Fréttablaðið - 05.04.2008, Side 34
[ ]
Mæðgurnar Elín Guðmunds-
dóttir og Hjördís Þorfinnsdóttir
tóku nýlega höndum saman
og opnuðu vintage-kjólabúð á
Selfossi.
Elín Guðmundsdóttir og móðir
hennar, Hjördís Þorfinnsdóttir,
hafa lengi haft áhuga á notuðum
fötum.
„Áhuginn kviknaði þannig að ég
og Magnea systir mín fengum
nokkra gamla kjóla frá frænkum
okkar sem við héldum
mikið upp á. Við systurn-
ar göngum talsvert í not-
uðum fötum en fyrir mitt
leyti eru það aðallega fínir
kjólar sem heilla,“ segir
Elín Guðmundsdóttir,
sem ásamt búðar-
rekstrinum er nemi í
náttúru- og umhverf-
isfræði við Landbún-
aðarháskóla Íslands
á Hvanneyri.
Þegar hún var í
miðri prófatörn síð-
astliðið haust fóru
hún og mamma
hennar, Hjördís Þor-
finnsdóttir, á flug með
þá hugmynd að opna
kjólabúð.
„Við byrjuðum fyrst
með nokkra kjóla á slá
heima hjá mér. Þá voru það
aðallega vinir og kunn-
ingjar sem kíktu við.
Um jólin fórum við
síðan út til Bandaríkj-
anna og komumst í
samband við frábær-
an heildsala sem er
með kjóla og fylgi-
hluti frá 1930 og upp
úr. Við keyptum
vörur af honum og
vorum þá komnar
með það mikið að
við sáum ástæðu til
að stækka við okkur.
Mæðgurnar opnuðu
svo búð í gömlu húsi að
Austurvegi 33 um miðjan
janúar. Hún ber nafnið Hosiló sem
þýðir kompa eða kytra.
„Hugmyndin er að hafa verslun-
ina kósí og heimilislega en nafnið er
í raun komið frá langömmu minni
og langafa í móðurætt. Þau áttu bæ
í Biskupstungum og kölluðu eitt
herbergið hosiló.“
Búðin er opin á föstudögum frá
tvö til sjö og á laugardögum frá ell-
efu til tvö en afgreiðslutíminn
verður líklega lengdur í sumar.
Aðaláherslan er lögð á kjóla en einn-
ig er boðið upp á notuð veski, belti
og aðra fylgihluti.
„Við vorum að taka upp stóra
sendingu og búðin er því full af
spennandi vörum. Við erum með
allt frá hversdagskjólum upp í síða
galakjóla“ segir Elín.
vera@frettabladid.is
Sparilegir kjólar í kytru
Grænn og glitrandin pallíettu-
kjóll. Verð 8.000 krónur.
Gulur fifties-kjóll. Verð 7.000
krónur.
Eldrautt er hressandi. Láttu það eftir þér að sveiflast um í
eldrauðum kjól við heimilisverkin og ímyndaðu þér að þú sért á
dansleik við hirðina og danskortið sé þéttskrifað.
Mæðgurnar Hjördís Þorfinnsdóttir og
Elín Guðmundsdóttir opnuðu búðina
Hosiló um miðjan janúar.
M
YN
D
/G
U
Ð
M
U
N
D
U
R
K
A
R
L
SI
G
U
R
D
Ó
R
SS
O
N
Tvö Líf þriggja ára.
Afmælishátíð í Tvö Líf
föstudag, laugardag
og sunnudag, 20%
afsláttur af öllum
vörum. Allir sem
versla fara í lukkupott
þar sem fjöldi
vinninga í boði.
Taktu helgina frá og
fagnaðu með okkur.
Opið alla virka daga frá 11-18
Laugardaga frá 11-16
Sunnudaga 13-17
www.tvolif.is
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Glæsileg
sparidress
Mikið úrval - gott verð
Suðurlandsbraut 50
(bláu húsunum við Fákafen)
www.gala.is • Sími 588 9925
Opið 11-18 • 11-16 lau.
Full búð af
flottum fötum
frá Pause Café
Str: 34-52
Full búð af
sumarvörum
www.sigurboginn.is