Fréttablaðið - 05.04.2008, Blaðsíða 22
5. apríl 2008 LAUGARDAGUR
H
ann er
ákaf-
lega
fylginn
sér, ef
hann tekur sér
eitthvað fyrir
hendur þá fram-
fylgir hann því
mjög vel. Hann er
maður orða sinna
og afskaplega
vinnusamur,“ segir
Aldís Erna Helga-
dóttir um eigin-
mann sinn, Sturlu
Jónsson, forsvars-
mann atvinnubíl-
stjóranna sem hafa
vakið athygli fyrir
mótmæli sín síðustu
daga. Bílstjórarnir
hafa þeytt horn sín
og teppt umferð til
að mótmæla
vökulögum og háu
eldsneytisverði.
Með þessu vilja
þeir hvetja ríkis-
stjórnina til að
grípa til aðgerða.
„Hann er hörku-
duglegur maður
sem virðist geta
hvað sem er. Það er
ekkert sem vefst
fyrir honum,“ segir
Aldís. „Þó að hann
virðist vera með
ansi harðan skráp
þá er hann líka
viðkvæmur inn við
beinið og mikil
tilfinningavera þótt
sumir haldi kannski
annað.“
Mótmæli atvinnu-
bílstjóranna eiga
sér forsögu því
fyrir þremur árum
reyndu atvinnubíl-
stjórar að efna til
mótmæla gegn
olíugjaldi og
kílómetragjaldi en
þá reyndist ekki
vera jafn mikil
samstaða meðal
bílstjóranna og nú
og því fjöruðu
mótmælin út eftir
skamman tíma. Á
þessum tíma var
Sturla forsvarsmað-
ur fyrir hópnum og
hitti meðal annars
Geir H. Haarde í
fjármálaráðuneyt-
inu og ræddi þessi
mál við hann.
Á fimmtudaginn
fyrir rúmri viku
hringdi félagi
Sturlu svo í hann og
kvartaði yfir
olíuverðinu. Sturla
hvatti hann til að
hætta röflinu og
gera frekar
eitthvað í því,
hringja í menn og
kanna samstöðuna.
Hann kvaðst sjálfur
skyldu hringja í
sína kunningja. Þeir
fóru svo báðir af
stað og innan
nokkurra tíma voru
hafin mótmæli
hundruða manna
sem síðan hafa
vakið athygli um
allt land. Mótmælin
hafa fengið meiri
stuðning en nokkur
hefði getað ímynd-
að sér.
Fyrir tilviljun
hefur Sturla lent í
því að vera í
forystu fyrir
hópnum og kannski
er það líka vegna þess að hann talaði fyrir hópinn
fyrir þremur árum.
Sturla hefur gríðarlega réttlætiskennd og orð
eins og framtaks-
semi, elja, vinnu-
semi og kraftur
virðast eiga vel við
hann. Sturla er
maður fram-
kvæmdanna, ef
hann ákveður
eitthvað kemur
hann því í verk og
það strax. Hann
þarf alltaf að hafa
eitthvað fyrir
stafni og það er
aldrei nein
lognmolla í
kringum hann, að
sögn Aldísar. „Eftir
honum er tekið
hvert sem hann
fer. Hann læðist
ekkert með
veggjum.“
Davíð Eyjólfsson
atvinnubílstjóri
hefur þekkt Sturlu
í nokkur ár. „Hann
er mjög skipulagð-
ur, þrælsnöggur og
vinnur mikið, er í
vinnunni meiri-
hluta sólarhrings-
ins. Þetta er nagli
enda þýðir ekkert
annað í þessum
jarðvinnubransa,“
segir hann.
„Þetta er frábær
náungi, nákvæmur
og með allt sitt á
hreinu. Hann
borgar alltaf allt á
réttum tíma og
spáir í alla hluti.
Hann lætur heyra í
sér, vill oft leiða
hópinn og hefur
sínar hugmyndir.
Hann þorir að stíga
fram frekar en
margur annar og
er óhræddur við að
segja skoðanir
sínar umbúða-
laust,“ segir Davíð.
Aldís tekur undir
þetta. „Hann er
hreinn og beinn og
segir meiningu
sína hreint út,“
segir hún.
