja einkalífið ekki út undan né þær dásemdir sem felast í því að næra kropp og andann heima, þar sem alltaf er allra best. „Mestur tíminn augnabliksins fer í vinnu með Láru, en saman erum við að setja upp dansverk sem við höfum unnið að á undan- förnum vikum og verður frumsýnt 1. maí í Iðnó. Dansverkið köllum við Systur og það mun fjalla um hugsanir, langanir, ástríður og þrá tveggja ólíkra kvenna, og er rússí- banaferð um hugaróra og veru- leika þeirra systra, þar sem losti, munúð, limir, sektarkennd, hrein- leiki, trú, von, kærleikur, líf, dauði, spenna og umbreyting koma við sögu. Því má segja að þetta verði tær veisla fyrir skilningarvitin sem vissulega eru í góðu formi hjá mér þessa dagana,“ segir Ástrós glaðbeitt, en Hrafnhildur Hagalín kemur að verkinu með textagerð og Guðni Franzson leggur sitt á vogarskálar tónlistar. - þlg Af þrá í holds- ins angan ● Andi ástar og lífsmunúðar svífur yfir vötnum á draum- kenndu og íðilfögru heimili dansarans, leikstjórans, dans- höfundarins og Pilates-þjálfarans Ástrósar Gunnarsdóttur og fréttamannsins Þorfinns Ómarssonar í hjarta Reykjavíkur. Þar gefast endalaus tækifæri til upplifunar lífsins lystisemda, enda kann Ástrós að njóta og næra skilningarvitin sex að eigin geðþótta og þrám. Ástrós lætur sér líða vel í hvítum leðursófa í stofunni heima. Þar sem vorbirtan lýsir upp innviði hreiðursins inn um sjarmerandi, gamaldags gluggana. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Eldhúsið er matarlegt og beinlínis kallar á sælkeramatseld á gaseldavél með gylltum hnöppum; blómamálverki, hvítlauksknippi og koparpönnum allt um kring. SJÓN Best er að líta nakinn sam- býlismann minn augum að morgni til. Líka gott og gaman að sjá fallegu undir- fötin sem við Lára Stefáns- dóttir ætlum að klæðast í sýningunni Systur og allt- af gaman að horfa á kisurnar mínar þegar þær eru í fótbolta eða bara að njóta þess að láta gæla við sig. Allt þetta gleður augað og þar með sálina. LYKT Lyktin af holdi mannsins míns á fyrsta sæti. Lyktin af matarundirbúningi og góðu víni á annað sæti. Lykt- in af feldinum hennar Bellu þegar hún er nýkomin að utan á þriðja sæti. Það er svo magnað við lyktina að maður getur þjáðst af þrá og löngun eftir henni. BRAGÐ Fyrsta sætið er hið sama og af lyktinni. Annað sætið líka: góður matur, séreldaður af meistarakokki heim- ilisins og sérvalið vín af sama meistara. Það að missa bragðskynið tel ég vera eitt hið alversta. Hef oft lent í því í einn eða tvo daga í slæmu kvefi og óska engum að missa það alfarið. SNERTING Það þarf varla að segja hvaða snerting er best! Að snerta þann sem maður elskar er best af öllu. Snerting er nauðsyn- leg öllum. Snerting getur bætt samband fólks, hvort sem það á í nánu samneyti eða ekki. Þetta fallega strengjahljóðfæri er sannkölluð heimilisprýði og gefur heimilinu ástar- legt yfirbragð, ásamt því að skapa ómþýða tóna. 5. APRÍL 2008 LAUGARDAGUR6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.