Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 86
58 5. apríl 2008 LAUGARDAGUR
„Ég er ekki búinn að fá það staðfest en já, ég hef
mikinn áhuga á að fara þessa ferð,“ segir Grétar Mar
Jónsson alþingismaður.
Enn er ekki búið að ganga frá hundrað manna
þátttakendalista þeirra sem hyggjast fara í píla-
grímsför á bítlaslóðir í Liverpool um mánaðamótin
maí-júní. Jakob Frímannsson formaður FTT segir að
þeir sem séu félagar njóti forgangs og séu öruggir
með. Aðrir sem sótt hafi um verði enn um sinn að
bíða milli vonar og ótta. Aðspurður um hvernig
hlutfallið væri, hversu margir félagsmenn hafi skráð
sig til fararinnar svaraði Jakob og vitnaði í fleyg
ummæli ónefnds rótara: „Það er svona 60/50!“
Sagðist ekki geta gefið frekari upplýsingar fyrr en
búið væri að ganga frá umsóknum og fyrir lægi
staðfestur listi.
Einn þeirra fyrstu sem sóttu um að fá að fara með,
þó ekki sé félagi í FTT, er bítlageggjarinn og
alþingismaðurinn Grétar Mar: „Ef Guð lofar fer ég.
Hljómar, mín hljómsveit, er að spila í Cavern
klúbbnum. Ég er að fara að hlusta á þá frekar en
Paul McCartney þó hann sé góðra gjalda verður.
Þarna verða vinur minn Rúnar Júlíusson og Sand-
gerðingurinn Erlingur Björnsson. Ekki skemmir
fyrir að uppáhalds fótboltafélag mitt er Liverpool.“
Grétar segist hafa orðið bítlageggjari strax við tíu
ára aldur. „Og fékk að safna hári yfir eyrun og stæla
goðin. Það var erfitt því þá var maður sendur til
rakara og ekkert nema herraklipping í boði.“ John
Lennon er uppáhalds Bítill Grétars og hann á flestar
plötur Bítlanna. „Erfitt að gera upp á milli laga.
Frábær flest allt frá She loves you yeah, yeah, yeah.“
Fyrir utan stjórnarmenn í FTT; Aðalstein Ásberg,
Sigurð Flosason, Fabulu, Samúel Samúelsson eru
fjölmargar stjörnur sem hyggjast fara:
Karl Hermannsson, fyrsti söngvari Hljóma, Óttar
Felix Hauksson og Þorsteinn Eggertsson svo aðeins
fáeinar kempur frá bítlatímanum séu nefndar. Að
auki eru félagar á borð við Hrafn Gunnlaugsson, Jón
Ólafsson, Sverri Stormsker og Grím Atlason skráðir
til leiks sem og Bjartmar Guðlaugsson, Þorgeir
Ástvaldsson, Tryggvi Hubner og Vilhjálmur Guð-
jónsson. Fjölmiðlamenn
verða og með í för,
þannig verður Elsa María
í Kastljósinu frá RÚV og
Egill Eðvarðsson hyggst gera
kvikmynd um förina miklu. Þá
hefur Fréttablaðið heimildir fyrir því að
viðskiptajöfrarnir Sindri Sindrason, Jafet Ólafsson,
Bolli Kristinsson og Tryggvi Jónsson hafi allir
verið með fyrri skipunum til að sækja um.
jakob@frettabladid.is
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT 2. hálfgras 6. í röð 8. traust 9.
næra 11. 950 12. þúsundasti hluti 14.
hanga 16. tónlistarmaður 17. arr 18.
stansa 20. tveir eins 21. ferðast.
LÓÐRÉTT 1. íþróttafélag 3. tveir eins
4. pinkulítið 5. rými 7. skái 10. einkar
13. sníkjudýr 15. flatormur 16. náinn
19. ólæti.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. stör, 6. rs, 8. trú, 9. ala,
11. lm, 12. millí, 14. slúta, 16. kk, 17.
sig, 18. æja, 20. ðð, 21. rata.
LÓÐRÉTT: 1. fram, 3. tt, 4. örlítið,
5. rúm, 7. sliskja, 10. all, 13. lús, 15.
agða, 16. kær, 19. at.
Ásdís Rán Gunnarsdóttir
Aldur: 28 ára.