Fyrir utan bíla-
og tækjaáhugann
hefur Sturla áhuga
á útiveru og alls
kyns ferðalögum
og fer mikið upp
um fjöll og
firnindi. Hann er
ekki flokkspólitísk-
ur en tekur afstöðu
með litla mannin-
um. Hann hefur
ekkert á móti því
að menn græði
peninga ef þeir
gera það án þess að
ganga á hlut
annarra eða græða
á öðrum. Sturla
hefur átt ýmis
áhugamál en
stærst er torfæran
sem hann stundaði
fyrir nokkrum
árum. „Hann var
mjög áberandi í
henni,“ segir Aldís.
Þegar spurt er
um galla segir hún
að fyrst komi upp í
hugann fljótfærni.
„Hann fer stundum
fram úr sér. Hann
er líka skapmikill
en þótt hann rífist
og skammist er
sanngirnin ekki
langt undan.“
Sturla er ekki
jafn mikið með
strákunum sínum
þremur, sjö, þrettán og sautján ára, og hann hefði
viljað en þeir eru góðir vinir og hann nýtur þess
að vera með þeim þegar hann getur.
MAÐUR VIKUNNAR
Aldrei nein lognmolla
kringum hann
STURLA JÓNSSON
ÆVIÁGRIP
Sturla Jónsson, eigandi Smágröfuleigunnar ehf. vélaleigu, fæddist
í Reykjavík 4. nóvember 1966. Foreldrar hans eru Ólafía Kristín
Kristófersdóttir húsmóðir og Jón Hannesson bílstjóri. Stjúpi Sturlu
er Sigurður Pétursson rafvirki. Sturla á sjö hálfsystkini og tvö
stjúpsystkini og er þeirra elstur. Sturla er alinn upp í Breiðholtinu.
Í æsku var hópurinn á heimilinu stór og mikil samkeppni.
Krakkarnir lærðu að drífa sig að matarborðinu þegar kallað var því
að sá sem kom seinastur fékk minnst. Margar fjölskyldur höfðu
ekki úr miklu að moða í Breiðholtinu 1970 til 1985. Fjölskylda
Sturlu var í þeim hópi.
Sturla var einn vetur í Langholtsskóla og gekk svo í Fellaskóla en
lauk ekki grunnskólaprófi. Til þess var hann of lítið fyrir bókina og
mikið fyrir vinnuna.
Sturla byrjaði ungur að vinna, hefur alltaf unnið mikið og
starfað við margt. Hann var sendur ungur í sveit, fyrst að Brands-
stöðum í Blöndudal, síðan í Munaðarnes og svo á Skarðsströnd.
Eftir það starfaði hann við margt, var til að mynda kominn í vinnu
í Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi sextán ára gamall, var til sjós,
vann á járnsmíðaverkstæði og starfaði sem aðstoðarmaður raf-
virkja og bifvélavirki. Hann hefur unnið á gröfum og síðustu árin
hefur hann rekið eigið fyrirtæki með stóra beltagröfu og vörubíl.
Sturla er kvæntur Aldísi Ernu Helgadóttur hundasnyrti og eiga
þau þrjá stráka, Helga Júlíus Sævarsson Verslunarskólanema og
grunnskólanemana Kristófer og Elvar Þór Sturlusyni.
Sturla hefur alltaf haft áhuga á vélum og farartækjum. Á fullorð-
insárum hefur hann verið í akstursíþróttum, sérstaklega á árunum
1989-1991 og svo með hléum fram til 2001. Sturla var keppandi
í fremstu röð. Á þessum tíma var hann byrjaður að reka fyrirtæki
sitt og var í vinnunni fram til sex á daginn og svo í torfærunni
fram til klukkan eitt eða tvö á nóttunni. Tímaleysið varð til þess að
hann hætti.
Síðustu tíu árin hefur Sturla sest við kaffiborðið á morgnana um
helgar með félögum sínum á járnsmíðaverkstæðinu Factoria. Þar
ræða menn samfélagsmál, fjárfestingar, stjórnmál og lífið eins og
það leggur sig.
VANN SÉR TIL FRÆGÐAR
Sturla hefur verið mikið í fjölmiðlum upp á síðkastið sem for-
svarsmaður atvinnubílstjóra. Bílstjórarnir hafa þeytt horn og teppt
umferð til að mótmæla vökulögum og háu eldsneytisverði.
HVAÐ SEGIR HANN?
„Við viljum afnema vökulögin fyrir bílstjóra. Þau eru möl-
brotin í allar áttir. Við verðum að átta okkur á því að við
búum á eyju. Vegagerðin skaffar hvergi klósett eða sturtu við
þjóðvegina og ætlast til að menn geri þarfir sínar í móunum.
Það virkar ekki þannig.“
VISSIR ÞÚ ...
