Fréttablaðið - 05.04.2008, Page 60
32 5. apríl 2008 LAUGARDAGUR
M
iklar umræður
hafa staðið að
undanförnu
um málefni
miðborgarinn-
ar. Hafa borg-
arbúar, embættismenn og kjörnir
fulltrúar sammælst um að þeim
hugnist ekki sú staða sem upp er
komin þar sem auð hús grotna
niður með tilheyrandi hættu og
lýtum.
Leitað var til þriggja fyrrver-
andi embættismanna sem lengi
unnu að skipulags- og bygginga-
málum í Reykjavík og þekkja því
vel til aðstæðna í miðborginni.
Þetta eru Þorvaldur S. Þorvalds-
son, fyrrverandi skipulagsstjóri,
Stefán Hermannsson, fyrrver-
andi borgarverkfræðingur, og
Salvör Jónsdóttir, fyrrverandi
sviðstjóri skipulags- og bygg-
ingasviðs Reykjavíkurborgar.
Þau eru öll sammála um að
núverandi ástand sé óviðunandi
og fagna breyttum áherslum og
auknum áhuga á skipulagsmál-
um. Vilja þau ekki kenna núver-
andi skipulagi um hvernig komið
er heldur frekar vanvirðingu
fyrir gildandi skipulagi. Þeim
finnst vandinn ekki auðleystur
en sjá þó leiðir til úrbóta, eins og
eflingu skipulagssjóðs, uppkaup
húsa og aukna virðingu fyrir gild-
andi skipulagi.
Virða þarf gildandi skipulag
Umræður um ástand húsa í miðborg Reykjavíkur hafa verið miklar og svo virðist sem borgarbúar hafi fengið nóg. Ásakanir um
að eigendur hirði ekki um hús sín til að þrýsta á að leyfi fáist til niðurrifs hafa verið háværar. Á móti hafa svörin oft verið að upp
á vanti í skipulagi. Olav Veigar Davíðsson blaðamaður leitaði álits þriggja þrautreyndra fyrrverandi embættismanna borgarinnar.
„Ég get ekki fallist á að það sé
skipulaginu að kenna hvernig
komið er,“ segir Salvör Jónsdóttir,
fyrrverandi sviðsstjóri skipulags-
og byggingarsviðs Reykjavíkur-
borgar. „Kannski liggur rót vand-
ans í hvernig við umgöngumst
umhverfi okkar, hús eða önnur
menningarverðmæti af virðingar-
leysi.“
Segir hún miðbæinn hafa verið
í niðurníðslu eftir byggingu
Kringlunnar og svo Smáralindar.
Hún telur því að borgaryfirvöld
hafi brugðist rétt við með mið-
borgaráætluninni en kannski hafi
þau ekki verið nógu hörð við að
fylgja henni eftir. „Þar kemur til
okkar kúltúr. Við berum ekki virð-
ingu fyrir umhverfinu og ekki
heldur fyrir því sem sett er í
skipulag.“
Hún telur að til séu dæmi um að
menn kaupi eignir sem þeir veð-
setji fyrir miklu meira en þær eru
virði í því augnamiði að byggja
meira en leyfilegt er. Því sé aukin
umræða um skipulagshagfræði af
hinu góða. „Ég hef lengi haldið
fram að það sé ógæfa íslensks
skipulags að við höfum haldið
hagræna þættinum alveg frá. Að
húsin eigi að vera hugguleg en
umræðum um kostnað sé haldið
utan við.“
„Auðvitað þarf að setjast niður
og átta sig á hvert vandamálið er
og hvernig má leysa það. Þá þarf
að velta við steinum eins og hag-
rænu þáttunum og væntingum. Ef
fjárfestar hafa verið að kaupa
þarna og gera sér meiri vænting-
ar en skipulagið gerir tilefni til,
eins og ég er hrædd um að sé ansi
víða, þá er það þeirra áhætta. Þeir
eru í viðskiptum og taka áhættu
en ég sem borgari ætla ekki að
axla þá ábyrgð fyrir þá.“ Segir
hún að skipulagi þurfi að breyta
með málefnalegum rökum. „Því
miður held ég að oft hafi verið
látið undan þrýstingi og menn
þurfa að átta sig á að það er ekki
lengur í boði.“
Salvör Jónsdóttir, fyrrverandi sviðsstjóri skipulags- og byggingasviðs Reykjavíkur:
Ekki skipulagið heldur virðingarleysi
„Það hefur verið vaxandi stemm-
ing fyrir því að varðveita þessi
hús og ég held að það sé í lang-
flestum tilfellum hið besta mál,“
segir Stefán Hermannsson, fyrr-
verandi borgarverkfræðingur.
Stefán segir umræðu um hús í
miðborginni hafa aukist þótt hún
hafi verið viðvarandi nokkuð
lengi. „Margir halda því fram að í
flestum tilfellum séu menn að
kaupa þessi hús til niðurrifs og
láti þau drabbast niður. En ég veit
ekki hvort það er alltaf rétt.“
Telur hann ljóst að orsökin sé að
verulegu leyti fjárhagslegs eðlis.
„Það er mjög dýrt að gera upp
hús og nýtingarmöguleikarnir
eru oft ekki mjög miklir.“
„Ég vil nú ekki ganga svo langt
að friða öll húsin í miðbænum.
