Fréttablaðið - 05.04.2008, Page 66

Fréttablaðið - 05.04.2008, Page 66
38 5. apríl 2008 LAUGARDAGUR GÓÐ VIKA / SLÆM VIKA HELGARKROSSGÁTAN 99 k r. sm si ð Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef svarið er Jón: Þá sendir þú SMS-ið: JA LAUSN JON Þú gætir unnið nýjustu plötuna með Moby! Þú sendir SMS skeytið JA LAUSN LAUSNARORÐ á númerið 1900! Leystu krossgát una! Lausn krossgátunnar er birt að viku liðinni á vefnum, www.this.is/krossgatur Söngfuglinn, fyrirsætan og ný for- setafrú Frakklands, Carla Bruni- Sarkozy, sló rækilega í gegn hjá breskum tískuspekúlöntum þegar hún fór með eiginmanni sínum í opinbera heimsókn til Bretlands fyrir skömmu. Fatastíl hennar var lýst sem óaðfinnanlegum og í anda Jackie Kennedy og virðist sem Bruni hafi risið í vinsældum eftir umdeilt samband hennar við for- setann. Allur fatnaður sem Bruni klæddist í ferðinni var fenginn hjá tískuhúsinu Christian Dior sem fékk sína bestu auglýsingu síðari tíma í kjölfarið. Andstæðingar Sarkozys hafa gagnrýnt valið á Dior vegna tengsla forsetans við viðskiptajöfurinn Bernard Arn- ault sem á stóran hlut í Dior-hús- inu. Hvað sem því líður er ljóst að Carla Bruni-Sarkozy er orðin leið- andi í tískustraumum með sinni klassísku og afar frönsku blöndu af fallega sniðnum kápum, kjólum og flatbotna ballerínuskóm. - amb Forsetafrúin slær í gegn Góð vika fyrir... ... Hannes Hólmstein Gissurarson. Líklega hefði Hannes sloppið miklu betur ef rektor Háskólans hefði ákveðið að gera ekki neitt strax eftir að hann var dæmdur fyrir höfundarréttarbrot. En meðan rektor var að vandræð- ast með hvernig ætti að snúa sér í málinu birtust fréttir af háskólastúdent í USA sem var rekinn úr skóla fyrir að stela brandara frá Hugleiki, Kistan tók sig til og spurði fjölda háskólamanna sem flestir voru á því að rektor ætti að gera allt annað en ekki neitt og fréttaskýringar birtust sem leiddu í ljós að texti Hannesar var ekki alltaf Hannesar heldur annarra. En þrátt fyrir allt þetta heldur Hannes stöðu sinni sem gerir vikuna góða fyrir Hannes. Hann sagð- ist í Kastljósi ekki ætla að verja sig með því að segja að hann hafi ekki gert neitt annað en Laxness gerði né heldur rifja upp meiðyrðamál sem maður við Háskól- ann tapaði heldur rísa upp sem nýr og betri maður. ... Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur Hún flýgur nú um heiminn í einkaþotu sem utanríkis- ráðherra. Veður í völdum og lúxus. Af gömlum vana hneykslast gamlir kommar og enn eldri kratar en enginn nennir að pæla í því. Og það sem meira er: Þeir sem rísa upp henni til varnar gegn býlífisandskotum eru úr innsta kjarna íhaldsins. Þeirra á meðal meistari ljósvakans, Ingvi Hrafn, send- ir þeim fingurinn og segir þetta röfl. Þessi ferðamáti sé hinn eini rétti og vert fyrir ríkisstjórnina að íhua þann möguleika að kaupa sér þotu. ... Guðjón Guðmundsson Einhver snjallasti íþróttafréttamaður landsins er nú endanlega að slá í gegn sem skemmtikraftur. Hann hefur ávallt verið orðheppinn en aldrei sem nú og veltust fótboltaáhugamenn um af hlátri og elskuðu sinn mann þegar hann lýsti stuðnings- mönnum Fenerbahce, sem atti kappi við Chelsea sem: „fjörutíu þúsund Halim Al-ar” í bráðsmellinni lýsingu. Til að fyrirbyggja allan misskilning bætti hann því við að Tyrkir væru hið ágætasta fólk. En hver er svo sem að segja að svo sé ekki um Halim? Slæm vika fyrir... ... Orkuveituna Í góðri trú auglýstu þeir gömlu líkamsræktartækin sín til sölu: Kálfavél, fótakreppur, kvið- vélar, tvo ljósabekki og fleira. Blaða- snápur Vísis kannaði málið og fyrir ein- hvern undarlegan misskilning hafði hann það eftir starfsmanni OR á Akra- nesi að tækin hentuðu líklega betur fyrir landsbyggðarfólk en aðra. Þá breyttist hin ágæta bílskúrssala Orku- veitunnar í martröð. Landsbyggðar- blöðin sturluðust og Eiríkur Hjálm- arsson upplýsingafulltrúi fór í málið. Niðurstaða hans var að ummælin væru uppspuni blaðamanns. Og nú spyrja menn: Er sveitamaðurinn gramari í garð Orkuveit- unnar eða Vísis? Því enginn vill eiga reiði landsbyggð- arinnar yfir höfði sér. ... Ingibjörgu Þórðardóttur Fyrir þá sem ekki vita er Ingibjörg for- maður Félags fasteignasala. Og þeir eru í djúpum. Sér nú fyrir endann á gríðar- legri velmegun stéttarinnar sem hefur verið í veislu undanfarin ár. En nú er eins og almenningur sé hættur að hlusta á fasteignasala. Fasteigna- markaðurinn hefur snöggkólnað á fyrstu þremur mánuðum ársins og veltan 25 milljörðum minni það sem af er ári miðað við á sama tíma fyrir ári. ... Fóstbræður Öðru vísi mönn- um áður brá en meðal þeirra sem lágu eftir á klippiborðinu þegar Ólafur Jóhannesson, af öllum mönnum, var að ganga frá endanlegri útgáfu myndar sinnar Stóra planið, voru Jón Gnarr, Steinn Ármann, Sigurjón Kjartansson og Þorsteinn Guðmundsson. Fóstræð- urnir, með Radíusívafi, fuku fyrir framvinduna.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.