Fréttablaðið - 06.04.2008, Blaðsíða 84
24 6. apríl 2008 SUNNUDAGUR
Ítalska tískuhúsið Salvatore
Ferragamo fagnaði áttræð-
isafmæli sínu á dögunum
í Shanghai. Blásið var til
afmæliskvöldverðar, ball-
ettsýningar og að lokum
veglegrar tískusýningar,
þar sem fyrirsætur sýndu
línu hússins fyrir komandi
haust og vetur.
> DEILA ÖLLU
Vinkonurnar Katie Holmes og Victor-
ia Beckham eru svo nánar að þær deila
meira að segja máltíðum, að sögn
veitingastaðar í LA. Þegar þær
fara út að borða skipta þær
iðulega með sér einu salati, án
salatsósu, einu fiskstykki og
gufusoðnu spínati. Skýring-
una á grönnu holdafari vin-
kvennanna tveggja gæti
því verið að finna í þess-
um sameiginlegu máltíð-
um þeirra.
Salvatore í Shanghai
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/G
ETTY
Bandaríski leikarinn Nicolas Cage
hefur samþykkt opinbera afsökunar-
beiðni leikkonunnar Kathleen Turner
vegna ummæla sem birtust í sjálfsævi-
sögu hennar. Cage kærði Turner fyrir
ærumeiðingar í ævisögunni þar sem
hún hélt því fram að hann hefði tvisvar
verið handtekinn fyrir ölvunarakst-
ur á meðan á upptökum á Peggy
Sue Got Married stóð, en þau léku
saman í myndinni árið 1986.
Hélt hún því einnig fram að
Cage hefði verið handtekinn
fyrir að stela Chihuahua-
hundi.
Cage sakaði Turner um að
hafa logið upp á sig sök og höfðaði mál
í Bretlandi eftir að útdráttur úr bókinni
með upplýsingunum var birtur í dag-
blaðinu The Daily Mail og á heimasíðu
blaðsins. Lögmaður Cage sagði
leikarann vera afar
ánægðan með
útkomuna
vegna
þess að
hann hafi
„aldrei
verið
handtekinn fyrir ölvunarakstur, hunda-
þjófnað eða neitt annað“. „Sem leikari
sem leikur í mörgum fjölskylduvænum
myndum og á eitt lítið barn og annað á
unglingsaldri, var hr. Cage eðlilega
ósáttur þegar hann var sakaður um
glæpsamlegt athæfi,“ sagði lögmaður-
inn.
Turner og The Daily Mail hafa ákveð-
ið að gefa umtalsverðan pening til góð-
gerðamála í kjölfar málsins, auk þess
sem rituð verður afsökunarbeiðni í
ævisögu Turner.
Turner biður Cage afsökunar
NICOLAS CAGE Cage var afar
ósáttur við ummæli Turner í
sjálfsævisögu sinni.
KATHLEEN TURNER Leikkonan bað
Cage opinberlega afsökunar á
ummælum sínum.
Tvær leiksýningar sem sýndar
voru á alþjóðlegu leiklistarhátíð-
inni Lókal hafa verið valdar af
listrænum stjórnanda leiklistar-
hátíðarinnar í Tampere í Finnlandi
til að taka þátt í hátíðinni sem
verður haldin í ágúst á þessu ári.
Leiksýningarnar eru L´Effet de
Serge sem franski hópurinn
Vivarium Studio sýndi í fyrsta
sinn utan Frakklands á Lókal og
svo hin umtalaða sýning Sokka-
bandsins á revíunni Hér og nú.
Lókal fékk nýverið góða dóma
hjá gagnrýnanda dagblaðsins New
York Times. Hann segir að þótt
Lókal hafi ekki verið umfangsmik-
il hátíð, hafi dagskráin reynst vera
fjölbreytt og greinilegt samhengi
á milli uppsetninganna. „Ég bíð
spenntur eftir því sem verður á
boðstólum að ári,“ segir í umsögn-
inni, sem birtist á gagnrýnenda-
vefnum www.theathermania.com.
Á þýska gagnrýnendavefnum
www.nachtkritik.de er blaðamað-
ur hrifnastur af leikritinu Ode to
the Man Who Kneels sem leikhóp-
urinn New York City Players sýndi
í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Tvær til Tampere
LÓKAL Hluti af hópnum sem tók þátt í
alþjóðlegu hátíðinni Lókal í mars.
