Fréttablaðið - 20.04.2008, Page 16
16 20. apríl 2008 SUNNUDAGUR
SIGFÚS SIGURÐSSON
„...Svala og Gassa á FM 957. Fyrir það fyrsta eru þetta náttúrlega alveg þrælskemmtilegir
strákar og við eigum eitt sameiginlegt áhugamál: golf. Svali og Gassi eru opnir og hressir
og ófeimnir við að vera þeir sjálfir en mér finnst fræga fólkið á Íslandi alltaf vera í
einhverjum leik. Þeir félagar eru hins vegar þeir sjálfir og eru ekkert að
fara í felur með sína kosti og galla.
Við myndum þó leita út fyrir landsteinana og jafnvel halda til
Suður-Spánar á einhverja af þeim fjölmörgu golf-rivíerum sem
þar eru. Þrátt fyrir að golfið sé kannski eilítið kostnað-
arsamara þar þá er svo ódýrt að lifa á Spáni þannig að
það kæmi út á eitt. Þeir eru reyndar aðeins betri en ég
í golfi en ég ætla að gefa mér góðan tíma í sumar til
að ná réttu tökunum á sveiflunni.
Uppistaðan í matnum yrði svo náttúrlega
steikur að hætti hússins. Gassi er mikill
matmaður og við myndum ekki svelta, svo
mikið er víst. Tapasið fengi einnig að fljóta
með og svo eru Spánverjar eins og Frakkar
og Ítalir, mikið fyrir osta. Það myndi að
minnsta kosti enginn svelta í ferðinni okkar.“
KATRÍN JAKOBSDÓTTIR
„...Njáli, Bergþóru og sonum þeirra auk annars
heimilisfólks. Ég held að ég geti ábyrgst að það yrði
mjög viðburðaríkt frí enda ég er lítið fyrir það gefin
að liggja í leti í fríum. Við Njáll og Bergþóra myndum
að eyða sumardögunum á Suðurlandi, gista jafnvel
bara á Bergþórshvoli en ferðast um Fljótshlíðina og
njóta yndislegrar fjallasýnar. Við myndum skoða
Suðurland, virða fyrir okkur bleika
akra, leggja okkur við arfasátur,
fara í útreiðartúra og renna okkur
fótskriðu hjá Markafljóti. Samt
verst að það skuli ekki vera
ísilagt en við getum örugglega
notast við línuskauta í
staðinn.
Eflaust yrði mikil veisla
á hverju kvöld; yrði
boðið upp á sunnlenskt
grænemti, lambakjöt
og Þykkvabæjarkart-
öflur og að sjálf-
sögðu íslenskt vatn,
kannski yrði þó
borinn fram sunnlensk-
ur bjór til hátíðabrigða.
ÁGÚST BORGÞÓR SVERRISSON
„...Árna Bergmann og fá hann til að
lóðsa mig um Rússland. Ástæðan er
sú að Rússland er eitt af þeim löndum
sem ég þyrfti að kynnast en ég er
bæði of latur og of upptekinn til að
kynna mér framandi slóðir. Ég myndi
þiggja af honum fyrirlestra um ævi
Checkhovs annars vegar og um
rússnesku byltinguna hins vegar og
ferðalagið myndi helgast af söguslóð-
um hvors tveggja. Kannski tækjum
við Guðmund Ólafsson með til að
fræða mig um ólígarkana og kapítal-
ismann í Rússlandi nútímans því ég
held að hann sé fróður um þau mál. Og kannski mætti Þráinn
Bertelsson koma með af sömu ástæðum. Ég myndi semsagt fá
Rússland í einum pakka frá keisaratímanum og til dagsins í dag.
Hins vegar yrði kvennmannsleysið yfirþyrmandi, sérstaklega ef
þetta yrðu þrír karlar sem á endanum færu með mér. Svo af þeim
ástæðum yrði gott að koma heim.
Mér skilst að það sé til réttur sem heitir rússnesk pönnukaka en ég
hef aldrei áttað mig á því hvað er í henni. Fyrir forvitnissakir
myndi ég vilja borða hana. Síðan myndi ég að sjálfsögðu bragða
aðra þjóðlega rétti en ég er ekki mikið fyrir vodka svo ég yrði
að þiggja eitthvað annað áfengi.“
GÍSLI EINARSSON
„...Snorra Sturlusyni og þræða slóðir
Egilssögu. Einfaldlega vegna þess að ég held
að það væri tvímælalaust toppurinn á
menningartengdri ferðaþjónustu. Ég myndi
nota tækifærið, þótt við værum í fríi, og taka
viðtal við hann um hans sagnaritun og lífið í
uppsveitum Borgarfjarðar á þrettándu öld.
