Fréttablaðið - 06.04.2008, Blaðsíða 40
ATVINNA
6. apríl 2008 SUNNUDAGUR2216
Íþróttafréttakona/maður óskast
Stöð 2 Sport óskar eftir íþróttafréttamanni í sumarafleysingar. í starfinu
felast m.a. lýsingar á kappleikjum og vinna við almennar íþróttafréttir.
Umsækjandi þarf
- að hafa góða þekkingu og brennandi áhuga á íþróttum
- að hafa gott vald á íslensku og örugga framkomu
- að vera fær í mannlegum samskiptum
- að geta unnið undir álagi
Reynsla af fréttamennsku er æskileg.
Sótt er um á vef 365 miðla - www.365midlar.is/Um-365/Storf-hja-365.
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl.
Starfsmaður
í tölvuþjónustu
Við leitum að metnaðarfullum og þjónustuliprum
einstaklingi sem hefur áhuga á spennandi
vinnuumhverfi og möguleika á starfsþróun.
Starfið felst í almennri tölvuþjónustu, umsjón með
daglegum uppfærslum, uppsetningu vélbúnaðar
og aðstoð við sérhæfðan hugbúnað. Hjá KPMG
vinna um 240 manns. Viðkomandi þarf að geta
hafið störf sem fyrst.
Við metum mikils sjálfstæði í vinnubrögðum,
sveigjanleika, frumkvæði og aðlögunarhæfni.
Hæfileiki til að vinna með öðrum er mikilvægur.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Almenn góð menntun.
• Reynsla af tölvuþjónustu eða umsjón með tölvum
er æskileg.
• Mjög góð þekking á notendahugbúnaðinum í
Office.
• Gott vald á íslensku og ensku.
Ef þú telur að eiginleikar þínir og þekking fari saman við
óskir okkar hvetjum við þig til að senda okkur umsókn.
Nánari upplýsingar veitir Andrés Guðmundsson,
starfsmannastjóri, agudmundsson@kpmg.is,
sími 545 6077 og Davíð Pálsson, deildarstjóri
tölvudeildar, dpalsson@kpmg.is, sími 545 6014.
Fyllsta trúnaðar verður gætt varðandi allar umsóknir,
fyrirspurnir og persónulegar upplýsingar.
Umsóknir ásamt ítarlegri ferilsskrá með mynd sendist í
tölvupósti á netfangið starf@kpmg.is.
Umsóknarfrestur er til 11. apríl næstkomandi.
A U D I T TA X A D V I S O R Y
Rafvirkjar
Óskum eftir að ráða rafvirkja til starfa við
almennar rafl agnir og tölvulagnir.
Upplýsingar í síma 517 6900 eða 660 6901 á
skrifstofutíma 9 til 17
netfang: fagtaekni@fagtaekni.is