Að það kostar 160 þúsund krónur tæpar að fylla tankinn á vörubíl
Sturlu þegar hann er tómur.
Miðlun
Skeifa
n
söluskr
ifstofur16
www.r
emax.
is
Einn ö
flugas
ti faste
ignave
fur lan
dsins
Allar
fastei
gnasö
lur eru
sjálfst
ætt re
knar o
g í ein
kaeign
Fasteig
nablað
159. T
ölublað
- 6. ár
gangur
- 30. m
ars 200
8
bls.
12
ER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR?
MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINSS. 512 5441 hrannar@365.is S. 512 5426 vip@365.is
HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sí i 5
Ráðningarþjónusta
Leitar þú að starfsmanni?
Hulda
Helgadóttir SigurborgÞórarinsdóttir KristínHallgrimsdóttir JónRagnarsson
HH Ráðgjöf er alhliða ráðningarþjónusta og við státum okkur af því að veita framúrskarandi þjónustu hvort
sem um ræðir ráðningu ófaglærðra, faglærð a eða sérfræðinga.
Ráðgjafar okkar veita fúslega frekari upplýsingar í síma
561 5900 eða sendu okkur tölvupóst: hhr@hhr.is
Vinnusparnaður Við vinnum úr umsóknum, leitum í gagnagrunni okkar,
tökum forviðtöl og öflum umsagna. Markviss leit Nýr hugbúnaður gerir leit afar markvissa og tryggir að við
finnum hæfasta einstaklinginn. Þriggja mánaða ábyrgð Ef starfsmaður hættir störfum innan þriggja mánaða er
ráðning í hans stað án endurgjalds. Bregðumst fljótt viðOkkar aðalsmerki eru skjót viðbrögð og lögð er áhersla á
að flýta ráðningarferlinu eins og unnt er.
Fjöldi hæfra umsækjendaFjöldi umsækjenda er á skrá í almennum gagnagrunni
okkar sem tryggir að við finnum rétta einstaklinginn
fyrir starfið.
Reynsla og þekkingHjá HH Ráðgjöf starfa sérfræðingar á sviði starfsmanna-
mála sem búa m.a. yfir mikilli reynslu af ráðningum og
hagnýtri menntun.
Sanngjarnt verðBjóðum mjög hagstætt og samkeppnishæft verð á þjónustu okkar. Gerðu verðsamanburð!
HH Ráðgjöf hefur vönduð vinnubrögð og fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum metnað okkar í að veita
afburðarþjónustu og finna réttan einstakling fyrir þá aðila sem leita okkar aðstoðar við ráðningu starfsfólks.
Kostir þess að nýta sér þjónustu HH Ráðgjafar eru m.a.:
HORNAMENNIRNIR BALDVIN
ÞORSTEINSSON ÚR VAL OG
FRAMSTÚLKAN MARTHE SÖRDAL
ERU KYNÞOKKAFYLLSTU
HANDBOLTAMENN LANDSINS
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM ÍÞRÓTTIR ]
Sport
apríl 2008
FORDÓMAR LEIDDU
TIL HANDTÖKU
BRASSARNIR Í
ÞRÓTTI SEGJA FRÁ
HANDTÖKU SINNI Á
VEGAMÓTUM
KYNÞOKKAFULL
FALINN RISI Í HVERAGERÐI
HINN 17 ÁRA KÖRFUBOLTAMAÐUR
RAGNAR NATHANAELSSON ER 2,16 CM Á HÆÐ
ÆTLAR AÐ VERÐA BETRI
EN LOGI GEIRS
ARON PÁLMARS-
SON ER NÝJASTA
STJARNAN SEM
KEMUR FRÁ FH
Hassnýlendan fyrir bí?
Í rúmlega þrjátíu ár hefur staðið styrr um friríkið
Kristjaníu í Kaupmannahöfn.
Aprílgöbb og mótmæli
Sigmar Guðmundsson myndi treysta ömmu
sinni til að skandalísera ekki sem forseti og
Nanna Rögnvaldar hrífst af fl ottum fótbolta-
mönnum.
Í Sportinu á sunnudag:
Greint frá því hvaða handboltamenn þykja þeir
kynþokkafyllstu á Íslandi; einnig er opinskátt
viðtal við Brasilíumennina hjá Þrótti um hand-
tökuna á Vegamótum og lífi ð á Íslandi. Sautján
ára risi í körfuboltanum er einnig í viðtali, sem
og efnilegasti handboltamaður landsins.
Sport