Starf: Fyrirsæta og framkvæmda-
stjóri.
Fjölskylda: Gift Garðari Gunn-
laugsson fótboltamanni. Þrjú börn.
Foreldrar: Gunnar Vignisson,
Egilsstöðum. Eygló Gunnþórsdóttir,
Fáskrúðsfirði.
Búseta: Svíþjóð.
Stjörnumerki: Ljón.
Ásdís Rán vann sér þátttökurétt í
áströlskum raunveruleikaþætti í vikunni
með sigri í netkosningu.
Eurobandið og Páll Óskar munu
stíga á svið í Eurovision-veislu í
London 25. apríl. Að sögn Páls Ósk-
ars er fyrirmynd kvöldsins íslensku
Eurovision-partíin sem hann hefur
haldið á Nasa. „Barry Viniker, rit-
stjóri esctoday.com, sendi mér e-
mail, þar sem hann hafði sagðist
hafa séð eitthvert myndskeið úr síð-
asta Eurovision-partíi sem ég hélt á
Nasa á Youtube. Hann hugsaði með
sér að ef ég gæti gert þetta á Íslandi
hlyti að vera hægt að gera þetta úti
líka,“ útskýrir Páll Óskar, sem segir
Eurovision-aðdáendur í Bretlandi
hreinlega hafa verið svelta hvað
svona viðburði varðar. Hann segir
þar fyrir utan gríðarlega mikilvægt
fyrir Íslendinga að kynna bæði sig
og lagið fyrir utan landsteinana. „Ég
veit að Charlotte Perelli, sem vann
sænsku keppnina, er að strauja
Austur-Evrópu, sem er það sem við
myndum gera ef fjármagnið væri
fyrir hendi,“ segir Páll Óskar. Euro-
bandið verður þó í Kaupmannahöfn
24. apríl, og er Úkraína einnig á dag-
skrá, að sögn Páls Óskars.
Enn sem komið er hafa Euro-
bandið, Páll Óskar og Ani Lorak frá
Úkraínu staðfest komu sína til
London. Eurobandið mun að sjálf-
sögðu flytja This Is My Life, en Páll
Óskar mun hins vegar syngja Eur-
ovision-lag Íslands frá árinu 1997,
Minn hinsti dans, auk hins vinsæla
Allt fyrir ástina. Því hefur verið
snarað á ensku og heitir á því máli I
Did It All For Love. Páll Óskar
kveðst hafa hug á því að taka plöt-
una Allt fyrir ástina upp á ensku,
og leita út fyrir landsteinana í kynn-
ingu á henni ef áhugi sé fyrir hendi.
Flutninginn á Minn hinsti dans
segir hann koma til með að ein-
kennast af nostalgíu, þó að leður-
dressið eftirminnilega verði ekki
með í för. „Nei, ég er kominn með
annan búning sem er helmingi
meira glamúrús,“ segir Páll Óskar
og hlær við. „Tímarnir breytast og
mennirnir með.“
- sun
Ísland í risa Eurovision-partí
KYNNING Í LONDON Eurobandið mun
flytja This Is My Life á viðburðinum í
London í lok mánaðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL R.
„Ég held að það sé algerlega fyr-
irliggjandi að ég er látinn gjalda
míns orðspors. Svo var dómarinn
alltaf hrjótandi,“ segir Ásgeir
Davíðsson betur þekktur sem
Geiri á Goldfinger.
Héraðsdómur sýknaði Vikuna,
Elínu Arnar ritstjóra og Björk
Eiðsdóttur blaðamann af skaða-
bótakröfu Geira en hann höfðaði
mál vegna þess sem hann taldi
ærumeiðandi ummæli. Krafðist
Geiri fimm milljóna í skaðabæt-
ur en að sögn hans hefur þetta
mál þegar kostað hann eina og
hálfa milljón. Geiri telur furðu-
legt að hann skuli í dómnum
teiknaður upp sem fífl sem taki
allt til sín þegar litið er til setn-
inga í Vikunni, í viðtali við Lovísu
Sigmundsdóttur, sem féllu um
sig. Dæmi: Geiri hefur alltaf gert
mikið útá vændi og þá inni á stöð-
unum.“ Og: „Það var allur gangur
á því hvort kúnnarnir borga
Geira sjálfum fyrir þjónustuna
eða stelpunum beint...“ Og þannig
má áfram telja. Geiri segir þetta
hina mestu þvælu og telur fyrir-
liggjandi að fallið hafa dómar í
meiðyrðamálum þar sem um er
að tefla setningar sem hvergi
jaðri við að vera eins meiðandi.
