Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 70
42 5. apríl 2008 LAUGARDAGUR menning@frettabladid.is Í dag kl. 17 heldur áfram kamm- ertónleikaröð Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands í Þjóðmenning- arhúsinu. Flutt verða verk eftir þýska tónskáldið Louis Spohr (1784-1859), en á sinni tíð var honum hiklaust stillt upp við hlið Mozarts og Beethovens þegar talað var um mestu tónskáld samtímans. Spohr var afkasta- mikið tónskáld, fiðluvirtúós og dáður hljómsveitarstjóri og kennari. Þetta verða fjölbreyttir tónleik- ar þar sem ýmis stíleinkenni hins merka tónskálds fá að njóta sín, en Spohr var þekktur fyrir að tileinka sér hratt strauma og stefnur í tónlist og sér þess vitaskuld stað í verkum hans. Leikinn verður kafli úr Tríói fyrir hörpu, fiðlu og selló, en Spohr skrifaði mikið af verkum þar sem harpa er í áberandi hlutverki, enda eiginkona hans hörpu- leikari í fremstu röð. Þá verða flutt þrjú sönglög, og bætist þar sópran- söngkonan Ingibjörg Guðjónsdóttir í hóp hljóðfæraleikaranna. Að lokum verður síðan leikinn oktett fyrir fiðlu, tvær víólur, selló, klarín- ettu, tvö horn og kontrabassa. Hljóðfæraleikarar á tónleikunum eru Katie Buckley hörpuleikari, Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari, selló- leikarinn Margrét Árnadóttir, Einar Jóhannesson á klarinett, víóluleik- ararnir Þórunn Ósk Marinósdóttir og Þórarinn Már Baldursson, hornleikarnir Jósef Ognibene og Emil Friðfinnsson og Richard Korn kontrabassaleikari. Þetta er kjörið tækifæri til að kynnast þessum forvitnilega tón- smið í glæsilegum húsakynnum Þjóðmenningarhússins þar sem andi aldanna svífur yfir vötnum. - pbb Krystalstónleikar í dag Kl. 16 Söngvarar úr fjórum kórum í Reykjavík halda tónleika í dag kl. 16 í Sölvhóli, tónleikasal Listaháskóla Íslands, Sölvhólsgötu 13. Öll tónlistin sem flutt verður er samin af kórfélög- unum sjálfum undir handleiðslu tónlistarmannsins Gunnars Ben. Flytjendurnir eru félagar úr kórum Iðnskólans í Reykjavík, Menntaskól- ans við Sund, Kvennaskólans í Reykjavík og Verslunarskóla Íslands. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum opinn. Í vikunni var tilkynnt um tilnefningar valnefndar til Íslensku þýðingar- verðlaunanna sem afhent verða af forseta Íslands á Gljúfrasteini í lok apríl. Í dómnefnd sátu bókmennta- fræðingar og blaðamenn, allt valinkunnir fagurkerar á íslenskar og erlendar bókmenntir, þau Silja Aðal- steinsdóttir, Árni Matthías- son og Fríða Björk Ingvars- dóttir. Tilnefndar bækur til Íslensku þýð- ingarverðlaunanna 2008 eru eftir- talin verk en þrátt fyrir barlóm útgefenda var kraftur í þýðingum úr erlendum tungumálum, bæði frumþýðingar af þeirri tungu sem verkin voru samin á og eins þýðing- ar sem snúið er af öðru tungumáli. Verkin eru þessi: Brandarinn, Milan Kundera. Friðrik Rafnsson þýðir. JPV útgáfa. Brandarinn (Zert) var fyrsta skáld- saga Milans Kundera (1967), myrk saga um það hvernig hefndarhugur eitrar líf ungs manns. Friðrik Rafnsson hefur nú þýtt allar skáld- sögur Kunderas og texti Brandar- ans ber með sér að þýðandinn er nákunnugur stíl höfundar. Loftskeytamaðurinn, Knut Hamsun. Jón Kalman Stefánsson þýðir. Uppheimar. Loftskeytamað- urinn (Sværmere), ein skemmtileg- asta bók Knuts Hamsun, segir frá Ole Rolandsen, drykkfelldum og sjálfumglöðum kvennamanni sem reynist þó eiga óvæntar hliðar. Jón Kalman nýtur þess augljóslega að þýða fyndinn og oft ósvífinn text- ann. Módelið, Lars Saabye Christen- sen. Sigrún Kr. Magnúsdóttir þýðir. Mál og menning. Módelið (Mod- ellen) er um virtan myndlistar- mann sem lendir í alvarlegri sið- klípu þegar hann stendur frammi fyrir því að verða blindur. Þýðingin fangar vel bæði kurteislegt yfir- borð sögunnar og óhugnað undir- textans. Móðurlaus Brooklyn, Jonathan Lethem. Eiríkur Örn Norðdahl þýðir. Bjartur. Móðurlaus Brooklyn (Motherless Brooklyn) gerist í heimi jaðarfólks í New York. Aðal- persóna og sögumaður þjáist af Tourette-áráttuhegðun sem meðal annars kemur fram í því að hann verður að snúa upp á orð sem hann heyrir og endurtaka þau í endalaus- um tilbrigðum. Það hefur ekki verið einfalt að endurskapa þennan óskapnað á íslensku. Skíðaferðin, Emmanuel Carrère. Sigurður Pálsson þýðir. JPV útgáfa. Skíðaferðin (La classe de neige) hans Nicolasar litla byrjar illa og endar enn þá verr, og það er allt pabba hans að kenna. Tónn sögunn- ar er bernskur en þó mettaður orð- lausri skelfingu sem þýðandi nær með miklum ágætum. - pbb Tilnefningar birt- ar til Þýðingar- verðlaunanna Ráðstefna um barna- og unglinga- bókmenntir fer fram í Menningar- miðstöðinni Gerðubergi í Breið- holti í dag á milli kl. 10.30 og 14. Þetta verður í tíunda skipti sem ráðstefnan er haldin og er yfir- skrift hennar að þessu sinni „Ungl- ingabókin – meira en bara brjóst og bólur?“ Þátttakendur í ráðstefnunni kafa í heim unglingabókmennta á Íslandi bæði fyrr og nú. Frummælendur eru Ármann Jakobsson, Anna Þor- björg Ingólfsdóttir, Ragnheiður Gestsdóttir, Kolbrún Björnsdóttir og Kjartan Björnsson. Dagskrár- stjórnandi ráðstefnunnar er Aðal- steinn Ásberg Sigurðsson. Aðgang- ur er ókeypis og öllum opinn en áhugasamir geta kynnt sér dagskrá ráðstefnunnar betur á heimasíðu Gerðubergs: www.gerduberg.is - vþ Unglingabækur til umræðu á ráðstefnu AÐALSTEINN ÁSBERG SIGURÐSSON Dagskrárstjóri ráðstefnu um unglinga- bækur sem fer fram í Gerðubergi í dag. TÓNLIST Ingibjörg, Einar og Katie á æfingu í vikunni. MYND/FRÉTTABLAÐIÐ/ BÓKMENNTIR Ljóðskáld liggja í þýðing- um - Eiríkur Örn tilnefndur BÓKMENNTIR Sigurður Pálsson líka fyrir frábæra þýðingu á sálfræðitrylli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.