Fréttablaðið - 05.04.2008, Side 64
36 5. apríl 2008 LAUGARDAGUR
SÁ MYRTI: Martin Luther King, fæddur í Atl-
anta í Georgíu árið 1929.
HVAR: Hótel Lorraine í Memphis í Tennessee.
Skotinn til bana á svölum hótelsins þar sem
hann var staddur með vinum sínum. King var
staddur þar vegna verkfalls sorphreinsunar-
manna í borginni.
HVENÆR: 4. apríl 1968.
MORÐINGINN: James Earl Ray, smáglæpa-
maður og innbrotsþjófur, játaði glæpinn en
dró játninguna til baka þremur dögum síðar.
Hann hélt fram sakleysi sínu alla tíð.
JARÐARFÖR: Ebenezer-baptistakirkjan en tvær
athafnir áttu sér stað – ein 1.300 manna þar
sem kirkjan tók ekki fleiri gesti í sæti, fyrir
nánustu vini og fjölskyldu, og önnur seinna
um daginn fyrir almenning. Milli athafna var
gengið í gegnum Atlanta með kistu Kings
frá kirkjunni að Morehouse þar sem síðari
athöfnin átti sér stað. Mikill fjöldi safnaðist
saman á leiðinni í þögn og einstaka staðar
mátti heyra fólk kyrja frelsissöngva.
ÖRLÖG MORÐINGJANS: Hlaut 99 ára fangelsisdóm, lést í fangelsi árið 1998 úr nýrnasjúkdómi.
King-fjölskyldan trúði því aldrei að Ray væri morðinginn.
Morð sem breyttu heiminum
Í gær voru fjörutíu ár liðin frá því að mannréttindafrömuðurinn Martin Luther King var myrtur og var hann heimsbyggðinni
allri mikill harmdauði. Júlía Margrét Alexandersdóttir rifjaði upp nokkur af frægustu morðum fyrr og síðar.
FJÖLSKYLDAN EFINS UM MORÐINGJANN Dæmdur
morðingi Martins Luthers King lést árið 1998 en
hann hélt fram sakleysi sínu alla tíð.
SÁ MYRTI: Abraham Lincoln, fæddur 1809 í
Hardin-sýslu í Kentucky.
HVAR: Í leikhúsinu Ford´s Theatre í Washing-
ton-borg þar sem hann fór að sjá leikritið Our
American Cousin ásamt eiginkonu sinni. Hann
dó daginn eftir af skotsárinu.
HVENÆR: 14. apríl 1865.
MORÐINGINN: Leikarinn John Wilkes Booth.
Morðið var hluti af áætlun um að steypa
ríkisstjórninni en hann, í félagi við aðra, var
andvígur sameiningu Norðurs og Suðurs.
JARÐARFÖR: Jarðarförin var hinn 19. apríl en
lík hans var flutt um 2.700 kílómetra leið, frá
Washington, í gegnum New York og alla leið til
Springfield í Illinois. Milljónir manna vottuðu
forsetanum virðingu sína á þeirri löngu leið.
ÖRLÖG MORÐINGJANS: Var myrtur 11 dögum
síðar af sambandssinnum.
SÁ MYRTI: John F. Kennedy, fæddur 1917 í Brook-
line í Massachusetts.
HVAR: Dallas í Texas. Kennedy var skotinn í
forsetabifreiðinni þar sem henni var ekið við
opinbert tækifæri eftir Dealey Plaza.
HVENÆR: 22. nóvember 1963.
MORÐINGINN: Lee Harvey Oswald, 24 ára.
Oswald vann á þessum tíma afleysingastarf á
bókasafni – Texas School Book Depository – en
úr þeirri byggingu er Kennedy talinn hafa verið
skotinn.
ÖRLÖG MORÐINGJANS: Oswald var myrtur
tveimur dögum eftir morð Johns F. Kennedy, þar
sem verið var að flytja hann í fangelsi. Enn þann
dag í dag eru smíðaðar kenningar um hver eigi
raunverulega sök á morði Kennedys.