Ferðalagið hæfist á Borg og við færum
ríðandi á gráum hestum vítt og breytt um
Mýrar og upp í Borgarfjörð, færum að
sjálfsögðu í sund í Snorralaug og kíktum í
kaffi á nokkrum bæjum. Á sjötta degi
héldum við síðan af landi brott. Við myndum
fara á víkingaskútu sem þeir eru að hefja
framleiðslu á í Stykkishólmi. Sennilega
legðum við úr höfn í Búðardal þannig að við
gætum komið við á fæðingarstað
Snorra, þ.e. Hvammi í Dölum,
síðan myndum við sigla til
Noregs og þræða norsku
firðina, bæði til að rifja upp
einstaka atburði úr Egilssögu
og eins Heims-
kringlu. Ef við
fengjum langt
sumarfrí
myndum við
sigla í bakaleiðinni til Írlands, Englands og Orkneyja enda
dreifist Egilssaga víða. Afþreying í ferðinni yrði fyrst og
fremst létt spjall um söguna en að sjálfsögðu myndum við
fara á nokkur söfn og jafnvel fara í leikhús.
Ég hef það fyrir venju hvar sem ég kem að leita uppi mat
sem er tengdur viðkomandi landi eða svæði. Þess vegna
reikna ég með að við myndum fá okkur Får i kål í Noregi,
lefsur, pultost og fleira góðgæti, á Írlandi fengjum við okkur
írska kássu meðal annars og fleira í þeim dúr. Á Mýrunum
myndi ég hins vegar bjóða honum í grillað lambafile að
mínum hætti.“
GUÐBJÖRG ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR
„...Heru Björk til Dúbaí. Hera er ákaflega
hress og skemmtileg manneskja og ferðin
yrði alveg tryllingslega skemmtileg. Við
tvær gætum tekið dúetta fyrir ríka fólkið
og hún myndi hafa húmor fyrir þessu
brjálæði sem ríkir í þessu litla ríki.
Og það myndi ekki vefjast fyrir okkur
hvað við myndum gera. Við færum á
skíði innahúss og svo á sjóskíði utanhúss.
Í Dúbaí eru örugglega þrjár eða fjórar
hæstu byggingar heims og við myndum
reyna að fara í þær allar. Svo er aldrei að
vita nema maður myndi lenda á séns
með einhverjum olíufurstanum sem
keypti handa manni svona tilbúna
pálmaeyju og þar myndum við búa
hamingjusamar til æviloka.
Miðað við fréttirnar frá Dúbaí má
fastlega gera ráð fyrir því að kampa-
vín og ostrur séu uppistaðan í matnum
í Dúbaí. Og við myndum ekki láta
okkar eftir liggja við að gúffa því í
okkur. Auðvitað myndum við fá okkur
kaffi með kúbanska morgunvindlin-
um en kampavín og ostrur verður
aðalmálið.“
VALGERÐUR MATTHÍASDÓTTIR
„...Agli Eðvarðssyni, kvikmyndagerðar-
manni og sjónvarpssnillingi, til Afríku.
Þar myndum við hitta fyrir Bono og
George Clooney og taka við þá viðtal
um hjálparstarf þeirra. Egill myndi að
sjálfsögðu sjá um tökur og hjálpa mér
að halda sönsum í erfiðum aðstæðum en
með tilkomu nýrra fjölmiðla er orðið svo
auðvelt að miðla þekkingu og láta gott af sér
leiða. Ég ber sjálf mikla virðingu fyrir þeim
sem láta sig varða velferð þeirra sem mest
þurfa á aðstoð að halda og viðtal við Bono og
Clooney myndi vekja bæði athygli og fólk til
umhugsunar og jafnvel ýta við einhverjum
til að leggja sitt af mörkum.
Ég held að hver máltíð á
þessum slóðum fengi alveg
nýja merkingu og ég væri
því tilbúin í hvaða mat sem
er. Þetta yrði örugglega
erfið ferð en vel þess virði
að fara hana og út úr þessu
kæmi flottur heimildaþáttur
og þess vegna yrði þetta
gott sumarfrí.
Í sumarfríið með...
Öll höfum við látið okkur dreyma um hið fullkomna og ótrúlega gefandi sumarfrí. Ekki sakar þá að vera í fylgd með einhverj-
um þjóðþekktum, jafnvel heimsþekktum og láta hann fræða sig um land og þjóð milli þess sem bragðlaukarnir eru kitlaðir með
framandi réttum. Júlía Margrét Alexandersdóttir veiddi upp úr nokkrum Íslendingum hver draumaferðafélaginn væri og hvernig
ferðaskipulagið yrði.
Ég myndi
vilja fara í
sumarfrí
með...
Ég myndi
vilja fara í
sumarfrí
með...
Ég myndi
vilja fara í
sumarfrí
með...
Ég myndi
vilja fara í
sumarfrí
með...