Fréttablaðið - 05.04.2008, Síða 31
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Söngneminn Þorvaldur Þorvaldsson var á
ferðalagi austur á fjörðum í fyrrasumar er hann
fann eigulega bifreið. Hann kom akandi á Skoda
Oktavia í bæinn og sá reynist honum vel.
„Ég hafði verið á útkikki eftir bíl þegar ég rakst á
þennan Skóda hjá útibúi Heklu á Reyðarfirði og ákvað
að slengja mér á hann. Hann var keyrður 44 þúsund
kílómetra og það telst ekki mikið,“ segir Þorvaldur og
sýnir stoltur sinn dökkgráa Skóda, módel 2005. Honum
er varfærnislega bent á að fyrr á árum hafi verið talið
að Skódi væri bara fyrir gamla karla með hatta. Nú
hafi það augljóslega breyst. „Já, þetta eru breyttir
tímar og breyttir bílar,“ segir hann og er ekkert nema
öryggið. „Þessi bíll hafði verið í rekstrarleigu frá því
hann var skráður þannig að ég er fyrsti eigandi hans
fyrir utan umboðið. Sem er gæðastimpill því það sá
um viðhaldið og hélt honum í toppstandi. Svo er hann
eyðslugrannur og það er mikill kostur í dýrtíðinni.“
Þorvaldur kveðst aldrei hafa verið með sérstakt
pjatt í sambandi við bíla heldur bara viljað hafa þá í
lagi. „Skódi er sterkur bíll sem bilar lítið. Aðalatriðið
er að hann endist og ég komist á honum frá A til B,“
segir hann.
Síðasta setning er vel skiljanleg þegar haft er í
huga að Þorvaldur hefur í mörg horn að líta þessa
dagana. Hann er að ljúka námi við söngdeild Listahá-
skóla Íslands, skrifa BA-ritgerð og æfa fyrir lokatón-
leika auk þess að syngja eitt aðalhlutverkið í óper-
unni Così fan tutte eftir W. A. Mozart sem frumsýnd
verður í Íslensku óperunni annað kvöld. Hann hefur
áður stigið á svið óperunnar, meðal annars í sýningu
Óperustúdíósins í fyrra er hann kveðst hafa leikið
gamlan skarf. „Ég er með þannig raddtýpu að ég
lendi yfirleitt í því að leika einhverja ógeðfellda
náunga,“ segir hann hlæjandi. „Hlutverkið í Così fan
tutte er þar engin undantekning. Ég veld miklum
vandræðum í þeirri sögu og hef afskaplega gaman af
því. gun@frettabladid.is
Góður í dýrtíðinni
Þorvaldur sem gegnir
gælunafninu Þorri segir
Skódann hafa reynst sér
afskaplega vel.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
HÁTÍSKA Í HOSILÓ
Mæðgurnar Elín Guð-
mundsdóttir og Hjördís
Þorfinnsdóttir opnuðu
nýlega kjólabúð á
Selfossi þar sem
þær selja notaða en
glæsilega kjóla.
TÍSKA 4
Í HÓPUM TIL FJALLA
Nú gefst hópum og fyrir-
tækjum kostur á
jeppaferðum í nýjum
Land Rover-jepp-
um sem allir eru
útbúnir til að geta
tekist á við erfiðar
aðstæður.