Nýjustu fréttir frá Hollywodd
herma að Ben Stiller hafi keypt
kvikmyndaréttinn að óútgefinni
myndasögu um Kaftein Doug.
Flestir eru væntanlega engu
nær um hver þessi Doug er en
hann er persóna í myndasögu
eftir Greg Erb og Jason Orem-
land. Höfundarnir eru sam-
kvæmt frétt Empire þegar byrj-
aðir að skrifa handrit eftir
bókinni en hún segir frá títt-
nefndum Doug sem þarf að
snúa aftur til ævintýraver-
aldar sinnar eftir sjálf-
skipaða þrjátíu ára útlegð.
Eftir stanslausa velgengni
á fyrri hluta þessa áratugar
virðist Stiller þurfa á einhverju
verulega bitastæðu að halda
enda þótti Night at the
Museum ekki heppnast neitt
sérstaklega vel. Hvort blanda
af Pétri Pan og The Neverend-
ing Story sé töfralausnin verð-
ur síðan að koma í ljós.
Ofurhetjan Stiller
Í OFURHETJU-
GALLA Ben
Stiller hefur
keypt kvik-
myndaréttinn
að óútgefinni
myndasögu.
Útvarpsmaðurinn fyrrverandi
Þröstur Gestsson, eða Þröstur 3000,
hefur verið ráðinn skemmtana-
stjóri Tunglsins sem verður opnað
með pompi og prakt föstudaginn
ellefta apríl. Upphaflega stóð til að
opna staðinn 4. apríl en vegna viða-
mikilla breytinga var ákveðið að
fresta opnuninni um eina viku.
„Þetta lítur allt saman gríðar-
lega vel út og það er mikil sveifla
í gangi í þessum dansgeira. Það er
kominn tími á að það opni klúbbur
á Íslandi og það er ástæðan fyrir
því að Tunglið er að opna,“ segir
Þröstur, sem hefur áður starfað
við skemmtanamál hjá Sólon,
Café Victor og Kaffibrennslunni.
Þröstur var á sínum tíma dag-
skrárstjóri FM 957 en síðast var
hann bak við hljóðnemann á Kiss
FM meðan sú stöð var og hét.
Þröstur viðurkennir að hann
sakni útvarpsmennskunnar og
útilokar ekki að snúa aftur á öldur
ljósvakans. Tunglið á aftur á móti
hug hans allan þessa dagana og
hefur hann mikla trú á nýja staðn-
um. „Þarna er góður hópur og
þetta er verðugt verkefni. Þetta
er stór og skemmtilegur staður
og við verðum vonandi í sam-
starfi við þá helstu í þessum dans-
bransa,“ segir hann.
Tunglið verður opnað kl. 21.59
hinn 11. apríl og þá verður tekið á
móti boðsgestum með látum.
Ætlar einvala lið skífuknapa, bæði
innlendir sem erlendir, að sjá um
að halda stemningunni í hámarki.
Fremstir í flokki verða Dj Marg-
eir, Grétar G, Kiddi Ghozt og
Mikko frá Berlín, auk þess sem
leynivopn frá Skotlandi mætir á
staðinn. - fb
Frá útvarpinu til Tunglsins
folk@frettabladid.is
Ítalska tískuhúsið Salvatore Ferragamo hélt upp á áttræðisafmæli sitt í Kína
á dögunum. Þó að Ferragamo sjálfur hafi hafið feril sinn sem skóhönnuður
eru nú mörg ár síðan tískuhúsið færði út kvíarnar. Það framleiðir í dag skó
og töskur, sólgleraugu og ilmvatn svo eitthvað sé nefnt, auk tískulínanna
sem það sendir frá sér yfir árið. Haustlínan er með nokkuð klassísku sniði,
með silkiblússum og klassískum kápum, þó að rokkaðri kjólar með keðjum
hafi einnig ratað á sýningarpallana.
ÁTTRÆÐISAFMÆLI SALVATORE FERRAGAMO
ÞRÖSTUR GESTSSON Þröstur hefur verið
ráðinn skemmtanastjóri Tunglsins við
Tryggvagötu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN