Fréttablaðið - 06.04.2008, Blaðsíða 62
TILKYNNINGAR
6. apríl 2008 SUNNUDAGUR32
ÚTBOÐ
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. (EFF) í samvinnu við
Reykjanesbæ byggir Hljómahöllina í Reykjanesbæ. Um er að
ræða endurbætur á núverandi húsnæði Stapans og viðbygg-
ingu við hann. Byggingunni er m.a. ætlað að hýsa tónlistar-
skóla og poppminjasafn og vera í senn tónlistar- og
ráðstefnuhús sem gengur undir nafninu “Hljómahöllin”.
Verkefninu er skipt í tvo megin þætti:
1. Áfangi : Endurbætur á núv. húsnæði - Stapi: 1094m².
2. Áfangi : Viðbygging við núverandi húsnæði : 4016m².
Hér með er auglýst eftir undirverktökum til að taka þátt í
útboði um undirverktöku á eftirtöldum verkhlutum :
• Útboð 801 : Pípulagnir
• Útboð 803 : Raforkuvirki
Framkvæmdir við verkið hófust í febrúar sl. og verður lokið í
júní 2009. Það er verktakafyrirtækið Atafl sem fer með aðal-
verktöku í verkinu og umsjón með einstökum verkhlutum og
undirverktökum. Atafl fer með stjórn á vinnustað og ber ábyrgð
á verkinu í heild gagnvart verkkaupa.
Verktakafyrirtæki sem hafa áhuga á að bjóða í ofangreinda
verkhluta geta nálgast útboðsgögn á skrifstofu THG, Faxafeni
9, frá og með 8. apríl 2008 kl. 14:00. Einnig er hægt að senda
netpóst til magnus@thg.is með ósk um aðgang að útboðsgög-
num á verkefnavef verksins.
Frekari upplýsingar er að fi nna í útboðsgögnunum.
Tilboðum skal skilað til THG, Faxafeni 9 eigi síðar en þann 30.
apríl 2008 kl. 11:00 og fer þá fram opnun.
HLJÓMAHÖLLIN
Tónlistar- og ráðstefnuhús Reykjanesbæ
ÚTBOÐ RAF- OG PÍPULAGNA
Námssjóður
Sigríðar Jónsdóttur
Umsóknir um styrki
Stjórn Námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur
auglýsir hér með eftir umsóknum um
styrki úr sjóðnum.
Styrkir eru veittir til öryrkja til hagnýts náms,
bóklegs eða verklegs, svo og til náms í hvers
konar listgreinum.
Einnig er heimilt að styrkja þá sem vilja hæfa
sig til starfa í þágu þroskaheftra.
Umsóknum skal skila til Öryrkjabandalags
Íslands, Hátúni 10, Reykjavík fyrir 11. maí nk.
Allar nánari upplýsingar gefur
Guðríður Ólafsdóttir í vinnusíma 530 6700
Styrkjunum verður úthlutað 11. júní.
Stjórn Námssjóðs
Sigríðar Jónsdóttur.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Málþing um nýja sjónvarpstilskipun ESB
Menntamálaráðuneyti efnir til málþings um nýja tilskipun ESB um hljóð- og myndmiðlunarþjónustu.
Íslensk stjórnvöld þurfa að innleiða tilskipunina fyrir lok árs 2009. Á málþinginu verður fjallað um
helstu þætti tilskipunarinnar, fyrirsjáanlegar breytingar á lögum auk þess sem hagsmunaaðilar munu
ræða málin í pallborði.
Málþingið verður haldið í Þjóðminjasafninu kl. 13.00 þann 10. apríl n.k. Aðgangur er ókeypis
og eru allir velkomnir.
DAGSKRÁ
13.00 Menntamálaráðherra fl ytur opnunarávarp.
13.15 Oliver Schenk frá framkvæmdastjórn ESB fjallar um tilskipun
2007/65/EBE og svarar spurningum.
14.15 Karl Axelsson, hrl. og dósent við lagadeild Háskóla Íslands fjallar um
fjölmiðlalöggjöf hér á landi.
14.30 Kaffi hlé.
14.50 Elfa Ýr Gylfadóttir, deildarstjóri í menntamálaráðuneyti fjallar um
ákvæði er varðar auglýsingar í tilskipuninni og kynnir niðurstöður
kannana á auglýsingum og viðhorfum til breytinga á auglýsinga-
löggjöf í íslensku sjónvarpi.
15.30 Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, fjallar um
verkefni, sem unnið hefur verið að, um að takmarka markaðssókn
gagnvart börnum.
15.45 Pallborðsumræður þar sem fjallað er um nýja tilskipun ESB undir stjórn
Benedikts Bogasonar, formanns útvarpsréttarnefndar. Í pallborði verða
Ari Edwald, forstjóri 365, Páll Magnússon, útvarpsstjóri, Sigríður Margrét
Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Skjásins, Elfa Ýr Gylfadóttir, deildarstjóri í
menntamálaráðuneyti og Elva Björk Sverrisdóttir, stjórnarmaður í
Blaðamannafélagi Íslands og blaðamaður á Morgunblaðinu.
Menntamálaráðuneyti, 6. apríl 2008.
menntamalaraduneyti.is
Auglýsingasími
– Mest lesið
FUNDIR / MANNFAGNAÐIR
26