Sú er skoðun Vilhjáms H. Vil-
hjálssonar lögmanns Geira sem
hvatti skjólstæðing sinn til að
áfrýja.
Málið tók sérkennilegan snún-
ing í miðju réttarhaldi en þá var
Lovísa leyst frá málinu á þeim
forsendum að ekki hafi verið rétt
eftir henni haft í Vikunni. Geiri
telur að þá hafi einhvern veginn
enginn verið til að dæma og hann
situr uppi með óþverraleg
ummæli um sig sem standi.
„Það er verið að flá mig lifandi.
Mestar áhyggjur hef ég af því að
nú sé komið algert veiðileyfi á
mig. Eitthvað það alerfiðasta sem
ég hef þurft að eiga við í gegnum
árin er þetta að menn hafa verið
að koma til mín í gegnum árin og
sagt: Ef þú gerir ekki þetta og
ekki hitt þá fer ég bara í blöðin.
Sem betur fer hafa blaðamenn
vísað þessu frá sem hverju öðru
bulli. Þar til nú. En nú er staðan
sú að menn virðast hafa leyfi til
að ljúga upp á mig hverju sem er
og komast upp með það,“ segir
Geiri.
- jbg
Geiri á Goldfinger áfrýjar meiðyrðamáli
GEIRI Á GOLDFINGER Það er verið að
flá mig lifandi og nú er komið veiðileyfi
á mig.
GRÉTAR MAR: GERÐIST BÍTLAGEGGJARI STRAX TÍU ÁRA
Alþingismaður í bítlareisu
GRÉTAR MAR JÓNSSON Grétar vill helst ekki missa af því þegar
hans hljómsveit – Hljómar – stíga á stokk í Cavern.
VIÐSKIPTAJÖFRAR VILJA MEÐ Blaðið hefur
heimildir fyrir því að þeir Jafet Ólafsson,
Sindri Sindrason, Bolli Kristinsson og
Tryggvi Jónsson séu ofarlega á biðlista.
Bubbi Morthens heldur áfram að
tjá sig í gegnum aðdáendasíðu sína
Bubbi.is. Nýjasta útspil
hans er textar við tvö lög
af væntanlegri plötu sem
kemur út í sumar. Ann-
ars vegar er um að ræða
titillagið Fjórir naglar og
hins vegar Til paradísar
fást öngvir miðar. Þrátt
fyrir að textarnir
lýsi báðir sárs-
auka og myrkri
virðast þeir hafa
hitt í mark hjá aðdáendum Bubba,
sem sjá nú loksins rofa til í bið sinni
eftir nýju efni frá kónginum.
Birgitta Birgisdóttir leikkona og
Örvar Smárason eiga von á sínu
fyrsta barni. Þetta kemur fram í nýj-
asta hefti Séð og heyrt.
Birgitta og Örvar gengu í
það heilaga í Súðavík-
urkirkju síðasta sumar
með mikilli viðhöfn
og hafði Birgitta á
orði að þar hefði
draumur hennar
ræst. Varla er þó
eftirvæntingin
minni á heimili
skötuhjúanna þegar von er á nýjum
erfingja.
Eins og Fréttablaðið greindi frá í vik-
unni er Baltasar Kormákur farinn
til Bandaríkjanna en hann er að fara
að leikstýra kvikmyndinni Run for
Her Life með Dermot Mulroney í
aðalhlutverki. Kvikmyndatökumað-
urinn Óttar Guðnason hefur verið
fenginn til að stjórna tökunum en
ekki er langt síðan annarri stórmynd
hans, Stopping Power, var slegið
á frest. Baltasar hyggst augljóslega
ekki lenda í neinum tungumála-
örðugleikum því samkvæmt vefsíðu
Ásgríms Sverrisson-
ar hefur Elísabet
Ronaldsdóttir
verið fengin til að
klippa mynd-
ina. - fb/fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Íslandi.
2 Íslenskir.
3 Bakka við Húsavík.