Fréttablaðið - 06.04.2008, Blaðsíða 94
34 6. apríl 2008 SUNNUDAGUR
Inga Birna Dungal vill fá eina
milljón í skaðabætur frá Séð og
heyrt. Lögmaður Ingu Birnu, Vil-
hjálmur Hans Vilhjálmsson, telur í
stefnunni að blaðið hafi brotið höf-
undarréttarlög þegar blaðamaður
tímaritsins, Atli Már Gylfason,
stal myndum af læstu vefsvæði
hennar. Myndirnar sýndu vinkonu
Ingu Birnu, Birgittu Ingu Birgis-
dóttur, og bandaríska leikstjórann
Quentin Tarantino á skemmti-
staðnum Nasa undir fyrirsögninni
„Í sleik á Nasa.“
Fréttablaðið greindi frá því fyrir
skömmu að Inga Birna hygðist
leita réttar síns. Hún viðhafði stór
orð í garð blaðamannsins Atla Más
Gylfasonar og sakaði hann um að
hafa stolið myndunum af vefsvæði
sínu. Forsvarsmenn blaðsins og
útgáfufélagsins Birtíngs neituðu
að greiða Ingu Birnu fyrir mynd-
irnar og sögðu þær ekki vera illa
fengnar.
Í stefnunni kemur fram að við
mat á miskabótum eigi dómstóll að
líta til „ófyrirleitinnar háttsemi“
eins og það er orðað í stefnunni. Í
stefnunni er vísað til umfjöllunar
blaðsins skömmu eftir að Inga
Birna ákvað að leita réttar síns og
er sagt skýrum stöfum að „óviðeig-
andi framkoma Atla og annarra
starfsmanna Birtíngs hafi fengið á
Ingu Birnu andlega, valdið henni
óöryggi og stuðlað að því að virð-
ing hennar beið hnekki“. Jafnframt
er vísað til símtals Atla og Lofts
Atla Eiríkssonar til Ingu Birnu
síðla sunnudagskvölds. Lögmaður
Birtíngs hefur frest til 10. apríl til
að skila greinargerð um málið.
Loftur Atli Eiríksson, annar rit-
stjóra Séð og heyrt, sagðist vera
furðulostinn yfir þessu máli. „Ég á
bara erfitt með að tjá mig um það,
þetta er algjör farsi.“ Hann harm-
ar þá stefnu sem þjóðfélagið virð-
ist vera að taka. „Ísland er að sigla
í átt að hinu ameríska stefnuþjóð-
félagi; að hægt sé að stefna öllum
fyrir allt til þess að verða sér úti
um fé.“ Hann tekur fram að Inga
Birna hafi aldrei sóst eftir neinni
greiðslu fyrir myndirnar og að
tímaritið hefði með glöðu geði
greitt sanngjarnt verð fyrir þær.
HVAÐ SEGIR MAMMA?
Hvað er að frétta?
Ég frumsýndi í gær hlýlega gamanleikinn
Gítarleikarana og er að fara að leika í
sýningu tvö og Gosa í dag.
Augnlitur:
Blár.
Starf:
Leikkona.
Fjölskylduhagir:
Góðir.
Hvaðan ertu?
Ég er Norður- og Suður-Þingeyingur.
Ertu hjátrúarfull?
Já, svakalega.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn:
Ég á ekki sjónvarp, en ég stelst til að
horfa á Gossip Girl og Mannaveiðar þessa
dagana.
Uppáhaldsmatur:
Súkkulaði, sushi og allt sem mamma mín
býr til.
Fallegasti staðurinn:
Oddsstaðir á Melrakkasléttu.
iPod eða geislaspilari:
iPod.
Hvað er skemmtilegast?
Að vera með góðum vinum og borða
góðan mat.
Hvað er leiðinlegast?
Þegar maður er sakaður um eitthvað sem
maður hefur ekki gert.
Helsti veikleiki:
Súkkulaði.
Helsti kostur:
Ég kemst í splitt.
Helsta afrek:
Á það eftir.
Mestu vonbrigðin:
Pass.
Hver er draumurinn?
Núna er draumurinn að fólk
elski sýninguna og komi á Gít-
arleikarana í Borgarleikhúsinu.
Hver er fyndnastur/fyndn-
ust?
Það eru Kjartan og Árni Pétur
Guðjónssynir og Dóri Gylfa.
Hvað fer mest í taugarnar
á þér?
Ástæðulaust nöldur.
Hvað er mikilvægast?
Að koma fram við aðra eins og þú
vilt að aðrir komi fram við þig.
HIN HLIÐIN AÐALBJÖRG ÞÓRA ÁRNADÓTTIR LEIKKONA
Helsti kosturinn að komast í splitt
„Ég er óskaplega ánægð með
hann. Hann er bara svo dugleg-
ur, vinnusamur og seigur. Hann
hefur alltaf verið glaður, ljúfur
og jákvæður en mjög duglegur.
Það hefur nýst honum vel.“
Erla Gunnarsdóttir, móðir Eldars
Ástþórssonar, framkvæmdastjóra hins
nýstofnaða tónlistarsjóðs Kraums.
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, tónskáld með
meiru, hyggst flytjast til Flórens á Ítalíu í
haust og semja þar tónlistarverk fyrir
íslenskt leikhús. Þorvaldur hefur áður
brugðið á það ráð að flýja land þegar
sköpunargáfan á að taka öll völd en
hann samdi tónlistina við Gosa í þykku
sænsku skógarkjarri. Eins kaldhæðnis-
lega og það kann að hljóma.
Þorvaldur vildi ekki tjá
sig um hvers konar verk
væri í farvatninu og sagði
það bara eiga eftir að skýr-
ast þegar út væri komið.