JARÐARFÖR: Tveimur dögum eftir morðið var kista
Kennedys flutt til þinghússins í Washington þar
sem almenningi gafst kostur á að votta Kennedy
virðingu sína. Hundruð þúsunda manna flykktust til þinghússins. 25. nóvember fór jarðarförin
sjálf svo fram.
SÁ MYRTI: John Lennon, fæddur
9. október árið 1940 í Liverpool á
Englandi.
HVAR: Lennon og eiginkona hans,
Yoko Ono, voru að koma heim í íbúð
sína í Dakota-byggingunni í New
York. Lennon var skotinn á leið inn
eftir að hafa veitt morðingja sínum
eiginhandaráritun fyrr um kvöldið
– einnig fyrir utan Dakota-bygging-
una.
HVENÆR: 8. desember 1980.
MORÐINGINN: Mark David Chapman.
Chapman átti við geðveiki að stríða,
misnotaði eiturlyf og hætti í skóla.
Hann vann sem öryggisvörður um
tíma.
ÖRLÖG MORÐINGJANS: Chapman
fékk lífstíðardóm og er enn þann
dag í dag vistaður á réttargeðdeild í
New York. Hann hefur fjórum sinnum
sótt um reynslulausn og jafnoft verið
synjað.
JARÐARFÖR: Daginn eftir dauða
Lennons lét eiginkona hans þau orð
falla að engin jarðarför yrði hald-
in. Hinn 14. desember söfnuðust
hins vegar milljónir manna saman
á ýmsum stöðum í heiminum í tíu
mínútna þögn til heiðurs Lennon – og var það að ósk Yoko Ono. Stærsti hópurinn kom saman
í Central Park í New York.
SÁ MYRTI: Olof Palme, fæddur 30. janúar árið 1927
í Stokkhólmi í Svíþjóð.
HVAR: Palme var á leið heim úr kvikmyndahúsi í
Stokkhólmi ásamt eiginkonu sinni. Hann var án
lífvarða.
HVENÆR: 28. janúar 1986.
MORÐINGINN: Christer Pettersson, smáglæpa-
maður og eiturlyfjasjúklingur.
ÖRLÖG MORÐINGJANS: Pettersson var ekki hand-
tekinn fyrr en rúmum tveimur árum eftir morðið
og var sakfelldur. Nokkrum árum síðar var hann
sýknaður fyrir hæstarétti og þá meðal annars
vegna þess að morðvopnið hafði aldrei fundist.
Pettersson lést árið 2004 en árið 2007 kom fram í
dagsljósið bréf sem hann skrifaði til kærustu sinn-
ar árið 1986 þar sem hann játar á sig morðið.
SÚ MYRTA: Anna Lindh, fædd 19. júní 1957 í Stokkhólmi.
HVAR: Verslunarmiðstöð í Stokkhólmi. Lindh var í verslunarferð með vinkonu sinni að velja föt
fyrir kappræður.
HVENÆR: 11. september árið 2003.
MORÐINGINN: Mijailo Mijailovic, 25 ára gamall sænskur innflytjandi af serbneskum uppruna.
ÖRLÖG MORÐINGJANS: Mijailovic hlaut lífstíðardóm og situr hann nú í sænsku fangelsi. Hann
sagði að „raddir í höfði sér” hefðu stjórnað gerðum hans og hann hefði ekki ætlað að verða
Lindh að bana.
ÖRLAGARÍK VERSLUNARFERÐ Anna Lindh var að leita að fötum fyrir kappræður um upptöku evrunnar sem
gjaldmiðils í Svíþjóð.
MYRTUR Í LEIKHÚSI Abraham Lincoln var fyrsti
forseti Bandaríkjanna sem var myrtur.
ENGIN JARÐARFÖR Yoko Ono bað fólk um að biðja fyrir
Lennon, líkt og hann hefði beðið fyrir heimsbyggðinni, og vildi
enga opinbera jarðarför.
STUND SEM ALLIR MUNA Flestir sem aldur hafa
til muna hvar þeir voru staddir þegar tilkynnt var
um lát John F. Kennedy.
MORÐINGINN SÝKNAÐUR Ekki er langt síðan
bréf kom fram í dagsljósið þar sem Pettersson
játaði á sig morð Olof Palme.