Mér finnst það nú allt of langt
gengið en ef við lítum til borga í
nágrannalöndunum er ljóst að
hús í miðborgum þeirra hafa ekki
alltaf staðið þar.“ Nefnir hann
miðborgir Kaupmannahafnar og
Stokkhólms sem dæmi. „Ein-
hvern tímann hafa staðið þarna
minni hús. Mér finnst svolítið
langt gengið að friða hús sem eru
með mjög lítilli nýtingu sem
standa á allra bestu og dýrustu
lóðunum. Það er orðið svolítið
vafaatriði.“
Hann telur borgaryfirvöld vera
að reyna að taka sig á. „Ég held að
stemning sé fyrir að gera eitt-
hvað í málunum núna. En hvernig
er mér ekki ljóst. Ekki kaupa þeir
öll þessi vandræðahús.“ Um hugs-
anlegar leiðir nefnir Stefán að
skipulagssjóður hafi haft það
verkefni að hjálpa til við að þróa
og varðveita byggðarmynstur í
miðborginni, en starfsemi sjóðs-
ins hafi verið breytt. „Kannski
fannst mönnum að hugsunin þar
hefði verið að kaupa meira til nið-
urrifs eða til að selja aftur frekar
en að kaupa til að stuðla að endur-
uppbyggingu. Það hefði vel mátt
breyta áherslum í þeim sjóði og
nýta hann til að borgin gæti stutt
við þessa þróun með einhverjum
hætti,“ segir Stefán, sem telur þá
leið vel reynandi.
Stefán Hermannsson, fyrrverandi borgarverkfræðingur:
Hugsanlega má
nýta skipulagssjóð
„Mér finnst skelfilegt að
miðborgin skuli vera í svona
ástandi,“ segir Þorvaldur S.
Þorvaldsson, fyrrverandi
skipulagsstjóri Reykjavíkur-
borgar. Hann segir ekki rétt
að skipulag vanti fyrir
miðborgina. „Það er til skipu-
lag, deiliskipulag og þróunar-
áætlun um miðborgina þar
sem tekið er á öllum þeim
þáttum sem menn eru að
ræða um í dag.“
Segir Þorvaldur miðborg-
aráætlunina vera sérstakt
yfirlit yfir hvernig menn
vildu sjá Laugaveginn
þróast. „En vandamálið er að
aðilar hafa keypt upp hús og
reiti og vilja byggja allt annað en skipulag-
ið gerir ráð fyrir. Svo verða menn reiðir og
segja að það sé ekki til skipulag.“ Þá
hefjist vinna verktakanna við að fá
skipulaginu breytt og slíkt ferli taki um
eitt og hálft ár. Segir hann aðalvandann
vera að of lengi hafi viðgengist að menn
hafi komist upp með að horfa framhjá
gildandi skipulagi.
Um vanda miðborgarinnar segir
Þorvaldur enn frekar: „Ef stýra á upp-
byggingu í miðborginni á
borgin að eignast þá hluti
sem hún ætlar að stýra.“ Á
hann þar við að borgin kaupi
þau hús sem um ræðir. „Það
er erfitt að fara í uppkaup
þegar búið er að spenna
verðið upp. En maður stýrir
ekki uppbyggingu og
skipulagi í miðborg nema
hafa völd á eignum.“ Borgin
þurfi að kaupa hús af þeim
sem felli sig ekki að gildandi
skipulagi og byggi sam-
kvæmt því. Þorvaldur telur
þó ekki nauðsynlegt að
Reykjavíkurborg standi í
húsbyggingum. „Borgin
getur látið hanna það sem
hún vill láta byggja á reitunum og boðið
það þannig út.“
„Uppbygging á Reykjavík hlýtur alltaf
að vera á okkar eigin forsendum, með
bakgrunn í sögu Reykjavíkur; það er að við
erum á Íslandi og á 64. breiddargráðu.“
Telur Þorvaldur Reykjavíkurborg eiga
mikla sérstöðu og sérkenni sem okkur beri
að virða og vinna út frá. „Hún er allt önnur
en til dæmis austur-evrópskir bæir sem
undanfarið hafa verið í umræðunni.“
Þorvaldur S. Þorvaldsson, fyrrverandi skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar:
Komist upp með að horfa
framhjá gildandi skipulagi
Ingólfsstræti
Laugavegur
Klapparst
ígur
LækjargataBankastræ
ti
Vatnsstígur
Frakkastígur
Vitastígur
Barónsstígur
Austurstræti 22
Byggt 1801
Laugavegur 4-6
Byggt 1890-1920
Laugavegur 33
Byggt 1921
Laugavegur 74 Byggt 1902
Laugavegur 46
Byggt 1905
H
verfisgata
Þingholtsstræti 2-4
Hverfisgata
32-34
Byggt
1904- 1910
Lauga-
vegur 19
Byggt 1904
Hverfis-
gata 28
Byggt 1905
Laugavegur 21
Byggt 1916
N
Klapparstígur 30
Laugavegur 35
Byggt 1898
Byggt
1917
Því mið-
ur held
ég að það
hafi oft verið látið
undan þrýstingi og
menn þurfa að átta
sig á að það er ekki
lengur í boði.
Vandamál-
ið er að
aðilar hafa
keypt upp
hús og reiti
og vilja
byggja allt
annað en
skipulagið
gerir ráð
fyrir.
Ég held
að það
sé þessi
stemm-
ing fyrir að gera
eitthvað í málunum
núna.
HÚS Í NIÐURNÍSLU Í MIÐBORGINNI