Og andi Flórens væri
búinn að ná tökum á
honum. „Ítalía er nátt-
úrlega rétti staðurinn
til að fá innblástur og
þau eru ófá söngva-
skáldin sem hafa
drukkið í sig forna
og fræga menn-
ingu í Flórens,“
útskýrir tón-
skáldið sem
tekur alla fjöl-
skylduna með
sér og henni líst
að sögn Þorvald-
ar vel á flutning-
ana.
Sviðsverkið
verður frumsýnt næsta haust en Þorvaldur
er nú á fullu við að undirbúa söngleikinn
Ástin er diskó – lífið er pönk. Hann er því
milli steins og sleggju þegar kemur að
málefnum dansara Eurobandsins en eins
og kom fram í fjölmiðlum voru þeir látn-
ir víkja fyrir bakraddasöngvurum.
„Stelpurnar í sýningunni hjá mér eru
náttúrulega snillingar og ég stend
með þeim.“ Hann bætir því
hins vegar við að yfirleitt
komi það best út á sviði að
hafa „þykkari“ tón sem
styðji við bakið á aðal-
söngvurunum. „Svíar
hafa gert þetta með
góðum árangri undan-
farin ár og Eurobandið
hefur lýst því yfir að
það leggi allt í sölurn-
ar þannig að þetta er
skiljanleg ákvörð-
un.“ - fgg
Þorvaldur Bjarni flytur til Flórens
MEÐ FJÖLSKYLD-
UNA TIL ÍTALÍU
Þorvaldur ætlar að
koma sér vel fyrir
í Flórens og semja
eitt stykki sviðsverk.
Vill fá milljón frá
Séð og heyrt
„Ég get alveg fullvissað fólk um að
það voru engir sokkar notaðir til
að ýkja stærð ákveðinna líkams-
parta. Slíkar sokkasögusagnir eru
uppdiktaðar hjá fólki sem vill
koma höggi á okkur,“ segir Egill
„Gillzenegger“ Einarsson. Nýtt
myndband danshljómsveitarinnar
Merzedes Club við lagið Meira
frelsi fer í spilun eftir helgi. Það
var Ágúst Jakobsson sem stjórn-
aði upptökum á myndbandinu, en
leikstjórar voru þeir Gunnar Páll
Ólafsson og Samúel Bjarki Péturs-
son.
Þeir sem séð hafa nýja mynd-
bandið hafa bent á að stærð ákveð-
inna líksamsparta hjá strákunum í
bandinu eigi sér enga stoð í raun-
veruleikanum. Fréttablaðið hafði
spurnir af því að gamalkunnu
rokkráði hefði verið beitt til að ná
fram þessum áhrifum, sokkum
troðið ofan í nærfætnaðinn en
Egill vísar því alfarið á bug. Segist
vita það fyrir víst að slíkt myndu
þeir aldrei gera. „Enda engin
ástæða til.“
Merzedes Club sló eftirminni-
lega í gegn í Eurovision-forkeppni
RÚV með laginu Ho ho ho we say
hey hey hey. Síðan þá hefur hljóm-
sveitin verið á þönum um allar
trissur og spilað á nánast hverju
landshorni. Karlkyns sveitarmeð-
limirnir eru oftar en ekki hálfnakt-
ir uppi á sviðinu en litlum sögum
hefur þó farið af ástamálum þeirra.
Því allir eru þeir á lausu. Egill seg-
ist hafa orðið var við ákveðna for-
dóma í sinn garð hjá hinu kyninu.
„Fólk virðist halda að við séum
bara einhver tilfinningalaus vöðva-
búnt en það er alls ekki.“ Aðspurð-
ur hvort sá sem kæmist í tæri við
sálina myndi ekki bara opna fyrir
eitthvert táraflóð vísar Egill því á
bug, þeir séu engar kerlingar.
Hann er heldur ekki undrandi á
því að þannig sé að hvorki gangi né
reki með ástamálin, þeir séu ein-
faldlega uppteknir menn og hafi
því lítinn tíma fyrir örvar Amors.
Konur falli hins vegar í öngvit
þegar þeir stíga á svið.
Egill beinir orðum sínum til ann-
arra tónlistarmanna og hvetur þá
til að taka upp heilbrigðari lífsstíl.
Og myndbandið sé liður í þeirri
herferð. „Myndbandið sýnir það
svart á hvítu að menn geta verið í
þessum bransa og verið í formi en
þurfa ekki að liggja niðri í bæ,
dauðadrukknir.“
freyrgigja@frettabladid.is
EGILL GILLZENEGGER: NÝTT MYNDBAND FRUMSÝNT EFTIR HELGI
Allir strákarnir í Merzedes
Club lausir og liðugir
TILFINNINGARÍKIR Þeir Egill og Ceres 4 eru tilfinningaríkir en segjast mæta ákveðn-
um fordómum vegna vaxtarlags síns. Svona birtast þeir aðdáendum sínum í nýjasta
myndbandi Merzedes Club.
Í GÓÐU FORMI Sveitarmeðlimir segjast
sanna það fyrir fullt og allt að menn geti
verið í góðu formi þrátt fyrir að tilheyra
tónlistarbransanum. Í myndbandinu eru
mjög innilegar senur milli Gillzeneggers
og Rebekku söngkonu.
Ertu að leita þér
að aukavinnu?
ÓSÁTTAR Inga Birna
Dungal hefur stefnt
Séð og heyrt fyrir
myndastuld af vin-
konu sinni, Birgittu
Ingu. Hún vill milljón í
skaðabætur.
07.02.1980